Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

257. fundur 23. ágúst 2018 kl. 14:00 - 16:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir formaður
  • Atli Már Traustason varaform.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
  • Anna Lilja Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
  • Stefán Vagn Stefánsson
  • Gísli Sigurðsson
  • Bjarni Jónsson
  • Ólafur Bjarni Haraldsson
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum

Málsnúmer 1806003Vakta málsnúmer

Nefndin beinir því til sviðsstjóra og starfsmanna fjölskyldusviðs að leggja fram endurskoðaða jafnréttisáætlun til fjögurra ára á næsta fundi nefndarinnar.

2.Landsfundur jafnréttismála 2018

Málsnúmer 1806096Vakta málsnúmer

Hvatt er til þess að fulltrúar nefndarinnar sæki landsfundinn. Jafnframt verður fulltrúum ungmennaráða boðið að sækja málþingið sem ber yfirskriftina ungt fólk og jafnréttsimál.

3.Sundlaugin á Hofsósi, lenging sumaropnunar 2018

Málsnúmer 1808126Vakta málsnúmer

Lagt er til að reynt verði að koma til móts við óskir um að hafa sumaropnun í Sundlauginni á Hofsósi. Ákvörðun þessi er þó háð því að fólk fáist til starfa í september og að samþykkt verði aukafjárveiting af hálfu byggðarráðs.Erindinu vísað til byggðarráðs. Jafnframt verði málið tekið upp að nýju við gerð fjárhagsáætlunar 2019.

4.Sundlaugin á Sólgörðum haust 2018

Málsnúmer 1808125Vakta málsnúmer

Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að laugin verði opin að einhverju leyti yfir vetrarmánuðina. Einnig leggur nefndin til að teknar verði saman upplýsingar um gestafjölda í sumar og jafnframt verði leitað eftir sjónarmiðum heimamanna um opnun laugarinnar í vetur. Sviðsstjóra og frístundastjóra falið að koma með tillögu til nefndarinnar á næsta fundi hennar.

5.Málþing um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 1808107Vakta málsnúmer

Félagsmálastjóri kynnti málþing sem Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Málþingið tengist ákvæðum nýrra laga um málefni fatlaðs fólks og lögum um félagsþjónustu. Félagsmálastjóri og sérfræðingur á fjölskyldusviði munu sækja málþingið sem verður tekið upp og sett inn á heimasíðu Sambandsins.

6.Umræðu- og upplýsingafundur um ný lög

Málsnúmer 1808108Vakta málsnúmer

Félagsmálastjóri upplýsti að miklar breytingar munu eiga sér stað nú 1. október er breytt lög um félagsþjónustu sveitarfélaga og ný lög um málefni fatlaðs fólks taka gildi. Félagsmálastjóri ásamt sérfræðingi fjölskyldusviðs mun sækja upplýsingafund sem Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir þar sem ýmsum spurningum um lögin verður svarað. Fundurinn verður tekinn upp og settur á heimasíðu Sambandsins.

Fundi slitið - kl. 16:00.