Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar
Félags- og tómstundanefnd Skagafjarðar
Fundur 27 – 18.11.03
Ár 2003, þriðjudag 18. nóvember kl. 16:00, var haldinn fundur í Félags- og tómstundanefnd í Ráðhúsi Skagafjarðar.
Mættir: Ásdís Guðmundsdóttir, Harpa Kristinsdóttir, Þórdís Friðbjörnsdóttir. Af hálfu starfsmanna: Gunnar Sandholt, Elsa Jónsdóttir og Rúnar Vífilsson.
Dagskrá:
Húsnæðismál
1. Viðbótarlán
2. Úthlutanir
Íþróttamál
3. Rekstrarform íþróttamannvirkja
Tómstundamál
4. Félags- og tómstundastarf aldraðra
Félagsmál
5. Trúnaðarmál
6. Þjónstubíll fatlaðra
Önnur mál
Afgreiðslur:
1. Samþykkt fjögur viðbótarlán, sjá innritunarbók.
2. Samþykkt úthlutun leiguíbúða í Víðimýri 4 og Víðigrund 8, sjá innritunarbók.
3. Rekstrarform íþróttamannvirkja á Sauðárkróki rædd.
4. Rætt um valkosti varðandi aðstöðu fyrir félagsstarf aldraðra.
5. Samþykkt tvö erindi í tveimur málum, sjá trúnaðarbók
6. Brýn þörf er á að endurnýja þjónustubíl fatlaðra. Ræddir tveir kostir sem fela í sér rekstrarleigu nýs bíls annarsvegar og kaup á bíl hinsvegar. Starfsmönnum falið að undirbúa tillögu fyrir næsta fund svo unnt sé að taka afstöðu til málsins við gerð fjárhagsáætlunar.
7. Kynnt málþing Sambands ísl. sveitarfélaga um húsnæðismál. 28. nóvember n.k.