Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

899. fundur 29. janúar 2020 kl. 11:30 - 13:43 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varam.
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir varam.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar var samþykkt samhljóða að taka eftirtalin mál á dagskrá með afbrigðum.
2001233 Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2020-2024.
1912057 Auglýsing sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs.

1.Tillaga - ósk um fund

Málsnúmer 2001059Vakta málsnúmer

Á fund byggðarráðs komu Ari Jóhann Sigurðsson formaður Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra og Sigurjón Þórðarson heilbrigðisfulltrúi Norðurlands vestra til viðræðu um stöðu mála varðandi bensínleka á Hofsósi. Forstjóri N1 ehf. mun koma til viðræðu á næsta fund ráðsins.

2.Fyrirspurn

Málsnúmer 2001231Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 26. janúar 2020, frá Álfhildi Leifsdóttur þar sem hún óskar eftir svörum við eftirfarandi spurningum:

1. Hvenær er áætlað að Sveitarfélagið Skagafjörður hætti að greiða leigu fyrir Minjahúsið í ljósi þess að Byggðarsafn Skagfirðinga er að flytja í þar til gert geymsluhúsnæði?
Svar: Í fjárhagsáætlun ársins 2020 er gert ráð fyrir 3 mkr. í leigu fyrir afnot af
Minjahúsinu. Flutningar eru þó langt komnir í nýtt varðveislurými að Borgarflöt og
líklegt að unnt verði að segja upp leiguafnotum a.m.k. efri hæðar Minjahúss innan
skamms og neðri hæð síðar á árinu þegar flutningum er að fullu lokið.

2. Í Greinargerð umhverfisstefnu fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð fyrir árið 2020
-2040 segir: "Sveitarfélagið Skagafjörður hefur verið leiðandi í úrgangsmálum og sorpflokkun á Íslandi og skal stefnt á að gera enn betur á því sviði, sér í lagi í dreifbýli."
Hver er stefna sveitarfélagsins hvað varðar sorphirðu í dreifbýli? Verður haldið áfram
með tilraunaverkefni með flokkun í Hegranesi sem ánægja hefur verið með og það
útvíkkað á fleiri svæði?
Svar: Á vegum um hverfis- og samgöngunefndar er unnið að stefnumótun varðandi
sorphirðu í dreifbýli. Ljóst er að leita þarf leiða til að minnka útgjöld og/eða afla aukinna tekna í málaflokknum sem rekinn hefur verið með miklum halla undanfarin ár og er bilið milli gjalda og tekna mun meira í dreifbýli en þéttbýli.
Nú í ár verður unnið að uppbyggingu gámasvæðis við Varmahlíð en fyrir áramót var
skrifað undir verksamning við lægstbjóðanda vegna verksins. Einnig er stefnt á að klára hönnun og hefja vinnu við samskonar svæði á Hofsósi á þessu ári. Ný gámasvæði verða afgirt og þannig útbúin að auka megi flokkunina enn frekar á þeim úrgangi sem þangað berst. Gert er ráð fyrir að svæðin verði mönnuð á opnunartímum en að einnig verði hægt að koma með óflokkað og flokkað sorp utan opnunartíma. Útfærsla og stefna stjórnvalda varðandi flokkun liggur ekki fyrir en umhverfisráðherra ætlar að leggja fram á vorþingi frumvarp til breytinga á lögum um úrgangsmál. Í þeim tillögum verður líklega lagt upp með skyldu á flokkun á heimilisúrgangi, samræmdar merkingar úrgangsflokka o.s.frv., en ekki liggur fyrir nánari útfærsla þess af hálfu ráðherra. Sveitarfélög landsins fylgjast átekta með því sem fram muni koma í frumvarpinu, hversu langt þær skyldur muni ganga og hvort eitthvert fjármagn fylgi með auknum skyldum eða hvort kostnaðurinn eigi alfarið að lenda á notendum þjónustunnar.

3.Viðauki 10 við fjárhagsáætlun 2019-2023

Málsnúmer 2001224Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki nr. 10 við fjárhagsáætlun 2019. Viðaukinn er gerður til að hækka framlag til fjárfestinga eignasjóðs og til að bakfæra áætlaða sölu fasteigna. Óráðstöfuðum fjármunum í launapotti er ráðstafað á málaflokka 02 og 04. Gerðar eru millifærslur vegna útgjalda á milli málaflokka í A hluta. Tekjur í A hluta vegna Jöfnunarsjóðs eru hækkaðar um 16,3 mkr. Rekstrarframlag til B hluta er hækkað um 7 mkr.
Samtals mynda breytingar í rekstri A og B hluta rekstrarafgang að fjárhæð 38,0 mkr. og heildaráhrif á sjóðstreymi er að handbært fé lækkar um 5,6 mkr.
Byggðarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2020-2024

Málsnúmer 2001233Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2020 vegna sölu fasteigna. Breytingarnar eiga við um A hluta sveitarsjóðs. Eignir eru lækkaðar um 4,4 mkr., rekstrarafgangur hækkar um 56,3 mkr. og handbært fé hækkar um 60,7 mkr.
Byggðarráð samþykkir viðaukann og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Auglýsing sviðsstjóri veitu og framkvæmdasviðs

Málsnúmer 1912057Vakta málsnúmer

Farið yfir ráðningarferli sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs. Þóra Pétursdóttir ráðgjafi hjá Capacent var í símasambandi við fundarmenn og kynnti niðurstöðu, úrvinnslu og greiningu umsókna að loknum viðtölum við umsækjendur.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við þann aðila sem hæst skoraði af þeim umsækjendum sem boðaðir voru í viðtal.

6.Samráð; Landgræðsluáætlun - drög að lýsingu

Málsnúmer 2001191Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 21. janúar 2020. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 12/2020, "Landgræðsluáætlun - drög að lýsingu". Umsagnarfrestur er til og með 03.03.2020.

7.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 541990 um innflutning dýra.

Málsnúmer 2001179Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 20. janúar 2020. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 11/2020, "Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra.". Umsagnarfrestur er til og með 30.01.2020.

8.35. landsþing SÍS

Málsnúmer 2001186Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 20. janúar 2020, þar sem boðað er til XXXV. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 26. mars 2020. Landsþingið verður haldið í Reykjavík.

Fundi slitið - kl. 13:43.