Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar

97. fundur 17. mars 2022 kl. 16:00 - 16:30 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Gunnsteinn Björnsson formaður
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varaform.
  • Ragnheiður Halldórsdóttir ritari
  • Auður Björk Birgisdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Heba Guðmundsdóttir Verkefnastjóri
Dagskrá

1.Styrkbeiðni vegna skemmtunar fyrir börn

Málsnúmer 2203132Vakta málsnúmer

Tekin fyrir styrkbeiðni frá Videosport ehf. vegna viðburðar í Ljósheimum fyrir leikskólabörn í Sveitarfélaginu Skagafirði . Til stendur að fá Íþróttaálfinn og Sollu stirðu til að skemmta börnum á leikskólaaldri. Til þess að hægt sé að bjóða börnum frítt á viðburðinn óska þau eftir styrk að upphæð 150.000 kr.

Atvinnu-, menningar-, og kynningarnefnd fagnar erindinu og samþykkir að veita styrk að upphæð 150.000 kr.

2.Sæluvika Skagfirðinga 2022

Málsnúmer 2203131Vakta málsnúmer

Sæluvika Skagfirðinga verður haldin dagana 24. - 30. apríl nk. Til stendur að halda Sæluviku með hefðbundnum hætti þar sem engar samkomutakmarkanir eru í gildi. Setning Sæluviku verður í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 24. apríl. Þar verða úrslit hinnar árlegu Vísnakeppni tilkynnt og Samfélagsverðlaun Skagafjarðar verða veitt. Auglýst hefur verið eftir áhugasömum aðilum til þess að halda viðburði á Sæluviku.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmönnum að óska eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar, en Samfélagsverðlaun Skagafjarðar eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd hvetur einnig áhugasama til þess að standa fyrir viðburði í Sæluviku.

Fundi slitið - kl. 16:30.