Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

236. fundur 01. nóvember 2016 kl. 08:30 - 11:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Bjarki Tryggvason formaður
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
  • Þorgerður Eva Þórhallsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Gunnar M Sandholt félagsmálastjóri
  • Þorvaldur Gröndal forstöðumaður frístunda- og forvarnamála
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Bertína Rodriguez, sérfræðingur á fjölskyldusviði, sat fundinn.

1.Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2017 vinnugögn

Málsnúmer 1610023Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 02 og 06 ásamt ramma fjárhagsáætlunar sem samþykktur var í sveitarstjórn 26. október s.l. Jafnframt var farið yfir þær gjaldskrár og reglur sem í gildi eru fyrir þessa málaflokka. Samþykkt að nefndarmenn og starfsmenn vinni áfram með áætlunina og leggi fyrir næsta fund og síðari umræðu.

2.Áhaldakaup f. íþróttahús

Málsnúmer 1610034Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá íþróttakennurum á Sauðárkróki þar sem óskað er eftir auknum fjármunum til að endurnýja gömul og slitin tæki í íþróttahúsi á Sauðárkróki. Tekið er fram að þessir aðilar hafa fengið loforð um styrk að upphæð 2.5 milljónir króna frá fyrirtækjum á svæðinu. Samþykkt að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

3.Jólahlaðborð Rotaryklúbbs Sauðárkróks 2016

Málsnúmer 1610035Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn frá Rotaryklúbbi Sauðárkróks um gjaldfrjáls afnot af íþróttahúsi í upphafi aðventu vegna jólahlaðborðs sem klúbburinn býður til, íbúum að kostnaðarlausu. Erindið samþykkt.

4.Beiðni um hjólabrettagarð

Málsnúmer 1508168Vakta málsnúmer

Erindi þetta var til umræðu á síðasta fundi nefndarinnar þar sem forstöðumanni frístunda- og íþróttamála var falið að leggja fram tillögur að hjólabrettagarði. Nefndin samþykkir að fela forstöðumanni frístunda- og íþróttamála að vinna málið áfram og leita eftir samstarfi við sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs með tilliti til staðsetningar o.þ.h.

5.Dagdvöl aldraðra sept 2016

Málsnúmer 1609235Vakta málsnúmer

Lagðar fram að nýju tillögur að reglum um Dagdvöl. Nefndin samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðarráðs. Jafnframt var lagt fram bréf frá yfirlækni Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki, Þorsteini Þorsteinssyni, þar sem hann lýsir brýnni þörf fyrir fjölgun rýma í Dagdvöl aldraðra, einkum og sér í lagi fyrir fólk með heilabilun. Nefndin samþykkir að fela starfsmönnum sviðsins að sækja um fjölgun rýma til Velferðarráðuneytisins.

Fundi slitið - kl. 11:00.