Fara í efni

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar

304. fundur 22. ágúst 2013 kl. 16:15 - 17:15 í Safnahúsi við Faxatorg
Nefndarmenn
  • Bjarni Jónsson forseti
  • Stefán Vagn Stefánsson aðalm.
  • Sigríður Magnúsdóttir 1. varaforseti
  • Bjarki Tryggvason aðalm.
  • Viggó Jónsson aðalm.
  • Jón Magnússon aðalm.
  • Sigríður Svavarsdóttir aðalm.
  • Þorsteinn Tómas Broddason 2. varaforseti
  • Sigurjón Þórðarson aðalm.
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
  • Helga Sigurrós Bergsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Helga Sigurrós Bergsdóttir stjórnsýsluritari
Dagskrá

1.Byggðarráð Skagafjarðar - 628

Málsnúmer 1306010FVakta málsnúmer

Fundargerð 628. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 304. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Þorsteinn Tómas Broddason, Stefán Vagn Stefánsson, Sigurjón Þórðarson og Stefán Vagn Stefánsson kvöddu sér hljóðs.

1.1.Skarðseyri - nýframkvæmd vegar

Málsnúmer 1305164Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 628. fundar byggðaráðs staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

1.2.Árskóli - staða framkvæmda.

Málsnúmer 1302138Vakta málsnúmer

Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra leggur fram svohljóðandi bókun:
Skort hefur mjög á eðlilega upplýsingagjöf vegna byggingaframkvæmda við Árskóla s.s. að fundargerðir bygginganefndar Árskóla séu kynntar öllum kjörnum fulltrúum sveitarfélagsins um leið og þær liggja fyrir. Sömuleiðis er eðlilegt að þær fái kynningu og umræðu í sveitarstjórn Skagafjarðar.
Á fundi sveitarstjórnarfólks Frjálslyndra og óháðra í Skagafirði sem fram fór þann 18. ágúst sl. var ákveðið að óskað yrði eftir upplýsingum sem snúa að heildarkostnaði við verkið miðað við núverandi stöðu þess. Engin svör hafa enn borist og verður þá að ætla að það kostnaðarmat liggi ekki fyrir jafnvel þó svo að það styttist mjög í verklok.

Afgreiðsla 628. fundar byggðaráðs staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

1.3.Umsókn um leyfi til fornleifarannsókna

Málsnúmer 1306136Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 628. fundar byggðaráðs staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

1.4.Styrktarsjóður EBÍ 2013

Málsnúmer 1306117Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 628. fundar byggðaráðs staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

1.5.Tillaga um kaup á íbúð

Málsnúmer 1306126Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 628. fundar byggðaráðs staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

1.6.Andsvar við athugasemdum

Málsnúmer 1306134Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 628. fundar byggðaráðs staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

2.Umhverfis- og samgöngunefnd - 87

Málsnúmer 1308001FVakta málsnúmer

Fundargerð 87. fundar umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til afgreiðslu á 304. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sigríður Magnúsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.

2.1.Hesteyri 2 - Umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 1307164Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 87. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

2.2.Spítalastígur - gatnagerð 2013

Málsnúmer 1308011Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 87. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

2.3.Þjóðvegur í þéttbýli - Strandvegur

Málsnúmer 1210466Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 87. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

2.4.Skarðsmóar - Urðunarstaður lokunaráætlun.

Málsnúmer 1209039Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 87. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

3.ö Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 22

Málsnúmer 1308006FVakta málsnúmer

Fundargerð 22. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi lögð fram til afgreiðslu á 304. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sigríður Svavarsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.

3.1.Birkilundur - biðlisti

Málsnúmer 1306041Vakta málsnúmer

Fundargerð 22. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

3.2.Varmahlíðarskóli - kerfisloft

Málsnúmer 1308047Vakta málsnúmer

Fundargerð 22. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

3.3.Fjárhagsáætlun 2014

Málsnúmer 1307162Vakta málsnúmer

Fundargerð 22. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 304. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

4.Viðauki við fjárhagsáætlun 2013 - Samgöngumál

Málsnúmer 1304390Vakta málsnúmer

Bókun frá 629. fundi byggðarráðs þann 27. júní 2013 lögð fram til staðfestingar á fundi sveitarstjórnar.

"Vegna samnings á milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Air Arctic um áætlunarflug á milli Sauðárkróks og Reykjavíkur, þarf að gera viðauka á fjárhagsáælun ársins 2013. Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar samþykkir að hækka fjárheimildir málaflokks 10890 um 7.700.000 kr. Fjármögnuninni mætt með lántöku."

Sigurjón Þórðarson og Stefán Vagn Stefánsson kvöddu sér hljóðs.

Viðauki við fjárhagsáætlun 2013 - Samgöngumál, borin undir atkvæði og samþykkt á 304. fundi sveitarstjónar með átta atkvæðum, einn fulltrúi sat hjá.

5.Viðauki við fjárhagsáætlun 2013 - framkvæmdir

Málsnúmer 1308012Vakta málsnúmer

Bókun frá 633. fundi byggðarráðs þann 8. ágúst 2013 lögð fram til staðfestingar á fundi sveitarstjórnar.

"Lögð fram tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun 2013. Um er að ræða hækkun á framkvæmdalið eignasjóðs vegna gatnagerðar, að upphæð 22.000.000 kr."
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að hækka framkvæmdalið eignasjóðs um 22.000.000 kr. og mætt með aukinni lántöku.

Sigurjón Þórðarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frálslyndra og óháðra situr hjá við afgreiðslu viðaukans, þar sem að ekki hafa enn fengist svör um hver skuldastaða sveitarfélagsins verði í lok ársins miðað við þær breytingar sem eru fyrirséðar á samþykktri fjárhagsáætlun.

Ásta Björg Pálmadóttir kvaddi sér hljóðs, þá Stefán Vagn Stefánsson, Sigurjón Þórðarson, Ásta Björg Pálmadóttir, Þorsteinn Tómas Broddason, Ásta Björg Pálmadóttir.

Viðauki við fjárhagsáætlun 2013 - framkvæmdir, borin undir atkvæði og samþykkt á 304. fundi sveitarstjónar með átta atkvæðum.

6.Umsókn um langtímalán 2013

Málsnúmer 1306072Vakta málsnúmer

Bókun frá 631. fundi byggðarráðs þann 18. júlí 2013 lögð fram til staðfestingar á fundi sveitarstjórnar.

"Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 200.000.000 kr. til 15 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir við smábátahöfn sveitarfélagsins auk þess að fjármagna gatnagerð, lyftu í Safnahúsi, breytingar á leikskóla og almennar framkvæmdir eignasjóðs við viðhald opinna svæða og stíga, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Ástu Björg Pálmadóttur kt. 040764-2839, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari."

Sigurjón Þórðarson kvaddi sér hljóðs, þá Stefán Vagn Stefánsson og Sigurjón Þórðarson sem lagði fram eftirfarandi bókun.

Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra óskar bókað: "Óneitanlega skýtur það skökku við að sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar undir forystu Framsóknarflokksins skuli leggja fram hér til samþykktar verðtryggðan lánasamning til 15 ára m.a. til þess að fjármagna framkvæmdir á Sauðárkróki, á sama tíma og Framsóknarflokkurinn í ríkisstjórn er í þann mund að afnema verðtrygginguna jafnvel á næstu mánuðum ef mark má taka á forsætisráðherra.

Stefán Vagn Stefánsson tók til máls og ítrekar bókun meirihlutans frá 631. fundi byggðarráðs þann 18. júlí.
"Eftir að hafa kynnt sér þau kjör sem fjármálastofnanir bjóða upp á var það mat fjármálastjóra og sveitarstjóra að sá samningur sem hér um ræðir væri sá hagfeldasti fyrir sveitarfélagið. Í samningnum er uppgreiðsluákvæði sem hægt er að nýta ef kjör samningsins breytast verulega og betri kjör fást annarsstaðar.
Stefán Vagn Stefánsson, Gísli Árnason, Jón Magnússon"

Umsókn um langtímalán borin undir atkvæði og samþykkt á 304. fundi sveitarstjónar með átta atkvæðum, einn sat hjá.

7.Byggðarráð Skagafjarðar - 629

Málsnúmer 1306016FVakta málsnúmer

Byggðarráð hafið heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar frá 21. júní til 20. ágúst 2103.
Fundargerð 629. fundar byggðarráðs frá 27. júní 2013 lögð fram til kynningar á 304. fundi sveitarstjórnar.

8.Byggðarráð Skagafjarðar - 630

Málsnúmer 1307003FVakta málsnúmer

Byggðarráð hafið heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar frá 21. júní til 20. ágúst 2103.
Fundargerð 630. fundar byggðarráðs frá 4. júlí 2013 lögð fram til kynningar á 304. fundi sveitarstjórnar.

9.Byggðarráð Skagafjarðar - 631

Málsnúmer 1307004FVakta málsnúmer

Byggðarráð hafði heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar frá 21. júní til 20. ágúst 2103.
Fundargerð 631. fundar byggðarráðs frá 18. júlí 2013 lögð fram til kynningar á 304. fundi sveitarstjórnar.

10.Byggðarráð Skagafjarðar - 632

Málsnúmer 1307007FVakta málsnúmer

Byggðarráð hafði heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar frá 21. júní til 20. ágúst 2103.
Fundargerð 632. fundar byggðarráðs frá 19. júlí 2013 lögð fram til kynningar á 304. fundi sveitarstjórnar.

11.Byggðarráð Skagafjarðar - 633

Málsnúmer 1308002FVakta málsnúmer

Byggðarráð hafði heimild til fullnaðarafgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnar frá 21. júní til 20. ágúst 2103.
Fundargerð 633. fundar byggðarráðs frá 8. ágúst 2013 lögð fram til kynningar á 304. fundi sveitarstjórnar.

12.Veitur - Fundargerðir 2013

Málsnúmer 1302060Vakta málsnúmer

171. fundargerð stjórnar Skagafjarðarveitna frá 9. júlí 2013 lögð fram til kynningar á 304. fundi sveitarstjórnar.
Þorsteinn Tómas Broddason kvaddi sér hljóðs, þá Ásta Björg Pálmadóttir.

13.Fundargerðir stjórnar 2013

Málsnúmer 1301015Vakta málsnúmer

Fundargerð stjórnar Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra frá 2. júlí 2013 lögð fram til kynningar á 304. fundi sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 17:15.