Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 308

Málsnúmer 1706022F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 358. fundur - 06.09.2017

Fundargerð 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 358. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Viggó Jónsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Andrés Geir Magnússon kt 250572-4849 fh, Litla grís ehf., kt. 660398-3179 sækir um heimild til að stofna 2,95 ha. landsspildu úr landi jarðarinnar Helluland land landnúmer 202496. Meðfylgjandi er afstöðuuppdráttur gerður hjá Stoð ehf verkfræðistofu af Birni M. Árnasyni. Númer uppdráttar S01, verknúmer 740702 útgáfudagur 19. júní 2017. Engin fasteign er á umræddri spildu. Óskað er eftir að hið nýstofnaða land fái heitið Langaborg. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Kanon arkitektar Birkir Einarsson landslagsarkitekt kt. 290163-4129 leggur fram fh. lóðarhafa lóðarinnar tillögu að framtíðaruppbyggingu lóðarinnar. Tillagan gerir ráð fyrir byggingarmagni allt að 200 ferm. í fjórum smáhýsum og einni 60 ferm. aðstöðubyggingu. Framlagðir afstöðu- og skýringaruppdrættir eru gerðir hjá Kanon arkitektum. Verknúmer 16-29 uppdráttanúmer 16-29-75420, 16-29-75421 og 16-29-75422. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir framkomna skipulagstillögu. Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Anna Hulda Hjaltadóttir kt. 240871-5489 og Sigurður Hólmar Kristjánsson kt.150272-5139 Bárustíg 12 sækja um heimild Skipulags- og byggingarnefndar til að gera nýja innkeyrslu á lóðina. Um er að ræða 3 m breiða innkeyrslu samsíða suðvestur lóðarmörkum hússins. Fyrir liggur skriflegt samþykki nágranna í Bárustíg 10. Erindið samþykkt. Skilyrt er að verkið vinnist í samráði við framkvæmdasvið sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Valur Jóhann Stefnisson kt. 270159-3629, Jóhannes Þ Guðmundsson kt. 200549-4229 og Leifur Þ. Aðalsteinsson kt.310160-2539 óska eftir, fh. Melhorns ehf. kt 710117-1280, staðfsetingu Skipulags- og byggingarnefndar á landamerkjum Mels landnúmer 145987 eins og þau eru sýnd á hnitsettri afstöðumynd sem gerð er á Stoð ehf verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni. Númer uppdráttar er S01 verknúmer 777702, dagsetning uppdráttar 18. maí 2017. Erindinu fylgir skirfleg yfirlýsing eigenda aðliggjandi jarða um að landamerkin, eins og þau eru sýnd á ofangreindum uppdrætti séu ágreiningslaus. Erindið samþykkt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Sigrún Hrönn Pálmadóttir kt. 160165-4139 sækir um heimild Skipulags- og byggingarnefndar til að skipta séreign að Aðalgötu 9 neðri hæð í tvo eignarhluta. Fastanúmer séreignarinnar er 231-1115. Fyrir liggur skriflegt samþykki eiganda efri hæðar, Gunnars Péturs Péturssonar kt. 030547-4469. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.

    Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Sigríður Ólafsdóttir arkitekt kt. 071070-5069 sækir, fh. Í Fljótum ehf, kt. 620915-3030 um heimild Skipulags- og byggingarnefndar til breyta gamla skólahúsinu að Sólgörðum í gistiheimili í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti. Landnúmer lóðarinnar er 207636 og fastanúmer eignarinnar 214-3857. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir breytta notkun.

    Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Viktor Guðmundsson kt. 100473-3729 og Ragna F. Gunnarsdóttir kt. 100877-5039 sækja um tímabundið leyfi til að gera íbúð í hluta bílgeymslu að Víðihlíð 13. Í umsókn kemur fram að íbúðin yrði 24 ferm. og að í íbúðinni yrði 3,25 ferm baðherbergi. Skipulags- og byggingarnefnd hafnar erindinu. Rýmið getur ekki uppfyllt kröfur reglugerðar um íbúð. Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Fyrir liggur umsagnarbeiðni Húnavatnshrepps vegna breytinga á Aðalskipulagi Húnavatnshrepps. 2010-20226. Breyting felur í sér fjölgun á efnistökustöðum í hreppnum, nýtt verslunar og þjónustusvæðis að Sveinsstöðum og nýtt athafnasvæðis á Húnavöllum. Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við ofangreinar breytingatillögur á aðalskipulagi Húnavatnshrepps. Skipulags- og byggignarnefnd bendir á að Sveitarfélagið Skagafjörður vinnur einnig að breytingu á Aðalskipulagi Skagafjarðar 2009-2021 og að Verkefnis- og matslýsing hefur verið send út til kynningar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Ásta Birna Jónsdóttir kt. 310573-5909, eigandi jarðarinnar Fagragerði landnr. 178658, sækir um leyfi til að stofna byggingarreit fyrir vélageymslu á jörðini, samkvæmt meðfylgjandi afstöðuuppdrætti sem gerður er af Ingvari Gýgjar Sigurðarsyni kt. 020884-3639. Númer uppdráttar er S-101, dagsettur 18. maí 2017. Fyrir liggur umsögn Minjavarðar Norðurlands, vestra dagsett 26. júlí sl., sem ekki fellst á byggingu á fyrirhuguðum stað sökum þess að hann er á gamla bæjarhól Fagraness. Af þeim sökum hafnar Skipulags- og byggingarnefnd erindinu. Viggó Jónsson tók ekki þátt í afgreiðslu þessa liðar.

    Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með átta atkvæðum. Viggó Jónsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í afgreiðslu málsins.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Ásta Birna Jónsdóttir kt. 310573-5909, eigandi jarðarinnar Fagragerði landnr. 178658, sækir um leyfi til að stofna byggingarreit fyrir vélageymslu á jörðini, samkvæmt meðfylgjandi afstöðuuppdrætti sem gerður er af Ingvari Gýgjar Sigurðarsyni kt. 020884-3639. Númer uppdráttar er S-102, dagsettur 25. júlí 2017. Fyrir liggur umsögn Minjavarðar Norðurlands, vestra dagsett 27. júlí sl.,sem ekki gerir athugasemd við byggingarreitinn. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið. Viggó Jónsson tók ekki þátt í afgreiðslu þessa liðar. Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með átta atkvæðum. Viggó Jónsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í afgreiðslu málsins.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Böðvar Fjölnir Sigurðsson og Elenóra Bára Birkisdóttir þinglýstir eigendur Brúnastaða í Tungusveit, landnr. 146157, óska eftir heimild til þess að skipta lóð úr landi jarðarinnar, Brúnastaði 2, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti, sem gerður er á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni, dags. 27. júlí 2017. Númer uppdráttar er S-101 í verki nr. 7776-02.Íbúðarhús með fastanúmer 214-0968, merking 02 0101 mun tilheyra hinni nýstofnuðu lóð.
    Jafnframt er sótt um heimild til að leysa hina nýstofnuðu lóð úr landbúnaðarnotum. Lögbýlaréttur og öll hlunnindi munu tilheyra Brúnastöðum. landnr. 146157. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.

    Bókun fundar Afgreiðsla 308. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti þann 7. júní 2017 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir skíðasvæðið í Tindastóli skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.
    Í deiliskipulagstillögunni er m.a gert ráð fyrir byggingu skíðaskála, skíðalyftu og möguleikum á lyftu og skíðabraut í vestuhlíðum Ytridals.Tillagan lá frammi til kynningar frá og með miðvikudegi 14. júní 2017 til og með 26. júli 2017.
    Athugasemdi barst frá Agnari Búa Agnarssyni á Heiði varðandi örnefni, aðrar athugasemdir eða ábendingar við deiliskipulagstillöguna bárust ekki. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipuldgstillöguna óbreytta. Viggó Jónsson tók ekki þátt í afgreiðslu þessa liðar.

    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 8 Skíðasvæðið í Tindastóli - deiliskipulag 2017. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 49. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar. Bókun fundar 49. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 50. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar.

    Bókun fundar 50. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 51. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar. Bókun fundar 51. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 308 52. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar. Bókun fundar 52. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram á 358. fundi sveitarstjórnar 6. september 2017.