Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

883. fundur 09. október 2019 kl. 11:30 - 14:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2020 - 2024

Málsnúmer 1908008Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn varðandi fjárhagsáætlun 2020-2024.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsramma 2020-2024 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar og umfjöllunar í nefndum. Byggðarráð samþykkir einnig að fyrri umræða í sveitarstjórn verði 13. nóvember n.k. og síðari umræða verði 11. desember 2019.

2.Tillaga fyrir byggðarráð

Málsnúmer 1910056Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að standa fyrir íbúafundum á Hofsósi, Hólum, Varmahlíð og Sauðárkróki haustið 2019 í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar 2020-2024. Á þeim fundum verður leitast við að fá fram sjónarmið íbúa um þjónustu, framkvæmdir og rekstur sveitarfélagsins á tímabilinu.

3.Tillaga fyrir byggðarráð

Málsnúmer 1910051Vakta málsnúmer

Bjarni Jónsson fulltrúi VG og óháðra leggur fram svohljóðandi tillögu:
Byggðaráð sem jafnframt er stjórn eignasjóðs, samþykkir að fara ásamt starfsmönnum eignasjóðs í kynnisferð um sveitarfélagið til að kynna sér ástand og viðhaldsþörf húseigna og aðstöðu stofnanna sveitarfélagsins. Verði það gert sem liður í undirbúningi fjárhagsáætlunar og mati og ákvarðanatöku um viðhaldsþörf og endurbætur á húseignum og aðstöðu stofnanna sveitarfélagsins. Slík vettvangsathugun var framkvæmd að tillögu undirritaðs sl. haust og reyndist afar gagnleg fyrir þá vinnu.
Byggðarráð samþykkir tillöguna.

4.Forkaupsréttur sveitarfélags

Málsnúmer 1910043Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 23. september 2019 frá FISK-Seafood ehf. þar sem Sveitarfélaginu Skagafirði er boðinn forkaupsréttur að skipinu Hannesi Andréssyni SH-737, skipaskrárnúmer 1371, með vísan til 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/206 um stjórn fiskveiða. Ætlun fyrirtækisins er að selja skipið án aflahlutdeilda sem hafa verið og verða fluttar á önnur skip FISK-Seafood ehf.
Byggðarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti sveitarfélagsins.

5.Jafnréttisstefna 2018-2022

Málsnúmer 1809026Vakta málsnúmer

Á fundi félags- og tómstundanefndar þann 26. ágúst s.l. samþykkti nefndin að leita eftir umfjöllun og umsögn annarra fagnefnda sveitarfélagsins um Jafnréttisstefnu 2018-2022.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera tillögu að breytingu að Jafnréttisstefnu 2018-2022 og aðgerðaráætlun í samræmi við umræður á fundinum. Stefnan verði rædd aftur á næsta fundi byggðarráðs.

6.Erindi frá Háskólanum á Hólum

Málsnúmer 1909216Vakta málsnúmer

Erindið áður á dagskrá 882. fundar byggðarráðs þann 1. október 2019. Í framhaldi af vinnu Háskólans á Hólum við sjálfsmatsskýrslu um skólann kom fram vilji hjá háskólaráði að stofnaður yrði starfshópur, skipaður af fulltrúum ráðsins og sveitarfélagsins, til að vinna sameiginlega að sem bestum framgangi Háskólans á Hólum.
Byggðarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins.

7.Fyrirspurn vegna kostnaðar við Byggðasafnið

Málsnúmer 1910042Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 27. september 2019 frá Álfhildi Leifsdóttur þar sem hún innir eftir upplýsingum varðandi málefni Byggðasafns Skagfirðinga og óskar eftir að svör við spurningum hennar verði gerð opinber. Sveitarstjóri lagði fram skrifleg svör við fyrirspurnum Álfhildar sem birt verða á heimasíðu sveitarfélagsins.

Bjarni Jónsson, VG og óháðum óskar bókað:
"Sú biðstaða og óvissa sem ríkir um það fjölbreytta starf sem Byggðasafnið hefur staðið fyrir er áhyggjuefni og óviðunandi. Fornleifadeildin er á krossgötum og hluti safnins komið í ótímabundna geymslu, svo fátt eitt sé nefnt. Mikilvægt er að sveitarfélagið hlúi sem best að starfsfólki Byggðasafnsins og búi því hvetjandi starfsumhverfi.
Af svörum við fyrirspurn um stöðu Byggðasafnsins að dæma ríkir enn mikil óvissa um hvenær og hvernig bætt verður úr aðstöðu Byggðasafnsins fyrir starfsemi og sýningarhald og ljóst að núverandi staða er sveitarfélaginu og safninu kostnaðarsöm, svo sem vegna geymslurýmis, varðveisluvinnu og húsaleigu í gamla Minjahúsinu sem komið er úr eigu sveitarfélagsins."

Ólafur Bjarni Haraldsson, ByggðaLista óskar bókað:
"Það að fasteigninni að Aðalgötu 16b (Minjahús) var ráðstafað, áður en safninu var fundin varanlegur staður er orðið mjög kostnaðarsamt fyrir sveitarfélagið og má þar nefna yfir 10 milljón króna leigugreiðslur af eigninni. Þrátt fyrir að aðstaðan fyrir varðveislu muna í Minjahúsinu á Sauðárkróki hafi ekki þótt boðleg til langframa, þá hefði verið mun farsælla að finna safninu varanlegan stað áður en eigninni var ráðstafað. Einnig má ætla að núverandi ástand hamli mjög starfsemi Byggðasafnsins og er það miður."

Fulltrúar meirihluta byggðarráðs, Stefán Vagn Stefánsson, Framsóknarflokki og Gísli Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki, óskað bókað:
"Nú er verið að leggja loka hönd á tímabundið geymsluhúsnæði fyrir byggðasafnið sem mun leysa núverandi húsnæði af hólmi sem uppfyllti ekki kröfur safnsins. Framtíðarsýn varðandi varðveislurými byggðasafnsins er skýr, en gert er ráð fyrir fullkomnu varðveislurýmis í nýju menningarhúsi og fyrir fundinum liggja drög af samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki. Fulltrúar meirihluta eru ósammála því að óvissa ríki um starfssemi byggðasafnsins og vonast til að flutningur í nýtt húsnæði dragist ekki frekar en orðið er."

8.Styrkbeiðni; Messuferð Krikjukórs Glaumbæjarprestakalls til Edinborgar

Málsnúmer 1910009Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá kirkjukór Glaumbæjarprestakalls, dagsett 29. september 2019, þar sem kórinn óskar eftir fjárstuðningi til messuferðar til Edinborgar í Skotlandi.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar.
Ólafur Bjarni Haraldsson vék af fundi undir afgreiðslu þessa máls.

9.Samkomulag um menningarhús í Skagafirði

Málsnúmer 1909244Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að samkomulagi milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og sveitarfélaganna í Skagafirði um byggingu menningarhúss í Skagafirði. Markmið samkomulagsins er eftirfarandi:
Til grundvallar samkomulagi þessu er viljayfirlýsing um fjármögnun og undirbúning byggingar menningarhúss í Skagafirði, dagsett 5. maí 2018. Samkomulag er milli aðila um áframhaldandi samstarf og að stofnframlagi verði varið til viðbyggingar og endurbóta á Safnahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki. Þar mun rúmast bókasafn, listasafn, skjalasafn auk rýmis fyrir varðveislu og sviðslistir.
Markmið samkomulagsins er að framangreindar byggingar verði ekki einungis vettvangur fyrir safnastarfsemi og sviðslistir á Sauðárkróki heldur að gegni einnig húsin lykilhlutverki sem slík í Skagafirði og á Norðurlandi vestra. Gert er því ráð fyrir að nágrannasveitarfélög og íbúar þeirra hafi afnotarétt af menningarhúsunum eins og við verður komið, enda séu slík afnot í samræmi við almenna nýtingu húsanna.
Byggðarráð samþykkir að forsætisráðherra verði boðið sérstaklega til undirskriftar samkomulags um byggingu menningahúss í Skagafirði þegar þar að kemur, á milli mennta- og menningarmálaráðuneytis fyrir hönd stjórnarráðsins og sveitarfélaganna í Skagafirði.

Fundi slitið - kl. 14:00.