Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 349

Málsnúmer 1905009F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 384. fundur - 29.05.2019

Fundargerð 349. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 384. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir, með leyfi varaforseta, kynnti fundargerð. Álfhildur Leifsdóttir kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 349 Breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 er í umfjöllun Skipulagsstofnunar til staðfestingar skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga. Fyrir fundinum liggja drög að svarbréfum til þeirra sem sendu inn athugasemdir og ábendingar á kynningartíma. Drögin eru í samræmi við samþykkt gögn skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar.
    Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ganga frá svarbréfum.
    Álfhildur Leifsdóttir óskar bókað:
    Málefnalegar og mikilvægar athugasemdir og andmæli liggja fyrir vegna áforma Landsnets um lagningu Blöndulínu 3. Sveitarfélaginu ber að gæta hagsmuna íbúa Skagafjarðar og landeigenda í hvívetna og beita sér til þess á öllum stigum. Því ætti að bregðast betur við þeim ítrekuðu athugasemdum sem komu fram sérstaklega hvað varðar bið eftir umhverfismati, óháðri úttekt á möguleikum jarðstrengjalagna og frekari athugun á Kiðaskarðsleið.

    Bókun fundar Álfhildur Leifsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
    Málefnalegar og mikilvægar athugasemdir og andmæli liggja fyrir vegna áforma Landsnets um lagningu Blöndulínu 3. Sveitarfélaginu ber að gæta hagsmuna íbúa Skagafjarðar og landeigenda í hvívetna og beita sér til þess á öllum stigum. Því ætti að bregðast betur við þeim ítrekuðu athugasemdum sem komu fram sérstaklega hvað varðar bið eftir umhverfismati, óháðri úttekt á möguleikum jarðstrengjalagna og frekari athugun á Kiðaskarðsleið.

    Regína Valdimarsdóttir tók til máls, með leyfi varaforseta.
    Meirihluti sveitarstjórnar óskar bókað:
    Þegar hefur umfangsmikil vinna átt sér stað við breytingu á aðalskipulaginu þar sem lögð hefur verið áhersla á að meta málið út frá sem flestum sjónarhornum. Sveitarfélagið hefur sett sína stefnu og skilmála sem tekur mið af hagsmunum sveitarfélagsins, ásamt þeim mótvægisaðgerðum sem meirihlutinn lagði til við að lágmarka áhrif að línulögnum um héraði, sbr. fundargerð sveitarstjórnar frá 24. apríl sl.

    Á það skal bent að í fyrsta lagi er mikilvægt að sveitarfélagið hefur þegar unnið sitt umhverfismat á undan framkvæmdaraðila m.a. til að hafa tiltæka þá skilmála sem framkvæmdaraðilinn þarf að taka mið af í áætlunum sínum við umhverfismat vegna lagningu á Blöndulínu 3. Í öðru lagi hefur sveitarfélagið gert kröfu um að verkefnaráð allra sveitarfélaga sem sett verður á laggirnar vegna byggingu línunnar láti fara fram óháð mat á forsendum og hámarkslengdum jarðstrengja á línu leiðinni. Í þriðja lagi hefur sveitarfélagið sett þá skilmála í aðalskipulagið að aðrir valkostir verði skoðaðir við mat á umhverfisáhrifum, þ.á m. Kiðaskarðsleiðin. Samkvæmt framangreindu er ljóst að sveitarfélagið hefur brugðist við þeim athugasemdum er fulltrúi VG og óháðra benti á í bókun sinni.

    Afgreiðsla 349. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 349 Þórólfur Sigjónsson kt. 270165-4359 sækir, fyrir hönd Selsbursta kt. 411298-2219 um leyfi til að byggia sólstofu við matshluta 03 á lóðinni Hofsstaðir lóð 1 (219174. Einnig er sótt um leyfi til að því að setja tímabundið frystir, kælir og geymslur við húsið. Framlögð gögn gerð af Andrési Narfa arkitekt hjá Hornsteinum ehf. Stöðuleyfi veitt til eins árs eða til 1.júni 2020. Bókun fundar Afgreiðsla 349. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 349 Þórólfur Sigjónsson kt. 270165-4359 sækir fyrir hönd Selsbursta kt. 411298-2219 um leyfi til að setja niður tímabundið til 5 ára 12 gistieiningar (hótelherbergi) á lóðinni Hofsstaðir lóð 1 (219174) Framlögð gögn gerð af Andrési Narfa arkitekt hjá Hornsteinum ehf. gera grein fyrir erindinu. Erindi frestað, erindið verður tekið til afgreiðslu þegar samþykkt deiliskipulag liggur fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 349. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 349 Felix Jósafatsson kt. 020953-3739 skv. þinglýstu umboði óskar heimildar skipulags- og byggingarnefndar til að skipta lóð úr landi jarðarinnar Húsey 146043 og að að lóðin fái heitið Húsey 1. Framlagður hnitsettur yfirlits- og afstöðuuppdrátturgerður á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni gerir grein fyrir erindinu. Númer uppdráttar er S-101 í verki 7856-01, dags. 26. mars 2019. Þá er óskað eftir því að lóðin verði leyst úr landbúnaðarnotum. Lögbýlaréttur og öll hlunnindi munu áfram tilheyra Húsey, landnr. 146043, eftir breytingar.
    Innan lóðarinnar sem verið er að stofna stendur íbúðarhús jarðarinnar, matshluti 03. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 349. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 349 Á 348 fundi Skipulags- og byggignarnefndar þann 17. maí sl var Ásdísi Magnúsdóttur kt. 171043-7199 og Sverri Magnússyni on kt. 200642-3929 eigendum frístundahússins Ásholts í Hjaltadal heimilað breyta notkun hússins. Húsið yrði skráð íbúðarhús í stað frístundahúss. Í ljósi nýrra upplýsinga sem nú liggja fyrir afturkallar Skipulags- og byggingarnefnd fyrri ákvörðun og hafnar erindinu frá ofangreindum fundi 17. maí sl.

    Bókun fundar Afgreiðsla 349. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 349 Fyrir liggur erindi eigenda Illugastaða á Laxárdal, dags. 22 og 23. maí 2019 varðandi íbúðarhús sem stóð á jörðinni. Íbúðarhúsið skemmdist í bruna 25. september 2018. Hér með staðfestist að Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki kröfur um byggingarskyldu eða endurbyggingu íbúðarhúss á jörðinni Illugastöðum á Laxárdal, landnúmer L 145897.
    Bókun fundar Afgreiðsla 349. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 349 Rúnar Númason kt. 130483-5349 og Valdís Hálfdánardóttir kt 270981-4889 sækja um heimild til að útbúa ný bílastæði vestan íbúðarhússin Suðurbraut með aðkomu frá Suðurbraut, ásamt því að stofna byggingarreit fyrir bílskúr á lóðinni með aðkomu frá Skólagötu. Framlögð afstöðumynd, uppdráttur númer S-101 í verki nr. 785301, gerður á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni, dags. 12. mars 2019 gerir grein fyrir erindinu. Erindið samþykkt.

    Bókun fundar Afgreiðsla 349. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 349 85. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar Bókun fundar Fundargerð 85. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 384. fundi sveitarstjórnar 29. maí 2019.