Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 98

Málsnúmer 2204010F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 424. fundur - 04.05.2022

Fundargerð 98. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar frá 13. apríl 2022 lögð fram til afgreiðslu á 424. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 98 Á setningu Sæluviku Skagfirðinga 2022 verða í sjöunda sinn veitt Samfélagsverðlaun Skagafjarðar. Verðlaunin eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd bárust fjölmargar og afar góðar tilnefningar til Samfélagsverðlauna Skagafjarðar. Nefndin samþykkir að veita Helgu Bjarnadóttur Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2022. Helga hefur á langri ævi komið að fjölmörgum verkum sem hafa markað samfélag Skagafjarðar með jákvæðum hætti. Í nærri aldarfjórðung hefur hún, hálfsmánaðarlega yfir vetrartímann, staðið fyrir samkomum fyrir eldri borgara á Löngumýri, lengst af með nágrannakonu sinni Indu í Lauftúni. Helga hefur verið driffjöðrin í gönguhópi í Varmahlíð um langa hríð, staðið fyrir bókaútgáfu, verið meginstoð í Kvenfélagasambandi Skagafjarðar og svo mætti telja. Hún hefur um árabil séð um blómagarðinn á Löngumýri og fer gjarnan samhliða í garðverk til nágranna sinna sem eiga erfitt með slíkt. Heimsóknir til dægrastyttingar einbúum eru reglubundinn þáttur og ávallt er hún boðin og búin að rétta hjálparhönd stórum sem smáum. Hún á að baki farsælan feril sem barnakennari og skólastjóri og hafði einstaklega góð og mótandi áhrif á nemendur sína. Helga Bjarnadóttir er sannarlega verðugur handhafi Samfélagsverðlauna Skagafjarðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 98. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 98 Sveitarfélagið Skagafjörður sótti um breytingar á reglum um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 líkt og undanfarin ár. Markmið með breytingunum var að fiskiskipum sé heimilt að landa afla sínum hvar sem er innan sveitarfélagsins. Fengust breytingar á reglugerðinni og er ákvæði 1. málsl. 1.mgr. 6.gr. reglugerðarinnar nú: "Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta innan sveitarfélagsins". Komið hefur í ljós að úthlutun byggðakvóta er ekki í samræmi við ætlun sveitarfélagsins um að heimilt sé að landa afla hvar sem er innan sveitarfélagsins. Ljóst er að einnig þarf að breyta orðalagi í 4. gr. reglugerðar um úthlutun byggðakvóta þar sem orðið byggðarlag verður sveitarfélag fyrir næstu úthlutun. Gagnrýna má stuttan kærufrest og litlar leiðbeiningar frá Fiskistofu og ráðuneyti til umsækjenda um kvóta. Bókun fundar Afgreiðsla 98. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 98 Tekin fyrir styrkbeiðni frá Íbúasamtökunum Byggjum upp Hofsós og nágrenni, en samtökin stefna á að halda Bæjarhátíðina Hofsós Heim í sumar líkt og hefð er orðin fyrir.
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar framtakinu og samþykkir að veita styrk að upphæð 300.000 krónur.
    Auður Björk Birgisdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
    Bókun fundar Afgreiðsla 98. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.