Heitavatnslaust út að austan á morgun miðvikudaginn 22. nóvember
21.11.2023
Tilkynning frá Skagafjarðarveitum:
Leki er á stofnlögn hitaveitu á Höfðaströnd nokkru sunnan við Höfða. Til að viðgerð geti farið fram mun þurfa að loka fyrir rennsli á morgun, miðvikudaginn 22. nóvember. Vinnan mun hefjast um kl. 10 og standa fram eftir degi. Heitavatnslaust verður á öllu svæðinu frá Höfða og innúr, það er að Neðra-Ási og Viðvík og einnig á Hofsósi.
Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.