Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

811. fundur 19. janúar 2018 kl. 12:00 - 14:20 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Brú lífeyrissjóður - breyting á A deild

Málsnúmer 1703264Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Brú-lífeyrissjóð þar sem kemur fram að greiðslufrestur er framlengdur til 15.febrúar n.k. á uppgjöri vegna breytinga á A deild Brúar lífeyrissjóðs.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi uppgjör launagreiðenda til A deildar Brúar lífeyrissjóðs með fyrirvara um yfirferð umbeðinna gagna.
Byggðarráð samþykkir einnig að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga til greiðslu uppgjörs og felur sveitarstjóra að óska eftir láni hjá sjóðnum.

2.Skagfirskar leiguíbúðir hses

Málsnúmer 1610156Vakta málsnúmer

Á 810.fundi Byggðarráðs var ákveðið að kjósa í nýja stjórn Skagfirskra leiguíbúða hses.
Í stjórn eru tilnefndir: Sigríður Magnúsdóttir, Gísli Sigurðsson og Sigurjón Þórðarson.
Í varastjórn eru tilnefndir: Sigríður Svavarsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Steinunn Rósa Guðmundsdóttir.

3.Umsagnarbeiðni frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga

Málsnúmer 1712160Vakta málsnúmer

Byggðarráð tekur undir umsögn Félags-og tómstundanefndar sem og umsögn sambandsins. Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

4.Umsagnarbeiðni um frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir

Málsnúmer 1712159Vakta málsnúmer

Byggðarráð tekur undir umsögn Félags-og tómstundanefndar sem og umsögn sambandsins. Byggðarráð felur sveitarstjóra að ganga frá umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

5.Erindi Dómstólasýslunnar til lögmannafélagsins um fækkun reglulegra dómþinga

Málsnúmer 1712222Vakta málsnúmer

Byggðarráð ítrekar fyrri bókun sína um fækkun dómþinga og óskar eftir samráði og samvinnu um allar breytingar sem kunna að verða á starfssemi Héraðsdóms Norðurlands vestra. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar mótmælir því harðlega að annað verklag sé viðhaft. Byggðarráð skorar á ráðherra að standa vörð um Héraðsdóm Norðurlands vestra og tryggja að tíðni reglulegra dómþinga verði ekki skert. Ljóst er að með því að fækka reglulegum dómþingum myndi þjónusta við íbúa svæðisins skerðast og er það verulega afleit byggðastefna. Samfara boðaðri eflingu dómstiga í landinu skorar byggðarráð á ráðherra að líta til að styrkja Héraðsdóm Norðurlands vestra frekar en að veikja hann.

6.Trúnaðarmál

Málsnúmer 1710129Vakta málsnúmer

Niðurstaða fundar færð í trúnaðarbók.

7.Persónuvernd

Málsnúmer 1801137Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem felur í sér leiðbeiningar á því hvernig Sambandið telur að innleiðingaferli geti litið út við innleiðingu á persónuverndarlöggjöf hjá sveitarfélögum.



8.Námskeið

Málsnúmer 1801141Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Ráðrík ehf. til kynningar á námskeiði sem fyrirtækið heldur. Meginmarkmið námskeiðsins er að höfða til hins almenna íbúa, vekja áhuga hans á sveitarstjórnarmálum og hvetja hann til þátttöku.
Sveitarstjóra falið að afla frekari gagna.

9.Samráðslýðræði í sveitarfélögum - kynning

Málsnúmer 1801132Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur til kynningar frá Róbert Bjarnasyni um samráðslýðræði í sveitarfélögum.

10.Fundur og ályktanir EES EFTA sveitarstjórnarvettvangsins 16.-17. nóvember sl.

Málsnúmer 1801139Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til kynningar um fundi og ályktanir EES EFTA sveitarstjórnarvettvangsins.

11.Ábendingar hvernig verjast skal spillingu í opinberum innkaupum

Málsnúmer 1801135Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um ábendingar um hvernig hægt sé að verjast spillingu í opinberum innkaupum.

12.Fundagerðir stjórnar SSNV 2018

Málsnúmer 1801002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar SSNV frá 9.janúar 2018.

13.Fundargerðir stjórnar MN

Málsnúmer 1801138Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Markaðsstofu Norðurlands frá 11.desember 2017.

Fundi slitið - kl. 14:20.