Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

244. fundur 18. maí 2017 kl. 15:00 - 15:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Bjarki Tryggvason formaður
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
Starfsmenn
  • Gunnar M Sandholt félagsmálastjóri
  • Þorvaldur Gröndal forstöðumaður frístunda- og forvarnamála
Fundargerð ritaði: Gunnar M Sandholt félagsmálasjóri,
Dagskrá

1.Staða málaflokks 06 fyrir sumarið 2017

Málsnúmer 1705137Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað forstöðumanns frístunda- og íþróttamála um stöðu mála fyrir sumarið.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri málefna fatlaðs fólks mætti á fundinn undir dagskrárlið 2.

2.Velferðarvakt v/ kvörtun frá BLS

Málsnúmer 1702236Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf framkvæmdastjóra málefna fatlaðs fólks til réttindavaktar Velferðarráðuneytisins, dags. 3. maí 2017.

3.Reglur um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur

Málsnúmer 1703008Vakta málsnúmer

Félags- og tómstundanefnd telur að túlka beri 11. grein reglna um niðurgreiðslu dagvistargjalda á einkaheimilum og foreldragreiðslur rúmt þannig að miðað sé við 9 mánaða aldur barns til að foreldragreiðslur, jafnvel þótt foreldrar hafi valið að fresta hluta foreldraorlofs og nýta það síðar til hagsbóta fyrir barnið. Þannig verður samræmi milli 10. greinar um niðurgreiðslu hjá dagforeldri og 11. greinar reglnanna sem kveður á um foreldragreiðslur. Þessa túlkun ber að nota við afgeiðslu fyrirliggjandi umsókna.

Jafnframt felur nefndin félagsmálastjóra að gera tillögu að breyttu orðalagi reglnanna til að taka af allan vafa um þetta atriði.

4.Trúnaðarbók félagsmál 2017

Málsnúmer 1701341Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fimm erindi frá fjórum einstaklingum. Einu erindi synjað en fjögur samþykkt.

Fundi slitið - kl. 15:45.