Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

22. fundur 16. nóvember 2022 kl. 14:00 - 16:13 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Samþykkt var samhljóða í upphafi fundar að taka mál 2211182 Tímabundin lokun Bjarkarstígs, á dagskrá með afbrigðum.

1.Samningur við Björgunarsveitina Skagfirðingasveit

Málsnúmer 2206288Vakta málsnúmer

Fulltrúar Skagfirðingasveitar, björgunarsveitar komu á fund byggðarráðs til viðræðu um endurnýjun samnings við sveitina. Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

2.Þróun aðlögunaraðgerða vegna loftlagsbreytinga - boð um þátttöku

Málsnúmer 2211093Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 7. nóvember 2022 til sveitarfélaga og landshlutasamtaka frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Leitað hefur verið til sambandsins til að óska eftir áhugasömum sveitarfélögum til þátttöku við að þróa aðlögunaraðgerðir vegna loftsagsbreytinga. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Skrifstofa loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, Byggðastofnun og Skipulagsstofnun óska eftir þátttöku nokkurra sveitarfélaga við að móta aðferðafræði fyrir sveitarfélög til þess að bregðast við afleiðingum loftslagsbreytinga.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir að taka þátt í verkefninu.

3.Útsvarshlutfall í Skagafirði árið 2023

Málsnúmer 2211107Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að hlutfallstala útsvars í Skagafirði (5716) á árinu 2023 verði 14,52%, sem er óbreytt hlutfall frá árinu 2022.
Byggðarráð samþykkir að útsvarshlutfall ársins 2023 verði 14,52% og vísar til staðfestingar sveitarstjórnar.

4.Gjaldskrá fasteignagjalda 2023

Málsnúmer 2211106Vakta málsnúmer

Lögð fram gjaldskrá fasteignaskatts, lóðar- og landleigu fyrir árið 2023.Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði tíu, frá 1. febrúar 2023 til 1. nóvember 2023. Heildarálagning á fasteign sem ekki nær 350 kr. fellur niður. Ef álagning fasteignagjalda á fasteign nær ekki 28.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga, 1. febrúar 2023. Einnig verður gefinn kostur á því að gjaldendur geti greitt upp fasteignagjöldin á einum gjalddaga í maí og eigi síðar en 10. maí 2023, séu þau jöfn eða umfram 28.000 kr.
Byggðarráð samþykkir að álagningarhlutfall fasteignaskatts og lóðarleigu verði óbreytt frá árinu 2022. Landleiga beitarlands verði 11.000 kr./ha og landleiga ræktunarlands verði 16.500 kr./ha. Fjöldi gjalddaga verður tíu. Gjaldskránni vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Reglur um afslátt tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti 2023

Málsnúmer 2211109Vakta málsnúmer

Lagt fram vinnuskjal um breytingu á reglum um afslátt tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti 2023.
Byggðarráð samþykkir að breyta reglunum þannig að tekjumörk hækki um 14,0% frá árinu 2022 og að hámarksafsláttur verði óbreyttur frá árinu 2022, 80.000 kr. og vísar reglunum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts 2023

Málsnúmer 2211108Vakta málsnúmer

Lagðar fram reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts á árinu 2023.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

7.Reglur um stuðnings- og stoðþjónustu

Málsnúmer 2211073Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að reglum um stuðning- og stoðþjónustu sem byggir á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum, lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Með reglum þessum falla úr gildi Reglur um félagslega liðveislu og Reglur um félagslega heimaþjónustu. Reglunum vísað frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefnd.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

8.Samþykktir fyrir öldungaráð Skagafjarðar

Málsnúmer 2211055Vakta málsnúmer

Samþykktum fyrir öldungaráð Skagafjarðar vísað til byggðarráð frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefnd. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði.
Byggðarráð samþykkir samþykktirnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

9.Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning

Málsnúmer 2211071Vakta málsnúmer

Reglum Skagafjarðar um sérstakan húsnæðisstuðning vísað til byggðarráðs frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefnd. Reglurnar eru annars vegar uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði og hins vegar eru gerðar efnislegar breytingar í 3. gr.
Byggðarráð samþykkir samþykktirnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

10.Reglur um húsnæðismál

Málsnúmer 2208271Vakta málsnúmer

Reglum Skagafjarðar um húsnæðismál vísað frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefnd. Reglurnar eru annars vegar uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði og hins vegar eru gerðar efnislegar breytingar í 11 lið um gerð leigusamninga, réttindi og skyldur leigutaka og leigusala, á forsendum laga sem taka gildi 1.janúar 2023, þar sem fjallað er um skráningarskyldu á öllum nýjum leigusamningum.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

11.Verklagsreglur um rekstrarstyrki til íþrótta-, æskulýðs- og forvarnamála

Málsnúmer 2208324Vakta málsnúmer

Starfsreglum Skagafjarðar varðandi úthlutun rekstrarstyrkja til íþrótta-, æskulýðs- og forvarnarmála, annara en UMSS, vísað til byggðarráðs frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefndar. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

12.Reglur um Hvatapeninga

Málsnúmer 2208322Vakta málsnúmer

Reglum Skagafjarðar um Hvatapeninga vísað til byggðarráðs frá 6. fundi félagsmála- og tómstundanefndar. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði.
Álfhildur Leifsdóttir (Vg og óháð) og Jóhanna Ey Harðardóttir (Byggðalista) leggja fram svohjóðandi tillögu:
VG og óháð ásamt Byggðalista leggja til að Byggðarráð vísi Reglum um Hvatapeninga aftur til félagsmála- og tómstundarnefndar og endurskoði aldursviðmið Hvatapeninga svo öll börn standi jöfn í sveitarfélaginu.

Greinagerð:

Mikilvægt er að sveitarfélagið skapi jafnan grundvöll fyrir öll börn til tómstundaiðkunar. Þátttaka barna í skipulögðu tómstundastarfi hefur fjölþætt gildi. Þau eru líklegri til að hreyfa sig í samræmi við ráðleggingar landlæknis, notist síður við vímugjafa, eru líklegri til að vera heilsuhraustari á seinni æviskeiðum og líður betur andlega, líkamlega og félagslega. Einnig gefur þetta fjölskyldum aukin tækifæri á frekari samverustundum. Allt ofangreint mun stuðla að heilsuhraustari einstaklingum með farsælli framtíð. Í lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er lögð áhersla á að stuðla að farsæld barna t.d. með lista- og æskulýðsstarf og starfsemi frjálsra félaga- og hagsmunasamtaka. Í þeim sömu lögum er skilgreining á barni þessi: Einstaklingur undir 18 ára aldri sem dvelur á yfirráðasvæði íslenska ríkisins.

Meirihluti byggðarráðs hafnar tillögunni með tveimur atkvæðum og leggur fram svohljóðandi bókun:

Samkvæmt nýlegri könnun verðlagseftirlits ASÍ á styrkjum til tómstundastarfs á meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins þá hafa frístundastyrkir hækkað hlutfallslega mest hjá sveitarfélaginu Skagafirði frá árinu 2020, eða um 60%, og eru hvatapeningar nú að upphæð 40 þúsund krónur á ári. Hvatapeningar í Skagafirði taka til barna frá og með því ári sem 5 ára aldri er náð, til og með því ári sem 18 ára aldri er náð. Hvatapeninga í Skagafirði er hægt að nýta til að greiða niður æfinga-/þátttökugjöld í skipulögðu íþrótta-, lista- og tómstundastarfi og er ætlað að auka jöfnuð í samfélaginu, fjölbreytileika íþrótta-, lista- og tómstundastarfs og styrkja félagslegt umhverfi og hafa jákvæð áhrif á þroska barna og unglinga.
Upphæð hvatapeninga í Skagafirði er um miðbik þeirrar fjárhæðar sem framangreind sveitarfélög eru með í styrki til frístundastyrkja en af þeim sveitarfélögum sem á annað borð bjóða upp á slíka styrki er fjárhæðin frá 10 þúsund krónum á ári og upp í 56 þúsund krónur á ári. Hæstu styrkirnir eru veittir hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þar sem iðkendagjöld barna eru að jafnaði mun hærri en gerist víða á landsbyggðinni.
Af þeim 20 sveitarfélögum sem verðlagskönnun ASÍ nær til eru langflest þeirra 18 sveitarfélaga sem á annað borð bjóða upp á frístundastyrki með aldursviðmið frá 5 eða 6 ára aldri, eða 13 sveitarfélög. Eitt sveitarfélag er með viðmið frá 4 ára aldri og fjögur sveitarfélög með viðmið frá 0-2 ára aldri.
Af þessu má sjá að vel er staðið að stuðningi við íþrótta-, lista- og tómstundastarf í Skagafirði þar sem fjölmargir aðilar leggja sig fram um að bjóða upp á fjölbreytta starfsemi á sanngjörnum kjörum.

Við leggjum því til að farið verði í vinnu á árinu 2023 við að skoða möguleikana á að lækka aldurstakmörk vegna hvatapeninga og þá kostnað við þá breytingu.
Einar E. Einarsson og Gísli Sigurðsson.

Fulltrúar VG og Óháðra og Byggðalistans óska bókað:

Okkur þykir afar miður að öll börn í Skagafirði sitji ekki við sama borð þegar kemur að úthlutun hvatapeninga sem skilar mismunun en ekki jöfnuð.
Það er ekki skrítið að hvatapeningar hafi hlutfallslega hækkað mest í sveitarfélaginu Skagafirði þar sem þeir voru 8.000 kr. frá upphafi úthlutunar hvatapeninga til ársins 2018 þar sem þeir voru hækkaðir upp í 25.000 kr. og svo árið 2020 í 40.000 kr. Vissulega var tekið stórt stökk í hækkun hvatarpeninga enda var löngu kominn tími til þess.
Samkvæmt tölum frístundastjóra má glögglega sjá að margar tómstunda- og íþróttagreinar eru í boði fyrir 5 ára og yngri. Einnig má sjá að um 20-30 börn á þeim aldri nýta sér samveru með foreldrum sínum í þeim greinum sem í boði eru.
Það væri ángæjulegt ef heilsueflandi- og fjölskylduvænn Skagafjörður væri leiðandi í þessum málum í stað þess að vera meðaltal annarra sveitarfélaga.

Byggðarráð samþykkir reglurnar með tveimur atkvæðum og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

13.Tímabundin lokun hluta Bjarkarstígs

Málsnúmer 2211182Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að Bjarkarstíg verði lokað tímabundið frá ca. 26. nóv og framyfir jól á svæðinu sunnan við Sauðárkróksbakarí. Svæðið verður skreytt og það notað sem jólasvæði fyrir fjölskylduna til að koma saman á aðventu og jólum og standa fyrir einhverjum smáum viðburðum. Erindinu vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 16:13.