Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar

54. fundur 09. febrúar 2018 kl. 15:00 - 15:50 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gunnsteinn Björnsson formaður
  • Viggó Jónsson varaform.
  • Hanna Þrúður Þórðardóttir ritari
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon verkefnastjóri
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ingi Sigfússon Verkefnastjóri
Dagskrá

1.Framtíðarstarfsemi í Sólgarðaskóla

Málsnúmer 1712208Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir erindi frá aðstandendum Sólgarðaskóla, dags. 21. desember 2017, og býður forsvarsmönnum hópsins á næsta fund nefndarinnar til að ræða tilhögun starfshóps og næstu skref, m.a. í því ljósi að einn forsvarsmanna hópsins hefur reifað þá hugmynd að taka húsnæðið til leigu til lengri tíma, sbr. fundargerð fræðslunefndar dags. 8. febrúar 2018. Starfsmönnum nefndarinnar er falið að tilkynna forsvarsmönnum hópsins um dagsetningu næsta fundar.

2.Menningarhús og félagsheimili í Skagafirði - eignarhald

Málsnúmer 1703293Vakta málsnúmer

Tekin fyrir drög að erindi til meðeigenda að félagsheimilum í Skagafirði þar sem ætlunin er að skrá og skýra eignarhald félagsheimilanna, þar sem eignarhald er óskýrt samkvæmt þinglýsingabókum. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og felur Pacta lögmönnum að ganga frá erindinu til meðeigenda félagsheimilanna.
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

3.Atvinnulífssýning 5.-6. maí 2018

Málsnúmer 1802042Vakta málsnúmer

Fjallað um fyrirhugaða atvinnulífssýningu í íþróttahúsinu á Sauðárkróki dagana 5.-6. maí nk. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmönnum að vinna áfram að undirbúningi sýningarinnar og kynningu á henni.

4.Samstarfshópur Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði

Málsnúmer 1712185Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Félagi ferðaþjónustunnar í Skagafirði, frá 15. janúar 2018, þar sem tilkynnt er um fulltrúa félagsins í samstarfshóp með fulltrúum sveitarfélagsins, til eflingar ferðaþjónustu í Skagafirði. Hópinn skipa Gunnsteinn Björnsson, Hanna Þrúður Þórðardóttir, Jónheiður Sigurðardóttir, Stefanía Hjördís Leifsdóttir og Jóhanna Ey Harðardóttir.

5.Styrkbeiðni vegna starfsemi á árinu 2018

Málsnúmer 1802062Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sögusetri íslenska hestsins, dags. 7. febrúar 2018, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 1.500.000,- til starfsemi þess á árinu 2018.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að styrkja Sögusetrið um kr. 1.500.000,- sem tekin verður af lið 05890.

6.Styrkbeiðni vegna jólaballs á Ketilási

Málsnúmer 1801028Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá forsvarsmönnum jólaballskemmtunar á Ketilási í Fljótum 2017, frá 3. janúar 2018, þar sem óskað er eftir styrk til að halda árlega jólaballskemmtun.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að veita styrk til skemmtunarinnar að upphæð kr. 45.000,- sem tekin skal af lið 05713 á árinu 2017.

7.Styrkbeiðni vegna jólatrésskemmtunar á Hofsósi

Málsnúmer 1801024Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá undirbúningsnefnd jólatrésskemmtunar á Hofsósi 2017, frá 2. janúar 2018, þar sem óskað er eftir styrk til að halda árlega jólatrésskemmtun.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að veita styrk til nefndarinnar að upphæð kr. 45.000,- sem tekin skal af lið 05713 á árinu 2017.

Fundi slitið - kl. 15:50.