Skagfirðingabraut 143715 - Lóðarmál
Málsnúmer 1203266
Vakta málsnúmerSkipulags- og byggingarnefnd - 233. fundur - 21.03.2012
Skagfirðingabraut 143715, Árskóli. Með vísan til samþykktar Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá 7.mars sl., þar sem samþykkt var að hafnar verði framkvæmdir við viðbyggingu Árskóla á Sauðárkróki, leggur byggingarfulltrúi fram tillögu að sameiningu lóðarinnar við lóðina Skagfirðingabraut 22, (143699). Fylgjandi tillögunni er uppdráttur, lóðarblað gert af Tæknideild Sveitarfélagsins og Stoð ehf. verkfræðistofu. Lóðarblaðið er í verki númer 5619, dagsett 16.mars 2012. Sameining lóðanna samþykkt.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 288. fundur - 28.03.2012
Afgreiðsla 233. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 288. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.