Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

136. fundur 29. október 2018 kl. 16:15 - 18:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Laufey Kristín Skúladóttir formaður
  • Elín Árdís Björnsdóttir varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir ritari
  • Auður Björk Birgisdóttir áheyrnarftr.
  • Ragnhildur Jónsdóttir fulltrúi akrahrepps
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
  • Bertína Guðrún Rodriguez sérfræðingur á fjölskyldusviði
  • Einarína Einarsdóttir áheyrnarftr. grunnsk.kennara
  • Hanna Dóra Björnsdóttir skólastjóri grunnskóla
  • Anna Árnína Stefánsdóttir skólastjóri leikskóla
  • Jóhanna Sigurðardóttir áheyrnarftr. leikskóla
  • Guðbjörg Óskarsdóttir áheyrnarftr. foreldra leiksk.barna
  • Sveinn Sigurbjörnsson skólastjóri tónlistarskóla
Fundargerð ritaði: Selma Barðdal fræðslustjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Starfsmannafundi leikskóla - fyrirkomulag 2019

Málsnúmer 1810118Vakta málsnúmer

Tillaga að breyttu fyrirkomulagi starfsmannafunda í leikskólum Skagafjarðar kynnt. Tillagan gengur út á að fundað verði að vinnutíma loknum. Starfsmenn geta tekið fundartíma út í fríi, tíma á móti tíma, ásamt því að greitt verður yfirvinnuálag vegna þeirra. Áætlaður kostnaðarauki vegna þessa eru rúmar þrjár milljónir króna. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna og óskar eftir að tekið verði tillit til þessa í fjárhagsáætlun leikskólanna fyrir næsta ár. Tillagan kemur til framkvæmda 1.jan. 2019 og verða skóladagatöl uppfærð í samræmi við samþykkt þessa.
Áheynarfulltrúar voru: Guðbjörg Óskarsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Anna Á. Stefánsdóttir

2.Sumarlokanir leikskóla 2019

Málsnúmer 1810119Vakta málsnúmer

Rætt um sumarlokanir leikskólanna. Fræðslunefnd samþykkir að fresta ákvörðun um fyrirkomulag sumarleyfa leikskólanna til næsta fundar.
Áheynarfulltrúar voru: Guðbjörg Óskarsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Anna Á. Stefánsdóttir

3.Bréf sveitarstjóra til nefnda v jafnréttisáætlunar

Málsnúmer 1810007Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla skv. lögum nr. 19/2008 um kynjasamþættingu á öllum sviðum sveitafélagsins. Mikilvægt er að nálgast jafnrétti sem réttlætismál sem og mikilvægt hagsmunamál fyrir samfélagið í heild. Það er mikilvægt að karlar og konur fái sömu tækifæri til starfa fyrir sveitafélagið sem tengjast fræðslumálum. Staða kynjanna verður að vera jöfn hvað varðar kjör, vinnutíma, samþættingu atvinnu og einkalífs sem og í viðbragðsáætlun gegn áreiti, ofbeldi og einelti. Jafnrétti á að ríkja í þjónustu við íbúa, nemendur og starfsfólk í leik- og grunnskólum héraðsins. Fræðslunefnd leggur líka áherslu á að aðstaða, umhverfi og framboð náms, frístundastarfs og íþrótta fyrir alla, óháð kyni, sé jafnt og hvetur alla þá sem koma að starfi með börnum og unglingum til að vinna markvisst að jöfnum tækifærum kynjanna. Fræðslunefnd hvetur aðrar nefndir sveitarfélagsins, stjórnendur og samfélagið allt til að taka meðvitaða afstöðu gegn mismunun og með jafnrétti í öllum sínum störfum.
Áheynarfulltrúar voru: Guðbjörg Óskarsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Anna Á. Stefánsdóttir, Sveinn Sigurbjörnsson, Hanna Dóra Björnsdóttir og Einarína Einarsdóttir.

4.Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2019

Málsnúmer 1809249Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2019 var kynnt og farið yfir rekstur stofnana. Fræðslunefnd mun afgreiða fjárhagsáætlun fyrir sitt leyti á næsta fundi.
Áheynarfulltrúar voru: Guðbjörg Óskarsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Anna Á. Stefánsdóttir, Sveinn Sigurbjörnsson, Hanna Dóra Björnsdóttir og Einarína Einarsdóttir.

Fundi slitið - kl. 18:00.