Íbúagátt
Skagafjardarblad 2010_2
Aðalskipulag 2009-2021
Visa boð 2007
Atvinnuumsókn
Sveitarstjóri

Ágætu Skagfirðingar og aðrir gestir heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Ég var um daginn að lesa yfir gamlar fundargerðir og starfsyfirlit félagsskapar sem ég var í þegar ég bjó á Egilsstöðum. Eru þessi skrif frá því veturinn 1995 til 1996 eða frá síðasta árinu af samtals níu sem ég og fjölskylda mín áttum austur á Héraði. Á einum fundinum var sérstök umfjöllun um fyrirbærið „Internetið“ sem þá hafði fyrir nokkru hafið innreið sína inn í líf okkar. Voru menn spurðir hvort þeir væru eitthvað farnir að nýta sér netið og hversu oft eða mikið menn færu þangað inn á venjulegum degi.

Það lá við að ég brysti í hlátur þar sem ég las að alla jafna voru menn lítið farnir að heimsækja þennan nýja vettvang, hvað þá að farið væri að nota hann til markvissrar gagnaöflunar eða samskipta við aðra. Flestir kváðust kíkja inn á þetta fyrirbæri að jafnaði svona annan til þriðja hvern dag og vissu ekki mikið út á hvað þetta gengi þó við værum svo skýrir að telja þennan nýja vettvang eiga eftir að nýtast okkur mannfólkinu vel í framtíðinni. Ég held þó að við höfum verið mjög langt frá því á þeim tíma að átta okkur raunverulega á þeirri byltingu sem hér var á ferðinni og hversu mikið og vel „Internetið“ myndi þjóna okkur í öllum okkar samskiptum í framtíðinni eins og orðin er raunin í dag, aðeins um áratug síðar.

Það er ekki úr vegi að rifja þetta upp nú þegar við berjum augum nýja heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og tökum með tilkomu hennar enn eitt skrefið í langri vegferð okkar í nýtingu þessa miðils til þess að koma fréttum og umfjöllun um lífið í Skagafirði á framfæri við sem flesta og sem samskiptatæki og tengilið kjörinna sveitarstjórnarmanna og embættismanna við íbúana. Er stefnan tekin á það að í framtíðinni verði heimasíðan enn gagnvirkari og ýmis samskipti, sem í dag verður ekki sinnt án þess að fólk þurfi til þess að koma í heimsókn í ráðhúsið á Sauðárkróki, verður hægt að sinna beint yfir netið í gegn um heimasíðuna. Of langt mál yrði að telja upp alla þá möguleika sem heimasíðan getur boðið upp á í þeim efnum en hún getur auðveldað íbúum um margt samskiptin við stjórnsýsluna þó ekkert komi að sjálfsögðu í staðinn fyrir hin beinu mannlegu samskipti þar sem við hittum hvert annað augliti til auglitis.

Um leið og ég færi okkur öllum árnaðaróskir með nýja heimasíðu vil ég hvetja íbúa og aðra til að nota hana enn frekar en verið hefur til gagnaöflunar, fróðleiks og skemmtunar og samskipta við embættis- og stjórnmálamenn og fylgjast með framþróun hennar og framvindu mála í sveitarfélaginu okkar frá degi til dags. Færi ég öllum þeim sem komið hafa að vinnu við endurnýjun heimasíðunnar þakkir fyrir störf sín og það hve vel hefur hér til tekist og tel á engan hallað þó ég mæri ritstjórann, Áskel Heiðar, umfram aðra af þessu tilefni því á honum hefur mest vinnan og umsýslan legið.

Skagafirði 27. nóvember 2007

Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri

Örlítið af mínum högum fyrir þá sem ekki þekkja:

Ég heiti Guðmundur Guðlaugsson, er 48 ára,giftur Kristínu Sverrisdóttur, kennara, 49 ára, á sjálfur 4 börn, Jón Guðna, verkfræðinema, 25 ára, Eyþór Helga, 22 árs, Eyrúnu, framhaldsskólanema 20 ára og Grétar, 14 ára. Kristín á 2 dætur, Elfu Steinarsdóttur, framhaldsskólanema, 21 árs og Hjördísi Steinarsdóttur, 11 ára sem er nú í 6. bekk KS í Árskóla. Öll nema Eyþór Helgi og Grétar eigum við nú lögheimili okkar hér í Skagafirði en vegna framhaldsnáms eldri krakkanna erum við lengstum bara þrjú i heimili, svona frá degi til dags. Heimasíða: http://www.123.is/gudmgudl