Fara í efni

Starrastaðir L146225 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2401319

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 34. fundur - 14.03.2024

Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Starrastaða ehf. um leyfi til að byggja við fjárhús á jörðinni Starrastöðum, L146225. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Teiknistofu Þ. Guðmundssonar af umsækjanda. Uppdrættir eru í verki HA23136, númer A-101, A-102, A-103 og A-104, dagsettir 20.01.2024. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.