Fara í efni

Gjaldskrá fasteignagjalda 2023

Málsnúmer 2211106

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 22. fundur - 16.11.2022

Lögð fram gjaldskrá fasteignaskatts, lóðar- og landleigu fyrir árið 2023.Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði tíu, frá 1. febrúar 2023 til 1. nóvember 2023. Heildarálagning á fasteign sem ekki nær 350 kr. fellur niður. Ef álagning fasteignagjalda á fasteign nær ekki 28.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga, 1. febrúar 2023. Einnig verður gefinn kostur á því að gjaldendur geti greitt upp fasteignagjöldin á einum gjalddaga í maí og eigi síðar en 10. maí 2023, séu þau jöfn eða umfram 28.000 kr.
Byggðarráð samþykkir að álagningarhlutfall fasteignaskatts og lóðarleigu verði óbreytt frá árinu 2022. Landleiga beitarlands verði 11.000 kr./ha og landleiga ræktunarlands verði 16.500 kr./ha. Fjöldi gjalddaga verður tíu. Gjaldskránni vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 7. fundur - 14.12.2022

Vísað frá 22. fundi byggðarráðs frá 16. nóvember sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram gjaldskrá fasteignaskatts, lóðar- og landleigu fyrir árið 2023.Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði tíu, frá 1. febrúar 2023 til 1. nóvember 2023. Heildarálagning á fasteign sem ekki nær 350 kr. fellur niður. Ef álagning fasteignagjalda á fasteign nær ekki 28.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga, 1. febrúar 2023. Einnig verður gefinn kostur á því að gjaldendur geti greitt upp fasteignagjöldin á einum gjalddaga í maí og eigi síðar en 10. maí 2023, séu þau jöfn eða umfram 28.000 kr.
Byggðarráð samþykkir að álagningarhlutfall fasteignaskatts og lóðarleigu verði óbreytt frá árinu 2022. Landleiga beitarlands verði 11.000 kr./ha og landleiga ræktunarlands verði 16.500 kr./ha.
Fjöldi gjalddaga verður tíu. Gjaldskránni vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Gjaldskráin borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.