Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

248. fundur 23. nóvember 2017 kl. 09:00 - 11:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Bjarki Tryggvason formaður
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir ritari
Starfsmenn
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Gunnar M Sandholt félagsmálastjóri
  • Þorvaldur Gröndal forstöðumaður frístunda- og forvarnamála
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri málefna fatlaðs fólks
  • Bertína Guðrún Rodriguez verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Herdís Á Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Þorgerður Eva Þórhallsdóttir, áheyrnarfulltrúi, boðaði forföll.

1.Fjárhagsáætlun 2018 - málaflokkur 06

Málsnúmer 1711203Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun fyrir frístunda- og íþróttamál lögð fram til fyrri umræðu. Samþykkt að nefndarmenn og starfsmenn vinni áfram með áætlunina og leggi fyrir næsta fund og síðari umræðu.

2.Opnunartími sundlauga 2018

Málsnúmer 1711179Vakta málsnúmer

Forstöðumaður frístunda- og íþróttamála kynnti tillögu að sumaropnun sundlauga í sveitarfélaginu frá 1. júní til 26. ágúst 2018. Lagt er til að vetraropnun verði óbreytt frá því sem nú er. Tillagan samþykkt. Opnunartími verður auglýstur á heimasíðu sveitarfélagsins.

3.Opnunartími íþróttamannvirkja jól 2017

Málsnúmer 1711180Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að opnun íþróttamannvirkja yfir jól og áramót 2017-2018. Nefndin samþykkir tillöguna. Opnunartími verður auglýstur á heimasíðu sveitarfélagsins.
Þorvaldur Gröndal vék af fundi eftir þennan lið.

4.Fjárhagsáætlun 2018 - málaflokkur 02

Málsnúmer 1711217Vakta málsnúmer

Fjárhagsáætlun fyrir almenna og sértæka félagsþjónustu lögð fram til fyrri umræðu. Lagt er til að nefndarmenn og starfsmenn vinni áfram með áætlunina og leggi fyrir næsta fund og síðari umræðu.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir sat fundinn undir þessum lið.

5.Gjaldskrá Heimaþjónustu 2018

Málsnúmer 1711218Vakta málsnúmer

Nefndin samþykkir að gjaldskrá verði óbreytt, þ.e. viðmiðun við launaflokk 128 ? 1 með tengdum gjöldum. Frá fyrsta janúar 2018 verður gjald fyrir hverja klukkustund 2.989 kr. en var 2.868 kr. Tekjuviðmið til lækkunar gjalda miðast við greiðslur Tryggingastofnunar. Þessar viðmiðunarupphæðir verða endurreiknaðar um áramót þegar greiðslur Tryggingastofnunar hafa verið ákveðnar.

6.Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar 2018

Málsnúmer 1711219Vakta málsnúmer

Viðmiðun grunnupphæðar fjárhagsaðstoðar 2018 eru 82% af ótekjutengdum atvinnuleysisbótum eins og þær eru í nóvembermánuði 2017 (217.208 kr) og hækki úr 161.643 kr í 178.110 kr. á mánuði frá og með 1.1.2018.

Fundi slitið - kl. 11:00.