Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

130. fundur 14. október 2008 kl. 09:30 - 11:00 í Ráðhúsi, Skagf.braut 17-21
Fundargerð ritaði: Gunnar M. Sandholt Félagsmálastjóri
Dagskrá

1.Fagmenntun starfsmanna í Dagvist aldraðra

Málsnúmer 0810031Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf forstöðumanns Dagvistar aldraðra.
Félags- og tómstundanefnd telur brýnt að dagvistin hafi á að skipa starfsfólki með menntun og þjálfun sem nýtist í starfi. Nefndin óskar þess að Byggðarráð heimili að ráðningarsamningi eins starfsmanns sem er með sjúkraliðamenntun verði breytt samkvæmt kjarasamningi LS og Sjúkraliðafélagsins, frá og með 1. nóvember 2008. Samþykkt samhljóða.

2.Verklagsreglur um afgreiðslu umsókna um niðurgreiðslu au-pair starfsmanns, sbr. reglur um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum

Málsnúmer 0810030Vakta málsnúmer

Samkvæmt 2. gr. reglna um niðurgreiðslu Sveitarfélagsins Skagafjarðar á daggæslu í heimahúsum frá 7. september 2006, getur Félags- og tómstundanefnd í undantekningartilvikum heimilað niðurgreiðslu vegna au-pair starfsmanns þegar hagsmunir barns og fjölskyldu mæla sérstaklega með því. Fer þá samkvæmt sérstökum verklagsreglum sem nefndin setur.
Þessar verklagsreglur voru yfirfarnar og þeim breytt þannig að tilvísanir séu til samræmis við "Reglur um niðurgreiðslu ..."
Einnig var 1. grein verklagsreglnanna breytt og hljómar nú þannig: "Nú stendur barni hvorki til boða leikskólapláss né pláss hjá dagmóður eða getur ekki nýtt sér slíka þjónustu af sérstökum ástæðum og getur félagsmálanefnd þá samþykkt að veita styrk til niðurgreiðslu launakostnaðar ?au-pair? starfsmanns". Um er að ræða orðalagsbreytingar og enginn kostnaðarauki fylgir þeim. Breytingarnar samþykktar samhljóða.

3.Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2008

Málsnúmer 0809003Vakta málsnúmer

Lögð fram endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir gjaldaliði 02 Félagsmál og 06 Íþrótta- og tómstundamál

4.Fjárhagsáætlun 2009 Æskulýðs-og íþróttamál

Málsnúmer 0810033Vakta málsnúmer

Rætt um gerð fjárhagsáætunar 2009.

5.Fjárhagsáætlun 2009 Félagsmál

Málsnúmer 0810032Vakta málsnúmer

Rætt um gerð fjárhagsáætunar 2009.

Fundi slitið - kl. 11:00.