Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

812. fundur 24. janúar 2018 kl. 08:30 - 09:22 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Aðalgata 8 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1801173Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 19. janúar 2018 úr máli nr. 1801296 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Óskað er umsagnar um umsókn 29 13 ehf., kt. 660917-0980 um leyfi til að reka veitingahús í flokki III að Aðalgötu 8, 550 Sauðárkróki með útiveitingum 2-4 borð. Fyrirtækið 13 29 ehf. var áður rekstraraðili Hard Wok Cafe.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

2.Beiðni um lækkun fasteignaskatts

Málsnúmer 1801118Vakta málsnúmer

Sjá trúnaðarbók.

3.Áskorun frá Markaðsstofu Norðurlands vegna uppbyggingar á Akureyrarflugvelli til millilandaflugs

Málsnúmer 1801187Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Markaðsstofu Norðurlands dagsett 22. janúar 2018, varðandi áskorun vegna uppbyggingar á Akureyrarflugvelli til millilandaflugs. Markaðsstofa Norðurlands skorar á stjórnvöld að tryggja strax fjármagn til þess að kaupa og setja upp ILS aðflugsbúnað fyrir aðflug úr norðri á Akureyrarflugvelli. Jafnframt að gerð verði áætlun, og hún fjármögnuð, um uppbyggingu á Akureyrarflugvelli til framtíðar svo hann geti þjónað hlutverki sínu sem varaflugvöllur og millilandaflugvöllur Norðurlands. Það felur m.a. í sér stækkun flugstöðvarinnar, stækkun flughlaðsins og að tryggja að flugvöllurinn sé sem best tækjum búinn.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir því að fulltrúi stjórnar og framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands komi á næsta fund byggðarráðs til viðræðu.

4.Kjörstaðir - Sveitarstjórnarkosningar 26. maí 2018

Málsnúmer 1801185Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að kjörstaðir verði á eftirtöldum stöðum í Sveitarfélaginu Skagafirði við sveitarstjórnarkosningnar 26. maí 2018:
Félagsheimilinu Árgarði, Varmahlíðarskóla, Bóknámshús FNV, Sauðárkróki, Félagsheimilinu Skagaseli, Grunnskólanum að Hólum, Félagsheimilinu Höfðaborg, Hofsósi, Grunnskólanum að Sólgörðum og Heilbr.stofnuninni á Sauðárkróki.

Fundi slitið - kl. 09:22.