Fara í efni

Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar

179. fundur 19. maí 2022 kl. 16:15 - 19:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Axel Kárason formaður
  • Elín Árdís Björnsdóttir varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir ritari
  • Ragnhildur Jónsdóttir fulltrúi Akrahrepps
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Selma Barðdal Reynisdóttir fræðslustjóri
  • Hanna Dóra Björnsdóttir skólastjóri grunnskóla
  • Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir skólastjóri leikskóla
  • Bogdís Una Hermannsdóttir áheyrnarftr. leikskóla
  • Sandra Hilmarsdóttir áheyrnarftr. foreldra leiksk.barna
  • Óskar G. Björnsson Gestur
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Lenging opnunartíma í Tröllaborg

Málsnúmer 2204161Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá leikskólastjóra Tröllaborgar um að lengja opnunartíma skólans á Hofsósi til klukkan 16:00 á föstudögum í stað 15:00 eins og verið hefur. Samþykki foreldraráðs liggur fyrir. Fræðslunefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti enda rúmast þessi lenging opnunartíma innan fjárhagsáætlunar.

2.Tillaga - þarfagreining og hönnun á nýjum leikskóla á Sauðárkróki

Málsnúmer 2109290Vakta málsnúmer

Minnisblað um þarfagreiningu og hönnun á nýjum leikskóla á Sauðárkróki lagt fyrir. Málinu vísað til umfjöllunar í nefndinni frá byggðarráði. Fræðslunefnd óskar eftir að ný nefnd, sem tekur við í júní, fjalli einnig um málið. Jafnframt telur nefndin skynsamlegt að stofnaður verði sérstakur starfshópur, líkt og gert var í tengslum við starfsumhverfi leikskóla, sem fjallar um málið m.t.t. framtíðaruppbygginu. Starfshópurinn verði skipaður starfsmönnum leikskóla undir forystu fræðslustjóra.

3.Lestrarstefna

Málsnúmer 2203121Vakta málsnúmer

Á fundi sínum þann 22.03. s.l. óskaði fræðslunefnd eftir umfjöllun og greinargerð um hvernig innleiðing lestrarstefnu Skagafjarðar hefur gengið og undið fram. Ákveðið var að efna til könnunar meðal starfsmanna þeirra skólastiga sem stefnan nær til. Niðurstöður þeirrar könnunar liggja nú fyrir og fylgja í minnsblaði. Almennt telja starfsmenn að vel eða frekar vel hafi gengið að framfylgja lestrarstefnu í þeirra skólum. Þá má einnig geta þess að í innra mati grunnskólanna eru þættir lestrarstefnunnar reglulega metnir og jafnframt hafa spurningar um lestur komið fram í Skólapúlsi sem er árlegur spurningagrunnur á landsvísu. Þá má geta þess að í árlegri skimun grunnskólanna sem allir starfsmenn svara er jafnframt spurt um framgang lesturs. Fræðslunefnd hvetur til enn frekari umræðu um mikilvægi lesturs innan skólanna, meðal foreldra og hjá þeim aðilum í samfélaginu sem hafa tök á að efla lestur.

4.Teymi barna - erindisbréf

Málsnúmer 2202230Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindisbréf um Teymi barna. Teymi barna er samstarfsvettvangur Fjölskyldusviðs sveitarfélagsins og Heilsugæslu HSN um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Erindisbréfið miðar að því að skýra betur hverjir sitja í Teyminu sem og hlutverk þeirra. Með erindisbréfinu fylgir samþykkarblað til undirritunar af hálfu forsjáraðila barna þegar mál koma til umfjöllunar í Teyminu.

5.Ytra mat á Árskóla

Málsnúmer 2106144Vakta málsnúmer

Óskar G. Björnsson, skólastjóri Árskóla, kom á fundinn og kynnti niðurstöður matsskýrslu Menntamálastofnunar á stöðu skólans með tilliti til styrkleika og tækifæra til umbóta í fjölþættum starfsskyldum skólans. Í stuttu máli koma allir matsþættir afar vel út. Niðurstöður matsins hafa verið rýndar í skólanum og fyrir liggur umbótaáætlun um þá þætti sem betur mega fara. Fræðslunefnd fagnar þessari úttekt og óskar Árskóla, stjórnendum og starfsmönnum, til hamingju með niðurstöðuna.

6.Kennslukvóti 2022

Málsnúmer 2205087Vakta málsnúmer

Tillaga að kennslukvóta grunnskólanna fyrir skólaárið 2022-2023 lögð fram. Afar litlar breytingar eru gerðar á milli ára en bent er á að enn ríkir örlítil óvissa með skipan nemenda í deildir við Grunnskólanum austan Vatna og kann kennslukvótinn að breytast örlítið við upphaf skólaárs. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.

7.Skóladagatöl grunnskóla 2022- 2023

Málsnúmer 2205110Vakta málsnúmer

Skóladagatöl grunnskólanna lögð fram. Þau hafa verið yfirfarin af skólaráðum skólanna sem og fræðslustjóra sem kynnti dagatölin. Fræðslunefnd samþykkir dagatölin eins og þau eru lögð fyrir.

8.Brotthvarf úr framhaldsskólum - Velferðarvaktin

Málsnúmer 2205043Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Velferðarvaktinni með ábendingum um ýmsa þætti sem stuðlað geta að minna brottfalli nemenda úr framhaldsskólum. Með erindinu fylgir skýrsla sem ber heitið ,,Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum" sem unnin var í umboði félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis.

9.Trúnaðarbók fræðslunefndar

Málsnúmer 2205169Vakta málsnúmer

Eitt mál tekið fyrir. Samþykkt

Fundi slitið - kl. 19:00.