Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

982. fundur 22. september 2021 kl. 14:00 - 15:54 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varam.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Stuðningsverkefni vegna innleiðingar heimsmarkmiðanna í sveitarfélögum

Málsnúmer 2109217Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 17. september 2021 frá Sambandi sveitarfélaga til allra sveitarfélaga varðandi innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í íslenskum sveitarfélögum, stuðningsverkefni frá hausti 2021 til vors 2022. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur fengið styrk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að styðja við innleiðingu heimsmarkmiðanna í sveitarfélögum á grundvelli verkfærakistu um heimsmarkmiðin fyrir sveitarfélög sem kom út í maí 2021. Umsókn um þátttöku skal hafa borist fyrir 15. október n.k. og styðjast við samþykkt sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að sækja um þátttöku í verkefninu. Einnig samþykkir byggðarráð að fulltrúar sveitarfélagsins verði Gísli Sigurðsson formaður byggðarráðs og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri.

2.Viðauki 6 við fjárhagsáætlun 2021

Málsnúmer 2109152Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun ársins 2021. Í viðaukanum eru gerðar leiðréttingar á efnahagsliðum áætlunar 2021 með tilliti til niðurstöðu ársreiknings 2020. Fjárfestingaliður eignasjóðs er hækkaður um 220.775 þkr. og fjárfestingar hafnarsjóðs eru auknar um 96 mkr. Rekstrarfjármagn hækkað til Skagafjarðarveitna-hitaveitu vegna ljósleiðaraverkefnis um 53.610 þkr. og styrktartekjur vegna verkefnisins hækkaðar um 57.600 þkr. Gert er ráð fyrir að fjármagna viðaukann með langtímalántöku að fjárhæð 160 mkr. og lækkun handbærs fjár um 100.285 þkr.
Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Sorphreinsun í Skagafirði - útboð 2021 - Efla

Málsnúmer 2011092Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 973. fundi byggðarráðs þann 7. júlí 2021.
Byggðarráð samþykkir að veita sveitarstjóra umboð til þess að ganga til samninga við Ómar Kjartansson um kaup á Flokku ehf. í samræmi við umræður á fundinum.

4.Framkvæmdir og viðhald 2021

Málsnúmer 2102303Vakta málsnúmer

Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti verkstöðu fjárfestinga og viðhaldsverkefna hjá sveitarfélaginu og stofnunum.

5.Umsókn um lækkun fasteignagjalda

Málsnúmer 2109218Vakta málsnúmer

Sjá trúnaðarbók.

6.Fjármálaráðstefna 2021

Málsnúmer 2109160Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 15. september 2021 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2021 sem verður haldin dagana 7.-8. október n.k.

7.Ársfundur Jöfnunarsjóðs

Málsnúmer 2109182Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 15. september 2021 samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem tilkynnt er um ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þann 6. október n.k. Til fundarins eru boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra og fulltrúar samtaka sveitarfélaga.

Fundi slitið - kl. 15:54.