Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar

46. fundur 29. maí 2017 kl. 08:00 - 08:35 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gunnsteinn Björnsson formaður
  • Viggó Jónsson varaform.
  • Hanna Þrúður Þórðardóttir ritari
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ingi Sigfússon Verkefnastjóri
Dagskrá

1.Myndlistarsýning á Sauðárkróki sumarið 2017

Málsnúmer 1705034Vakta málsnúmer

Tekin fyrir styrkbeiðni vegna samsýningar 14 myndlistarmanna sem opnar þann 1. júlí 2017 í húsakynnum Safnahússins og á Heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar framtakinu og samþykkir að veita kr. 100.000,- til sýningarinnar sem tekið verður af fjárhagslið 05890.

2.Samningur um gamla bæinn í Glaumbæ

Málsnúmer 1705150Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Þjóðminjasafni Íslands þar sem samningi á milli safnsins og Byggðasafns Skagfirðinga er sagt upp en jafnframt óskað eftir viðræðum um nýjan samning. Þar yrði m.a. tekið tillit til varðveislu bæjarins og þess að hluti aðgangseyris að bænum renni til viðhalds og varðveislu hans.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd staðfestir móttöku uppsagnar samningsins og fagnar viðræðum um starfsemina í Glaumbæ, rekstur hennar og framtíðaruppbyggingu á svæðinu.

3.Fundur með Ferðamálastofu og MAST

Málsnúmer 1705136Vakta málsnúmer

Tekin fyrir boðun fundar Ferðamálstofu um málefni Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða sem og MAST um ýmis mál sem snúa að sveitarfélögunum.

4.Ósk um framlengingu á samningi um rekstur Félagsheimilisins Ketiláss

Málsnúmer 1705209Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Stefaníu Hjördísi Leifsdóttur, fyrir hönd Ferðaþjónustunnar Brúnastöðum ehf., þar sem óskað er eftir framlengingu á samningi um rekstur Félagsheimilisins Ketiláss.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að framlengja samninginn til 1. maí 2018 en að auglýst verði eftir rekstraraðila fyrir húsið frá þeim tíma. Auglýst verði eigi síðar en haustið 2017.

Fundi slitið - kl. 08:35.