Fara í efni

Tillaga - tímabundin niðurfelling gatnagerðargjalda 2017

Málsnúmer 1609070

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 756. fundur - 08.09.2016

Lögð fram svohljóðandi tillaga:
Byggðarráð samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að framlengja frá og með 1. janúar 2017 samþykkt um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á lóðum við þegar tilbúnar götur á Sauðárkróki, Hofsósi og Varmahlíð. Verði það gert á grundvelli sérstakrar lækkunarheimildar sem hægt er að veita skv. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Ákvæðið tekur gildi eftir samþykkt þess í sveitarstjórn og varir til 31. desember 2017. Ákvæðið er ekki afturvirkt og miðað er við að framkvæmdir hefjist innan þessara tímamarka.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 346. fundur - 20.09.2016

Vísað frá 756. fundi byggðarráðs þann 8. september 2016, svohljóðandi tillaga:"Byggðarráð samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að framlengja frá og með 1. janúar 2017 samþykkt um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á lóðum við þegar tilbúnar götur á Sauðárkróki, Hofsósi og Varmahlíð.

Verði það gert á grundvelli sérstakrar lækkunarheimildar sem hægt er að veita skv. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Ákvæðið tekur gildi eftir samþykkt þess í sveitarstjórn og varir til 31. desember 2017. Ákvæðið er ekki afturvirkt og miðað er við að framkvæmdir hefjist innan þessara tímamarka.

Ofangreind tillaga borin undir atkvæði og samþykkt með átta atkvæðum.