Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

857. fundur 13. febrúar 2019 kl. 11:30 - 12:46 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir varam.
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Iðutún 2 og Iðutún 21 Sauðárkróki - Umsóknir um lóðir

Málsnúmer 1902090Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur að úthluta lóðunum Iðutún 2 og Iðutún 21. Björn Ingi Óskarsson fulltrúi hjá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra sá um framkvæmd á útdrætti á milli umsækjanda hvorrar lóðar fyrir sig. Viðstödd voru umsækjendur og/eða fulltrúar þeirra.
Fyrst var dregið um lóðina Iðutún 21. Þrjár umsóknir bárust um lóðina. Umsækjendur eru Jóhann Helgason og Arna Ingimundardóttir, Sverrir Pétursson, Gunnar Anton Njáll Gunnarsson og Vala María Kristjánsdóttir.
Jóhann Helgason og Arna Ingimundardóttir voru dregin út sem lóðarhafar.

Þrjár umsóknir bárust um lóðina Iðutún 2. Umsækjendur eru Jóhann Helgason og Arna Ingimundardóttir, Guðmundur Helgi Loftsson og Helga Fanney Salmannsdóttir, Sverrir Pétursson. Jóhann Helgason og Arna Ingimundardóttir drógu umsókn sína til baka þannig að dregið var á milli tveggja umsækjanda.
Sverrir Pétursson var dreginn út sem lóðarhafi.

Byggðarráð samþykkir framkvæmd úthlutunar og úthlutar lóðinni Iðutún 2 til Sverris Péturssonar og lóðinni Iðutún 21 er úthlutað til Jóhanns Helgasonar og Örnu Ingimundardóttur.

2.Fyrirspurn um kaup á húsi

Málsnúmer 1902031Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 4. febrúar 2019 þar sem Númi Jónsson spyrst fyrir um hvort vilji sé til að selja honum fasteignina sem hann leigir nú af sveitarfélaginu, svokallað skólastjórahús að Sólgörðum í Fljótum.
Byggðarráð samþykkir að fasteignin verði ekki seld að svo komnu máli á meðan vinna er í gangi um framtíð staðarins.

3.Félagsheimilið Melsgil

Málsnúmer 1902079Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 8. febrúar 2019 frá hússtjórn Félagsheimilisins Melsgils þar sem óskað er liðsinnis byggðarráðs við að íhlutast um að vegurinn heim að félagsheimilinu verði lagfærður.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að beina því til veitu- og framkvæmdasviðs til skoðunar.

4.Kjörnefnd Lánasjóðs sveitarfélaga ohf

Málsnúmer 1902085Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga dagsett 11. febrúar 2019 þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Kjörnefnd óskar eftir að tilnefningar og/eða framboð sé send í síðasta lagi á hádegi þann 4. mars 2019.
Byggðarráð samþykkir að bréfið verði kynnt sveitarstjórnarmönnum.

5.Ráðgefandi hópur um aðgengismál

Málsnúmer 1902032Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að eftirtalin skipi ráðgefandi hóp um aðgengismál:
Ingibjörg Huld Þórðardóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir eru fulltrúar sveitarfélagsins. Ólafur Rafn Ólafsson frá Sjálfsbjörg og Sigríður Gunnarsdóttir frá Þroskahjálp.

6.Beiðni um undanþágu fasteignaskatts

Málsnúmer 1811199Vakta málsnúmer

Vesturfarasetrið ses. hefur óskað eftir rökstuðningi vegna ákvörðunar byggðarráðs þann 16. janúar 2019.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að svara erindinu samkvæmt umræðu á fundinum.

7.Beiðni um lækkun fasteignaskatts

Málsnúmer 1902029Vakta málsnúmer

Með bréfi dagsettu 4. febrúar 2019 sækir Frímúrarastúkan Mælifell, kt. 580490-1079 um styrk til greiðslu fasteignaskatts skv. 2. mgr., 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Byggðarráð samþykkir í ljósi fyrirliggjandi gagna og með vísan til reglna sveitarfélagsins að veita styrk sem nemur 30% af álögðum fasteignaskatti árins 2019.
Gísli Sigurðsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

8.Umsagnarbeiðni tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030

Málsnúmer 1902061Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 7. febrúar 2019 frá nefndasviði Alþingis. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, 509. mál.

9.Umagnarbeiðni frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd

Málsnúmer 1902060Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 6. febrúar 2019 frá nefndasviði Alþingis. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (stofnanir á málefnasviði félags- og barnamálaráðherra), 495. mál.

10.Miðhálendisþjóðgarður bókun Húnavatnshrepps

Málsnúmer 1902044Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 31. janúar 2019 frá Húnavatnshreppi varðandi bókun sveitarstjórnar á 213. fundi þann 30. janúar 2019.

Fundi slitið - kl. 12:46.