Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 385

Málsnúmer 2009002F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 402. fundur - 23.09.2020

Fundargerð 385. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 10. september 2020 lögð fram til afgreiðslu á 402. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Álfhildur Leifsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 Anton Kristinn Þórarinsson kt. 140379-4339, sækir um að fá úthlutaðri lóðinni Melatúni 1 á Sauðárkróki, til byggingar íbúðarhúss.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjenda.
    Bókun fundar Afgreiðsla 385. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 María Ósk Steingrímsdóttir kt. 070493-3229 og Jón Páll Júlíusson kt. 070182-3869 sækja um að fá úthlutaðri lóðinni Melatún 7, til byggingar íbúðarhúss.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjenda.
    Bókun fundar Afgreiðsla 385. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 Atli Gunnar Arnórsson f.h. landeigenda Staðarhofs í Skagafirði, landnr. 230392, óskar eftir heimild til að stofna byggingarreiti á jörðinni, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti sem unninn er af Stoð ehf. verkfræðistofu. Á byggingarreitum er fyrirhugað að reisa íbúðarhús, hesthús, vélageymslu og frístunda¬hús. Samhliða stofnun byggingarreitanna er sótt um heimild til lagningar vega skv. uppdrættinum, þar með talin heimreið frá Sauðárkróksbraut. Jákvæð umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir vegna aðkomuvegar að svæðinu. Deiliskipulagsferli er hafið fyrir svæðið.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt, að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 385. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 Ólöf Margrét Ólafsdóttir kt. 050644-4729 og Jón Torfi Snæbjörnsson kt. 270541-3059 eigendur Lónkots L146557 leggja fram hnitasettan afstöðuppdrátt sem sýnir afmörkun jarðarinnar Lónkots. Eigendur aðliggjandi jarða, Glæsibæjar L146524, Róðhóls L146580 og Höfða L146547 hafa undirritað samþykki sitt fyrir landamerkjum Lónkots. Þá óska landeigendur Lónkots eftir heimild til að skipta 39.1 ha spildu úr landi jarðarinnar, og er óskað eftir að ný spilda fái heitið Lónkot 2. Lögbýlaréttur fylgir áfram Lónkoti L146557.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 385. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 Alda Snæbjört Kristinsdóttir kt. 070768-5269 og Jón Daníel Jónsson kt. 120968-3439, leggja fram fyrirspurn, um hvort heimild fáist til að breikka innkeyrslu við Raftahlíð 59 á Sauðárkróki. Saga þarf niður steyptan vegg að hluta, um ca 2.6m.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt. Óska skal eftir umsögn sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs vegna málsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 385. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 Knútur Aadnegard leggur fram skipulagslýsingu dagsetta 5.8.2020, fyrir "Laufsali". Deiliskipulagið tekur til um 21ha svæðis og afmarkast að vestan af landamerkjum Laufhóls, að norðan af landamerkjum Ásgarðs, að austan með Siglufjarðarvegi (76) og að sunnan af Laufhólsvegi (7762). Fyrir er á svæðinu eitt heilsárshús og er áætlað að byggja annað heilsárshús, auk aðstöðuhúss og einbýlishúss. Aðkoma að svæðinu er um aðkomuveg af Siglufjarðarvegi.
    Skipulags- og byggingarnefnd mælist til að sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykki fyrirliggjandi lýsingu dagsetta 5.8.2020. Skipulagsfulltrúa er falið að senda Skipulagsstofnun lýsinguna til umsagnar skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og kynna lýsinguna almenningi skv. sömu grein skipulagslaga.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa málinu til liðar nr. 17, Miklihóll land s L221574. Deiliskipulag. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 Knútur Aadnegard kt. 020951- og Brynja Kristjánsdóttir kt. 301151-2929, eigendur lóðarinnar Miklihóll lan 2, L221574, óska eftir breyttu heiti landeignarinnar, og að landið fái heitið Laufsalir.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 385. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 Helga Júlíana G. Steinarsdóttir Kt: 111163-4729 og Tryggvi Ólafur Tryggvason Kt. 090165-5269, sækja um leyfi til að gera bílastæði vestan við húsið, með aðkomu frá Ægisstíg 10, á Sauðárkróki, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt. Óska skal eftir umsögn sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs vegna málsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 385. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 Umhverfis- og auðlindaráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til breytinga á skipulagslögum nr. 123/2010. Breytingarnar á skipulagslögum fela það í sér að heimilt verði að skipa sérstaka stjórnsýslunefnd sem hefur það hlutverk að taka sameiginlega skipulagsákvörðun sem nær til einnar framkvæmdar vegna flutningskerfis raforku, þvert á sveitarfélagsmörk. Meginhlutverk nefndarinnar yrði undirbúningur og samþykkt skipulagsákvörðunar vegna framkvæmdarinnar, útgáfa sameiginlegs framkvæmdaleyfis og yfirumsjón með eftirliti með framkvæmdinni. Slík nefnd væri skipuð fyrir hverja og eina framkvæmd í senn. Þá verður kveðið á um styttan umsagnarfrest við afmarkaðar breytingar á deiliskipulagi með það að markmiði að auka skilvirkni í stjórnsýslu vegna uppbyggingar íbúðarhúsnæðis. Þá eru áformaðar breytingar í þeim tilgangi að tryggja lagalegar forsendur fyrir stafrænni skipulagsgátt. Umsagnarfrestur er 10.09.2020. Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 385. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 Umhverfis- og auðlindaráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Þá er áformað að í frumvarpinu verði einnig lögð til breyting á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
    Áformað er að leggja til breytingu á lögum nr. 106/2000 um að leyfisveitandi geti í undantekningartilvikum, ef leyfi fyrir framkvæmd hefur verið fellt úr gildi vegna annmarka á mati á umhverfisáhrifum og sérlög sem um framkvæmdina gilda veita tímabundnar heimildir til framkvæmdar, veitt leyfi til bráðabirgða að uppfylltum tilteknum skilyrðum, m.a. að fullnægjandi umsókn um endanlegt leyfi liggi fyrir hjá leyfisveitanda og unnið verði að því að bæta úr annmörkum á mati á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar meðan umsóknin er til meðferðar. Þá verður að meta umhverfisáhrif frá upphafi framkvæmdar.
    Áformað er einnig að leggja til breytingu á lögum nr. 7/1998 að fella niður heimild ráðherra til að veita tímabundnar undanþágur frá starfsleyfi og þess í stað verði leyfisveitendum veitt heimild til útgáfu leyfis til bráðabirgða í undantekningatilvikum, að uppfylltum nánari skilyrðum. Tryggja skal aðkomu og kærurétt almennings í ferlinu.
    Umsagnarfrestur er til 17.09.2020. Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast. Niðurstöður samráðsins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem berast. Lagt fram til kynningar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 385. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 385 Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 108 Bókun fundar 108. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020.