Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

128. fundur 08. febrúar 2018 kl. 13:00 - 15:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Þórdís Friðbjörnsdóttir formaður
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir varaform.
  • Sigurjón Þórðarson ritari
  • Björg Baldursdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Bertína Guðrún Rodriguez verkefnastjóri á fjölskyldusviði
  • Ólafur Atli Sindrason áheyrnarftr. foreldra grunnsk.barna
  • Óskar G. Björnsson skólastjóri grunnskóla
  • Kristín Sigurrós Einarsdóttir áheyrnarftr. grunnsk.kennara
  • Sigríður H. Sveinsdóttir áheyrnarftr. leiksk.kennara
Fundargerð ritaði: Bertina G. Rodriguez sérfræðingur fjölskyldusviði
Dagskrá
Sigríður M. Helgadóttir, áheyrnarfulltrúi leikskóla, sat fundinn undir 1-3 lið.

1.Starfsáætlun - leikskólar

Málsnúmer 1712091Vakta málsnúmer

Áætlanir fyrir starf leikskóla lagðar fram til kynningar.

2.Ársalir - biðlisti febrúar 2017

Málsnúmer 1801262Vakta málsnúmer

Biðlisti við Ársali lagður fram til kynningar.
Björg Baldursdóttir vék af fundi eftir lið 2

3.Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2018

Málsnúmer 1801282Vakta málsnúmer

Starfsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2018 lögð fram til kynningar.
Sigríður Halldóra Sveinsdóttir og Sigríður Helgadóttir áheyrnarfulltrúar leikskólans sátu fundinn undir lið 1-3

4.Tillögur Velferðarvaktarinnar gegn brotthvarfi nemenda úr framhaldsskólum

Málsnúmer 1712133Vakta málsnúmer

Kynntar voru tillögur Velferðarvaktarinnar gegn brotthvarfi nemenda úr framhaldsskólum. Fræðslunefnd tekur undir þær tillögur og ábendingar sem fram koma í erindinu og hvetur til að markvisst verði unnið eftir þeim í samstarfi ríkis og sveitarfélaga.

5.Samræmd próf í 4. og 7. bekk 2017

Málsnúmer 1712157Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um fyrirkomulag og niðurstöður samræmdra prófa í grunnskólum Skagafjarðar frá því í september 2017.

6.Skólaakstur útboð 2018-2019

Málsnúmer 1801176Vakta málsnúmer

Kynnt var fyrirkomulag það sem nú er viðhaft í skólaakstri í Skagafirði. Jafnframt var lagt fram minnisblað um ýmis álitaefni varðandi fyrirhugað útboð á akstrinum. Málinu frestað til næsta fundar.

7.Reglur um flutning barna á milli skóla endurskoðaðar 2018

Málsnúmer 1802002Vakta málsnúmer

Kynnt voru drög að endurskoðuðum reglum um flutning barna á milli skóla. Málinu frestað til næsta fundar nefndarinnar.

8.Písa 2018 fyrir 15 ára nemendur

Málsnúmer 1802040Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, undirritað af menntamálaráðherra, þar sem hvatt er til þess að Pisa könnun, sem lögð verður fyrir í mars/apríl n.k. fái jákvæða umfjöllun og kynningu í grunnskólum. Fræðslunefnd tekur undir hvatninguna og ítrekar mikilvægi Pisa könnunarinnar.
Kristín S. Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi grunnskóla sat fundinn frá lið 3-8

9.Leiga á Sólgarðaskóla og umsjón með sundlaug sumarið 2018

Málsnúmer 1712141Vakta málsnúmer

Ein umsókn barst um leigu á Sólgarðaskóla fyrir ferðaþjónustu sumarið 2018. Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leyti að Sólgarðaskóli verði leigður til Kristínar S. Einarsdóttur og Alfreðs Símonarsonar og jafnframt verði gengið frá umsjón með sundlaug sbr. erindi þeirra, líkt og gert var sumarið 2017. Einnig skal leita álits félags- og tómstundanefndar þar sem sundlaugin er á forræði þeirrar nefndar. Þá er erindinu einnig vísað til byggðarráðs þar sem umsækjendur reifa þá hugmynd að taka skólann til leigu til lengri tíma.
Óskar Björnsson og Ólafur Sindrason sátu fundinn undir lið 3-9

10.Trúnaðarbók fræðslunefndar

Fundi slitið - kl. 15:00.