Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar

91. fundur 20. september 2021 kl. 13:30 - 14:34 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gunnsteinn Björnsson formaður
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varaform.
  • Ragnheiður Halldórsdóttir ritari
  • Inga Katrín D. Magnúsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson Verkefnastjóri
Dagskrá
Ragnheiður Halldórsdóttir tók þátt í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Vígsla á fjallkonu kyrtli

Málsnúmer 2109165Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Ástu Ólöfu Jónsdóttur fyrir hönd Pilsaþyts dagsett 15.09.21 vegna vígslu á fjallkonu kyrtli. Fyrirhugað er að halda vígslu á fjallkonu kyrtli þann 1. desember nk. með viðhöfn. Farið er þess á leit að sveitarfélagið komi að umsjón með viðburðinum ásamt Pilsaþyt og einnig að sveitarfélagið komi upp sýningarskáp í Safnahúsinu á Sauðárkróki þar sem hann verður til sýnis.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd tekur vel í erindið og felur starfsmönnum nefndarinnar að vinna með Pilsaþyt að viðburðinum og fyrirhuguðu sýningarrými í Safnahúsinu á Sauðárkróki.

2.Menningarhúsið Miðgarður 2021

Málsnúmer 2107028Vakta málsnúmer

Teknar fyrir umsóknir um rekstur Menningarhússins Miðgarðs sem auglýst var 7. júlí 2021. Tvær umsóknir bárust og nefndin þakkar góðar umsóknir.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmönnum nefndarinnar að ganga til samninga við Sigurlaugu Vordísi Eysteinsdóttur og Sigfús Arnar Benediktsson um rekstur Menningarhússins Miðgarðs.

3.Uppsögn á leigulandi, Mælifellsá

Málsnúmer 2109219Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að segja upp leigusamningi frá 1998 á leigulandi í landi Syðri-Mælifellsár.

4.Matarkistan Skagafjörður

Málsnúmer 2109202Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar verkefni á vegum Matarkistu Skagafjarðar.
Unnið er að uppfærslu á heimasíðu og endurbættri stefnumörkun fyrir Matarkistuna.

5.Fundagerðir Markaðsstofa Norðurlands

Málsnúmer 2002045Vakta málsnúmer

Lagðar fram fundargerðir frá Markaðsstofu Norðurlands.

Fundi slitið - kl. 14:34.