Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

750. fundur 13. júlí 2016 kl. 09:00 - 11:00 Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Ásta Björg Pálmadótttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Stefnumótandi byggðaáætlun

Málsnúmer 1606053Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 8. júní 2016 frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra varðandi stefnumótandi byggðaáætlun 2017-2023 sem Byggðastofnun vinnur nú að. Óskað er eftir upplýsingum um það hverjar eru áherslur aðildarsveitarfélaga SSNV varðandi Byggðaáætlun. Málið áður á dagskrá byggðarráðs 16.júní s.l. og 7.júlí s.l.
Unnið áfram með málið.

2.Háskólinn á Hólum

Málsnúmer 1607050Vakta málsnúmer

Háskólinn á Hólum er ein af grunnstoðum í skagfirsku samfélagi og verður mikilvægi hans seint að fullu metið. Það að vera með öll skólastig innan héraðs, frá leikskóla til háskóla gefur Skagafirði tækifæri sem mikilvægt er að nýta til framfara fyrir íbúa og atvinnulíf í Skagafirði.

Nú er nýlokið glæsilegu landsmóti hestamanna á Hólum og mun sú mikla og mikilvæga uppbygging sem þar hefur átt sér stað nýtast skólanum til sóknar um ókomna tíð. Mikilvægt er fyrir okkur Skagfirðinga að fylgja eftir þeirri jákvæðu umræðu sem Hólar fengu í kjölfar landsmóts til að sækja fram fyrir skólann enda er Háskólinn á Hólum æðsta menntastofnum íslenska hestsins í heiminum. Er það okkar að tryggja að svo verði áfram.

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar formlega eftir samstarfi við stjórnvöld og Landsamband hestamannafélaga um að Hólar í Hjaltadal verði gerður að þjóðarleikvangi íslenska hestsins. Sú umgjörð sem þar hefur verið sköpuð er einstök á heimsvísu og öll uppbygging í fortíð, nútíð og framtíð mun nýtast Háskólanum á Hólum, styrkja stöðu hans og festa enn frekar í sessi.

Byggðarráð vill jafnframt ítreka að tryggja þarf sjálfbærni í gæða- og rekstrarmálum skólans. Auka þarf rekstrarfé til skólans og tryggja rekstrargrundvöll hans til framtíðar. Taka þarf af uppsafnaðan halla sem safnast hefur upp á undanförnum árum meðal annars vegna þess að fjárframlög til skólans hafa ekki verið í samræmi við rekstrarforsendur og veita þar með skólanum andrými tl framþróunar. Styrkja þarf net opinberu háskólanna en háskólanetið er ein af forsendum samstarfs háskólanna á Íslandi og lykilþáttur í samstarfi þeirra í milli.

Byggðarráð skorar á ráðherra að setja af stað vinnu við að skoða allar mögulegar útfærslur með það að markmiði að styrkja Háskólann á Hólum sem sjálfstæða menntastofnun og tryggja til framtíðar að yfirstjórn og umsjón haldist í Skagafirði.

3.Loðskinn ehf

Málsnúmer 1607051Vakta málsnúmer

Gunnsteinn Björnsson kom á fundinn og fór yfir stöðu fyrirtækisins.

4.Íslensku safnverðlaunin 2016

Málsnúmer 1607052Vakta málsnúmer

Byggðasafn Skagfirðinga er tilnefnt til Íslensku safnverðlaunanna árið 2016. Árið 2010 var það einnig tilnefnt til hinna sömu verðlauna þannig að þetta er í annað sinn sem safnið hlýtur tilnefningu.

Fundi slitið - kl. 11:00.