Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

172. fundur 20. október 2021 kl. 16:15 - 17:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Axel Kárason formaður
  • Elín Árdís Björnsdóttir varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir ritari
  • Ragnhildur Jónsdóttir fulltrúi Akrahrepps
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
  • Erla Hrund Þórarinsdóttir sérfræðingur á fjölskyldusviði
  • Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir skólastjóri leikskóla
  • Sveinn Sigurbjörnsson skólastjóri tónlistarskóla
  • Hólmfríður Dröfn Guðmundsdóttir áheyrnarftr. grunnsk.kennara
  • Sandra Hilmarsdóttir áheyrnarftr. foreldra leiksk.barna
Fundargerð ritaði: Erla Hrund Þórarinsdóttir Sérfræðingur á fjölskyldusviði
Dagskrá
Jóhann Bjarnason sat fundinn fyrir hönd skólastjóra grunnskóla.

1.Birkilundur - leikskóli Varmahlíð, stækkun, breyting á húsnæði í Reyniland

Málsnúmer 2109297Vakta málsnúmer

Teikningar að stækkun einnar deildar leikskólans Birkilundar (Reyniland) lagðar fram. Teikningarnar voru unnar í góðu samráði við leikskólastjóra skólans og skólaþjónustu. Framkvæmdir munu hefjast á næstu dögum og áætlað er að hægt verði að taka deildina í notkun fljótlega upp úr áramótum.

2.Nemendafjöldi 2021-2022

Málsnúmer 2109163Vakta málsnúmer

Lagðar fram uppfærðar tölur um nemendafjölda í skólum Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

3.Hringekja - tónlistarskólinn

Málsnúmer 2110071Vakta málsnúmer

Sveinn Sigurbjörnsson, skólastjóri Tónlistarskóla Skagafjarðar og Joaquim Gonzilez kennari við skólann, kynntu nýtt úrræði sem skólinn er að þróa og er ætlað yngstu nemendunum. Úrræðið kallast Hljóðfærahringekjan og miðar að því að kynna mismunandi hljóðfæri fyrir yngstu börnunum, áður en þau velja sér eitt hljóðfæri að læra á. Stefnt er að því að bjóða úrræðið öllum yngstu árgöngum grunnskólans á næsta skólaári.

4.Fjöldi nemenda af erlendum uppruna í leik - og grunnskóla

Málsnúmer 2110119Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað um fjölda nemenda í leik- og grunnskólum Skagafjarðar sem sýnir fjölda nemenda af erlendum uppruna sem og fjölda þjóðerna. Skólaárið 2021-2022 eru nemendur þessir 88 talsins af vel á þriðja tug þjóðerna.

5.Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2022

Málsnúmer 2110027Vakta málsnúmer

Rammi fyrir fjárhagsáætlun ársins 2022 til fyrri umræðu lagður fram fyrir fræðsluþjónustu sem og skipting rammans niður á stofnanir. Skiptingin tekur mið af fjárhagsáætlun þessa árs með viðaukum. Þá eru lagðar fram gjaldskrár sem taka þarf afstöðu til fyrir síðari umræðu. Farið var yfir forsendur rammans og þær ræddar. Fræðslunefnd felur sviðsstjóra og starfsmönnum sviðsins að vinna að frekari útfærslu með hliðsjón af verkefnum stofnana og rekstri. Fræðslunefnd samþykkir að boða til vinnufundar á milli umræðna. Fræðslunefnd vísar áætluninni eins og hún liggur fyrir nú til byggðarráðs.

6.Skólaþing 2021

Málsnúmer 2110093Vakta málsnúmer

Lagt fram boð og dagskrá skólaþings 2021. Í ár eru 25 ár liðin frá því er rekstur grunnskóla var fluttur frá ríki til sveitarfélaga með tilheyrandi breytingum á starfsumhverfi skóla og skólaþjónustu. Dagskráin verður að hluta til helgaður þessari sögu. Þeir kjörnu fulltrúar sem hafa tök á eru hvattir til að sækja skólaþingið.

Fundi slitið - kl. 17:45.