Fara í efni

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar

340. fundur 04. maí 2016 kl. 11:45 - 11:57 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Sigríður Svavarsdóttir forseti
  • Sigríður Magnúsdóttir 1. varaforseti
  • Stefán Vagn Stefánsson aðalm.
  • Bjarki Tryggvason aðalm.
  • Viggó Jónsson aðalm.
  • Þórdís Friðbjörnsdóttir aðalm.
  • Bjarni Jónsson 2. varaforseti
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir aðalm.
  • Gísli Sigurðsson 1. varam.
Starfsmenn
  • Ásta Björg Pálmadótttir sveitarstjóri
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Ársreikningur 2015

Málsnúmer 1605001Vakta málsnúmer

Ásta Pálmadóttir, sveitarstjóri tók til máls og kynnti ársreikning Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana þess, fyrir árið 2015.

Ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2015 er hér lagður fram til fyrri umræðu. Ársreikningurinn samanstendur af upplýsingum um A-hluta sveitarsjóðs og A og B hluta samantekinn. Í A-hluta er aðalsjóður auk eignasjóðs og þjónustustöðvar. Í B-hluta eru veitustofnanir, hafnarsjóður, félagslegar íbúðir og Tímatákn ehf.
Rekstrartekjur Sveitarfélagsins Skagafjarðar námu á árinu 4.316 millj. króna af samstæðunni í heild. Þar af voru rekstrartekjur A-hluta 3.652 millj. króna. Rekstrargjöld samstæðunnar að frátöldum afskriftum og fjármagnsliðum voru 3.952 millj. króna, þar af A-hluti 3.540 millj. króna. Rekstrarhagnaður A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 364 millj. króna, þar af er rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð fyrir afskriftir og fjármagnsliði um 113 millj. króna. Afskriftir eru samtals 178 millj. króna, þar af 101 millj. króna hjá A-hluta. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru hjá samstæðunni í heild samtals um 251 millj. króna, þ.a. eru 188 millj. króna fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur í A-hluta sveitarsjóðs. Rekstrarhalli A og B hluta á árinu 2015 er 97 millj. króna og rekstrarniðurstaða A hluta er neikvæð um 176 millj. króna.

Eignir Sveitarfélagsins Skagafjarðar A og B hluta voru í árslok samtals 7.708 millj. króna, þar af voru eignir A-hluta 5.812 millj. króna. Skuldir og skuldbindingar voru í árslok 2015 samtals 6.056 millj. króna, þar af hjá A-hluta 4.772 millj. króna. Langtímaskuldir námu alls 3.711millj. króna hjá A og B hluta auk 368 millj. króna næsta árs afborgana. Eigið fé nam 1.653 millj. króna hjá samstæðunni í árslok og er eiginfjárhlutfall 21%. Lífeyrisskuldbindingar nema 1.057 millj. króna í árslok og hækkuðu á árinu um 107 millj. króna nettó.

Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 275 millj. króna, þar af er veltufé frá rekstri A-hluta 87 millj. króna. Handbært fé frá rekstri A og B hluta er 264 millj. króna. Fjárfestingahreyfingar samstæðunnar námu á árinu 2015, 351 millj. króna, þar af námu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 366 millj. króna. Afborganir langtímalána námu 358 millj. króna, handbært fé lækkaði um 5 millj. króna á árinu og nam það 7 millj. króna í árslok. Tekin ný langtímalán og skuldbreytingar voru að fjárhæð 334 millj. króna.

Í 64.gr. nýrra sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að heildarskuldir og skuldbindingar A og B hluta í reikningsskilum skv. 60. gr. megi ekki vera hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum. Frá heildarskuldum og skuldbindingum er heimilt að draga frá hluta lífeyrisskuldbindinga sem og tekjur og skuldir veitna. Hjá Sveitarfélaginu Skagafirði er skuldahlutfall í ársreikningi fyrir árið 2015, 140% án þess að dreginn sé frá sá hluti af heildarskuldum og skuldbindingum sem heimilað er.

Að lokum þakkaði sveitarstjóri öllu starfsfólki Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir þann góða árangur sem náðst hefur í rekstri sveitarfélagsins og síðast en ekki síst öllum þeim sem lögðu á sig ómælda vinnu við gerð þessa ársreiknings.

Sveitarstjórn samþykkir með öllum atkvæðum að vísa ársreikningnum til síðari umræðu.

Fundi slitið - kl. 11:57.