Fara í efni

Samstarfsnefnd með Akrahreppi

6. fundur 29. mars 2011 kl. 13:00 - 14:50 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Valdimar Óskar Sigmarsson aðalm.
  • Jón Magnússon varam.
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
  • Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Herdís Á Sæmundardóttir fræðslustjóri
  • Agnar Gunnarsson oddviti Akrahrepps
  • Þorleifur Hólmsteinsson fulltrúi Akrahrepps
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Varmahlíðarskóli - starfslýsing skólastjóra

Málsnúmer 1103158Vakta málsnúmer

Samstarfsnefnd Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að auglýst verði eftir nýjum skólastjóra Varmahlíðarskóla, sem taki til starfa í síðasta lagi 1. ágúst 2011. Gerður verður starfssamningur við væntanlegan skólastjóra sem tekur mið af almennum lagalegum skyldum sambærilegra starfa. Jafnframt verður leitað eftir því við nýjan skólastjóra að hann eða staðgengill hans, annist umsjón íþróttamannvirkja í Varmahlíð í að minnsta kosti tólf mánuði við upphaf ráðningartíma. Þessi tími verður notaður til að reyna að ná fram frekari hagræðingu í rekstri sundlaugar og íþróttahúss í Varmahlíð til lengri tíma. Skólastjóri skal hafa náið samstarf við umsjónarmann íþróttamannvirkja í Sveitarfélaginu Skagafirði og vaktstjóra íþróttamannvirkja í Varmahlíð.

2.Auglýsing eftir skólastjóra Varmahlíðarskóla

Málsnúmer 1103155Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að auglýsingu eftir skólastjóra Varmahlíðarskóla.

Framlögð drög samþykkt með áorðnum breytingum.

3.Samstarfssamningur - endurskoðun

Málsnúmer 1103159Vakta málsnúmer

Samþykkt að taka núverandi samsstarfssamning til endurskoðunar sem fyrst.

Fundi slitið - kl. 14:50.