Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

152. fundur 30. janúar 2020 kl. 16:15 - 18:55 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Laufey Kristín Skúladóttir formaður
  • Elín Árdís Björnsdóttir varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir ritari
  • Auður Björk Birgisdóttir áheyrnarftr.
  • Ragnhildur Jónsdóttir fulltrúi Akrahrepps
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
  • Bertína Guðrún Rodriguez sérfræðingur á fjölskyldusviði
  • Hafdís Guðlaug Skúladóttir áheyrnarftr. grunnsk.kennara
  • Jóhann Bjarnason skólastjóri grunnskóla
  • Aðalbjörg Þorgrímsdóttir skólastjóri leikskóla
  • Álfhildur Leifsdóttir
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir
Fundargerð ritaði: Bertina Rodriguez sérfræðingur á fjölskyldusviði
Dagskrá

1.Matarmál leik - og grunnskóla á Sauðárkróki

Málsnúmer 1812191Vakta málsnúmer

Lagt er til að framleiðsla hádegisverðar fyrir Ársali og Árskóla verði boðin út til þriggja ára frá og með 1. júní 2020 til loka júlí 2023.

Til skoðunar hefur verið að hefja framleiðslu hádegisverðar fyrir þær þrjár starfsstöðvar sem mynda leik- og grunnskólann á Sauðárkróki í eldhúsi leikskólans Ársala. Stærð eldhúss og grunnbúnaður Ársala leyfir slíka framleiðslu en ljóst er að byggja þarf við inngang að austanverðu rými fyrir fyrir frystigeymslu og þá þarf einnig að breyta uppröðun í eldhúsi, fjölga niðurföllum og kaupa nýjan eldunarbúnað. Áætlaður kostnaður vegna þeirra breytinga er um 55 milljónir króna.

Samningar við þá tvo verktaka sem annast framleiðslu hádegisverðar renna út nú í maílok. Sviðsstjóri hefur skilað minnisblaði um málið sem liggur fyrir fundinum. Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem þar koma fram, bæði hvað varðar tímaramma sem og framkvæmdakostnað, þykir ekki unnt að ráðast í breytingar á fyrirkomulagi hádegisverðar að þessu sinni. Því er lagt til að framleiðsla hádegisverðar fyrir Ársali og Árskóla verði boðin út í einu lagi til þriggja ára. Í útboðslýsingum skal lögð mikil áhersla á íslenskt/skagfirskt hráefni, heilsusamlegt mataræði og að lágmarka vistspor þjónustunnar með því m.a. að nýta sem mest hráefni úr heimabyggð. Auk þess verði gerð krafa um að rekstraraðili veiti upplýsingar um uppruna, innihaldslýsingar og framleiðsluhætti þeirra vara sem boðið er upp á. Farið verði eftir ábendingum Landlæknisembættisins um samsetningu matartegunda og í hverjum skóla verði matseðlar yfirfarnir og samþykktir. Einnig er mikilvægt að leggja áherslu á sveigjanleika í útboðinu hvað varðar fjölda matarskammta með tilliti til starfstíma beggja skólastiga, leikskóla og grunnskóla. Fjöldi matarskammta nú er um 650.


Auður Björk Birgisdóttir óskar bókað.
Fulltrúi VG og óháðra lagði fram tillögu þess efnis að eldað yrði frá grunni í eldhúsum allra grunn- og leikskóla héraðsins í nóvember 2018. Var þeirri tillögu fylgt eftir með fyrirspurn um kostnað við að elda frá grunni miðað við kostnað við aðkeyptan mat í janúar 2019. Sýndi sá útreikningur umtalsverðan sparnað við að elda frá grunni miðað við aðkeyptan mat. Það virðist vera samhljómur um að elda frá grunni sé bæði hagstæðara og betur til þess fallið að tryggja að hráefni, eldun og framreiðsla sé í samræmi við ráðleggingar Landlæknisembættisins um mataræði og í samræmi við ákvörðun Sveitarfélagsins Skagafjarðar að gerast aðili að Heilsueflandi samfélagi. Því ætti að halda áfram að skoða lausnir að því að elda mat frá grunni fyrir alla grunn- og leikskóla Skagafjarðar.

Fræðslunefnd samþykkir að bjóða út framleiðslu matar fyrir Ársali og Árskóla til þriggja ára.

2.Skólamáltíðir fyrir leik- og grunnskóla

Málsnúmer 2001076Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Spíru ehf, Tómasi H. Árdal, þar sem lýst er vilja til að þjónusta Sveitarfélagið Skagafjörð um skólamáltíðir bæði fyrir grunnskóla og leikskóla. Fræðslunefnd þakkar erindið og vísar í ákvörðun í lið 1 hér að framan um að bjóða framleiðslu hádegisverðar fyrir Ársali og Árskóla út til þriggja ára.

3.Leiðbeiningar um verklag við ráðningar kennara og skólastjórnenda leik-, grunn- og framhaldsskóla

Málsnúmer 2001023Vakta málsnúmer

Leiðbeiningar Menntamálastofnunar um verklag við ráðningar kennara og stjórnenda við leik-,grunn- og framhaldsskóla lagðar fram til kynningar. Leiðbeiningar þessar eru gerðar í kjölfar nýrra laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 95/2019. Lög þessi fela í sér þá veigamiklu breytinu fá eldri lögum að eitt leyfisbréf gildir fyrir kennara þessara þriggja skólastiga. Með lögunum er lögfestur hæfnisrammi um menntun og hæfni kennara og skólastjórnenda sem lýsir þeirri hæfni sem kennarar þurfa að búa yfir til samræmis við þá ábyrgð sem felst í starfi þeirra.


4.Verklag við niðurfellingu skólahalds vegna slæmrar veðurspár.

Málsnúmer 2001102Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
Ákvörðun um hvort fella skuli niður skólahald í leik-, grunn- og tónlistarskóla í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna slæmrar veðurspár eða mikillar ófærðar er alla jafna í höndum fræðsluþjónustu og skólastjórnenda að höfðu samráði við skólabílstjóra og yfirmanns snjómoksturs hjá sveitarfélaginu. Samráð skal einnig haft við sveitarstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Þegar brýn ástæða þykir til getur Almannavarnarnefnd sveitarfélagsins og/eða Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra gefið fyrirmæli um að fella niður allt skólahald og loka skólum á einstaka stöðum í Skagafirði eða í öllum firðinum ef svo ber undir. Tilkynning/tilmæli þess efnis skal send til sveitarstjóra, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og fræðslustjóra með sannalegum hætti, svo sem tölvupósti eða sms.

5.Menntastefna Skagafjarðar

Málsnúmer 1812211Vakta málsnúmer

Menntastefna Skagafjarðar lögð fram til staðfestingar. Fræðslunefnd og starfshópur á vegum fræðsluþjónustu hafa unnið að gerð nýrrar menntastefnu fyrir Skagafjörð. Haldnir hafa verið fjölmargir fundir með hagsmunaaðilum skólasamfélagsins og jafnframt hafa verið haldnir opnir fundir þar sem íbúum Skagafjarðar hefur gefist kostur á að koma með ábendingar og hugmyndir við stefnumótunarvinnuna. Menntastefna Skagafjarðar er leiðarljós skólastarfs í Skagafirði. Hún nær til leik-, grunn og framhaldsskóla, tónlistarskóla og frístundatarfs. Menntastefnan markar ramma um megináherslur í starfi skóla og skólaþjónustu og er ætlað að mæta þeim áskorunum sem felast í stöðugum samfélags- og tæknibreytingum í samfélaginu.
Fræðslunefnd lýsir ánægju sinni með metnaðarfulla menntastefnu og þakkar öllum þeim sem komið hafa að gerð hennar fyrir þeirra framlag. Um leið og fræðslunefnd samþykkir stefnuna hvetur hún íbúa til að kynna sér hana vel.

Auður Björk Birgisdóttir - fulltrúi VG og óháðra óskar bókað.
Þeir sem komu að gerð menntastefnu Skagafjarðar eiga þakkir skildar. Mörg metnaðarfull áform eru í menntastefnunni og er nauðsynlegt að henni sé fylgt vel eftir bæði með því fjármagni sem þarf til fræmkvæmda þeirra fjölmörgu atriða sem þar eru nefnd sem og með nauðsynlegri endurmenntun kennara allra skólastiga.

6.Skólaakstur á Sauðárkróki frá 2020

Málsnúmer 2001124Vakta málsnúmer

Á síðasta ári var ákveðið að bjóða skólaakstur á Sauðárkróki út til eins árs. Fyrirkomulag akstursins var breytt frá því sem hafði verið og tekur nú ekki einungis til aksturs til og frá Árskóla á skólatíma, heldur nær hann einnig til skólaferðalaga á vegum Árskóla og Ársala. Þá hefur akstursmánuðum verið fækkað með það að markmiði að hvetja börn til að ganga/hjóla í skólann haust- og vormánuðina í samræmi við markmið um Heilsueflandi samfélag. Ánægja ríkir með fyrirkomulagið. Samningur við verktaka rennur út í skólalok á þessu ári en vilji er til að halda núverandi fyrirkomulagi akstursins áfram.

Lagt er til að akstur á Sauðárkróki verði boðinn út að nýju til þriggja ára. Útboðið verði með sama sniði og nú er í gildi og útboðsgögn sem unnin voru á síðasta ári höfð til grundvallar nýrri útboðslýsingu.
Fræðslunefnd samþykkir að bjóða út skólaakstur á Sauðárkróki til þriggja ára.

7.Ytra mat í leikskólum

Málsnúmer 1910153Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Menntamálastofnun þar sem tilkynnt er að ekki er hægt að verða við umsókn Sveitarfélagsins Skagafjarðar um ytra mat leikskólanna Birkilundar og Tröllaborgar.

8.Desemberskýrslur leikskólanna 2019

Málsnúmer 1912058Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar desemberskýrslur leikskólanna 2019. Um er að ræða tölulegar upplýsingar sem árlega eru sendar Hagstofu Íslands.

9.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 1908066Vakta málsnúmer

Tillaga meirihluta um útfærslur á bættu starfsumhverfi í leikskólum Skagafjarðar:

Að tillögu fræðslunefndar þann 22. ágúst 2019 var skipaður starfshópur sem skoða átti
starfsumhverfi leikskóla í Skagafirði með það að markmiði að bæta starfsumhverfi og minnka álag á nemendur og starfsfólk. Ákvörðun þessi er í samræmi við áherslur meirihluta sveitarstjórnar um að tryggja áfram metnaðarfullt starf í leik- og grunnskólum Skagafjarðar. Auk þeirra tillagna sem hér liggja fyrir voru reglur um stuðning vegna náms í leikskólafræðum samþykktar í september 2018.

Í kjölfar skýrslu starfshópsins sem lögð var fyrir fræðslunefnd á síðasta fundi hennar, þann 16. desember s.l., samþykkti sveitarstjórn að veita átta milljónum króna á þessu ári til að hrinda í framkvæmd tillögum starfshópsins. Gert er ráð fyrir að tillögurnar komi til framkvæmda eins fljótt og auðið er, í síðasta lagi þann 1. maí n.k.

Þær tillögur sem formaður og varaformaður fræðslunefndar leggja til að ráðist verði í eru eftirfarandi:
* Tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar um 3 klukkustundir í viku í leikskólunum þremur. Árangur verkefnisins verði metinn reglulega skv. matskvörðum með tilliti til þess hvort verkefnið verður framlengt.
* Gert er ráð fyrir auknu fjármagni vegna fagfunda í Ársölum.
* Undirbúningstími verði aukinn og samræmdur á öllum deildum leikskólanna.
* Starfsmaður Þjónustumiðstöðvar sinni starfi húsvarðar í allt að fjóra tíma í viku í Ársölum.
* Milli jóla og nýárs verði lágmarksstarfsemi í Ársölum og leitað eftir skráningum barna þá daga. Þeir foreldrar sem eru með börn sín heima fá afslátt af leikskólagjöldum.
* Við breytingar á húsnæði eða nýbyggingar verði horft til tillagna starfshópsins um breytt rýmisviðmið.

Er með þessu komið til móts við þær tillögur sem liggja fyrir frá starfshópi sem skipaður var í ágúst sem og til móts við óskir leikskólastjórnenda. Greining á kostnaði liggur fyrir og rúmast aðgerðirnar innan þess fjárhagsramma sem samþykktur var í fjárhagsáætlun þessa árs auk viðbótarfjármagns sem kemur með nýjum kjarasamningum á vinnumarkaði. Hvað varðar frekari útfærslu og umfjöllun um tillögur skýrslunnar að öðru leyti er vísað til minnisblaðs sviðsstjóra undir málinu.

Laufey Kr. Skúladóttir, formaður og fulltrúi B-lista í fræðslunefnd
Elín Árdís Björnsdóttir, varaformaður og fulltrúi D-lista í fræðslunefnd

Jóhanna Ey Harðardóttir bókar:
Vegamikil vinna hefur átt sér stað innan vinnuhóps um bætt starfsumhverfi í leikskólum Skagafjarðar og vil ég nýta tækifærið og þakka vinnuhópnum fyrir vel unnin störf. Leikskólar eru hjarta hvers samfélags og mikilvægt að starf þeirra sé metið sem skyldi, það jákvætt að einhugur er í fræðslunefnd um þessi mál og fagna ég því að fyrsta skrefið sé tekið.


Fræðslunefnd fagnar þessu skrefi að bættu starfsumhverfi leikskólanna. Leikskólarnir eru afar mikilvægar stofnanir í samfélaginu og mikilvægt að halda vel utan um þær. Fræðslunefnd samþykkir tillögurnar.

10.Hagstofuskýrslur grunnskólanna 2019

Málsnúmer 2001126Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar Hagstofuskýrslur grunnskólanna 2019. Um er að ræða tölulegar upplýsingar sem árlega eru sendar Hagstofu Íslands.
Jóhann Bjarnason sat fundinn undir öllum liðum að undanskildum lið 9

Fundi slitið - kl. 18:55.