Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

298. fundur 13. janúar 2022 kl. 15:00 í fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir formaður
  • Atli Már Traustason varaform.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
  • Anna Lilja Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
  • Guðrún Helga Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi Akrahrepps
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Vegna Covid var fundurinn haldinn í gegnum Teams fjarfundabúnað.

1.Skuggakosningar ungmenna vegna sameiningaviðræðna Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps

Málsnúmer 2201094Vakta málsnúmer

Þann 19. febrúar n.k. munu íbúar í Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi kjósa um sameiningu þessara tveggja sveitarfélaga. Áhugavert er að heyra hvaða afstöðu ungt fólk hefur til slíkrar sameiningar. Af því tilefni er lagt til að fram fari svokallaðar skuggakosningar meðal nemenda á unglingastigi í grunnskóla og yngstu árgöngum FNV. Gert er ráð fyrir að ásamt starfsmönnum komi Ungmennaráð og nemendafélög að undirbúningi og framkvæmd kosninganna.

2.Gjaldskrá Dagdvalar aldraða 2022

Málsnúmer 2110178Vakta málsnúmer

Daggjald er ákvarðað í reglugerð um dagdvöl aldraðra nr. 1245/2016 með árlegum breytingum. Árið 2022 er daggjald notenda 1.313 kr. Nefndin samþykkir að fæðiskostnaður á dag árið 2022 verði 559 kr., samanlagt daggjald með fæði 1.872 kr. og fjarvistargjald á dag 1.313 kr.
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, fulltrúi Vg og óháðra, óskar bókað að hún sitji hjá við atkvæðagreiðsluna.

3.Félag eldri borgara í Skagafirði - styrkbeiðni

Málsnúmer 2111063Vakta málsnúmer

Erindi frá Félagi eldri borgara í Skagafirði. Í samræmi við samning Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Félags eldri borgar í Skagafirði frá september 2021, samþykkir nefndin að veita Félagi eldri borgara í Skagfirði 350.000 kr. styrk vegna félagsstarfa á árinu 2021.

4.Félag eldri borgara Löngumýri - styrkbeiðni

Málsnúmer 2112012Vakta málsnúmer

Erindi frá Félagi eldri borgara Löngumýri. Í samræmi við samning Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Félags eldri borgara í Skagafirði frá september 2021, samþykkir nefndin að veita Félagi eldri borgara Löngumýri 150.000 kr. styrk vegna félagsstarfa á árinu 2021.

5.Félag eldri borgara Hofsósi styrkbeiðni 2021

Málsnúmer 2201107Vakta málsnúmer

Erindi frá Félagi eldri borgara Hofsósi. Í samræmi við samning Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Félags eldri borgara í Skagafirði frá september 2021, samþykkir nefndin að veita Félagi eldri borgara Hofsósi 100.000 kr. styrk vegna félagsstarfa á árinu 2021.

6.Styrkbeiðni Stígamót

Málsnúmer 2111065Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni frá Stígamótum vegna starfsemi samtakanna. Nefndin telur sér ekki fært að veita styrk að þessu sinni en óskar Stígamótum alls góðs í störfum sínum.

7.Flutningur hreyfihamlaðra í atvinnuskyni

Málsnúmer 2112085Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ný reglugerð um skoðun ökutækja sem flytja hreyfihamlað fólk.
Þorvaldur Gröndal og Guðrún Jónsdóttir véku af fundi eftir þennan lið.

8.Trúnaðarbók félags-og tómstundanefndar 2022

Málsnúmer 2201082Vakta málsnúmer

Eitt mál tekið til afgreiðslu. Samþykkt.

Fundi slitið.