Fara í efni

Gjaldskrá Heimaþjónustu 2018

Málsnúmer 1711218

Vakta málsnúmer

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 248. fundur - 23.11.2017

Nefndin samþykkir að gjaldskrá verði óbreytt, þ.e. viðmiðun við launaflokk 128 ? 1 með tengdum gjöldum. Frá fyrsta janúar 2018 verður gjald fyrir hverja klukkustund 2.989 kr. en var 2.868 kr. Tekjuviðmið til lækkunar gjalda miðast við greiðslur Tryggingastofnunar. Þessar viðmiðunarupphæðir verða endurreiknaðar um áramót þegar greiðslur Tryggingastofnunar hafa verið ákveðnar.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 803. fundur - 30.11.2017

Lögð fram tillaga að gjaldskrá heimaþjónustu verði óbreytt árið 2018, þ.e. viðmiðun við launaflokk 128-1 með tengdum gjöldum. Frá fyrsta janúar 2018 verður gjald fyrir hverja klukkustund 2.989 kr. en var 2.868 kr. Tekjuviðmið til lækkunar gjalda miðast við greiðslur Tryggingastofnunar. Þessar viðmiðunarupphæðir verða endurreiknaðar um áramót þegar greiðslur Tryggingastofnunar hafa verið ákveðnar. Vísað frá 248. fundi félags- og tómstundanefndar þann 23. nóvember 2018.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 362. fundur - 13.12.2017

Vísað frá 803. fundi byggðarráðs 30. nóvember 2017 til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram tillaga að gjaldskrá heimaþjónustu verði óbreytt árið 2018, þ.e. viðmiðun við launaflokk 128-1 með tengdum gjöldum. Frá fyrsta janúar 2018 verður gjald fyrir hverja klukkustund 2.989 kr. en var 2.868 kr. Tekjuviðmið til lækkunar gjalda miðast við greiðslur Tryggingastofnunar. Þessar viðmiðunarupphæðir verða endurreiknaðar um áramót þegar greiðslur Tryggingastofnunar hafa verið ákveðnar. Vísað frá 248. fundi félags- og tómstundanefndar þann 23. nóvember 2018.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Framlögð tillaga borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.