Fara í efni

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar

242. fundur 17. febrúar 2009 kl. 16:00 - 16:00 í Safnahúsi við Faxatorg
Fundargerð ritaði: Engilráð Margrét Sigurðardóttir, skjalastjóri
Dagskrá

1.

Málsnúmer Vakta málsnúmer

1.1.Hafnarlóð bílastæði - kaup á lifrarbræðsluhúsi Hofsósi

Málsnúmer 0901040Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 466. fundar byggðarráðs staðfest á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 með níu atkvæðum.

1.2.Launað leyfi - umsókn Hjalti Pálsson

Málsnúmer 0901100Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 466. fundar byggðarráðs staðfest á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 með níu atkvæðum.

1.3.Verkefni um hagsmunagæslu í úrgangsmálum

Málsnúmer 0709016Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09.

2.Félags- og tómstundanefnd - 137

Málsnúmer 0902007FVakta málsnúmer

Fundargerð 137. fundar félags- og tómstundanefndar lögð fram til afgreiðslu á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 eins og einstök erindi bera með sér. Þórdís Friðbjörnsdóttir kynnti fundargerð.
Til máls tóku Bjarni Jónsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, með leyfi 1. varafoseta, fleiri ekki.

2.1.Unglingalandsmót UMFÍ 2009 - umsókn

Málsnúmer 0902023Vakta málsnúmer

Bjarni Jónsson lagði fram bókun:
?Undirritaður fagnar ákvörðun stjórnar Ungmennafélags Íslands um að 12. Unglingalandsmót UMFÍ í sumar fari fram á Sauðárkróki dagana 31. júlí til 2. ágúst. Alls sóttust 6 aðilar eftir að halda mótið sem allir hefðu verið vel að því komnir. Þessi ákvörðun felur því í sér mikla viðurkenningu á því góða starfi sem íþróttahreyfingin í Skagafirði hefur skilað á undanförnum árum, en hér hefur verið haldið hvert stórmótið af öðru með glæsibrag. Þá er íþróttaaðstaða fyrir flestar keppnisgreinar á Unglingalandsmóti með því ákjósanlegasta og íþróttasvæðið sem enn er óskert mun nýtast vel og skapa mótinu veglega umgjörð.?

Afgreiðsla 137. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 með níu atkvæðum.

3.Skipulags- og byggingarnefnd - 168

Málsnúmer 0902004FVakta málsnúmer

Fundargerð 168. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð.
Enginn kvaddi sér hljóðs.

3.1.Sauðárkrókur - Rammaskipulag

Málsnúmer 0809061Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09.

4.Umhverfis- og samgöngunefnd - 39

Málsnúmer 0901024FVakta málsnúmer

Fundargerð 39. fundar umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til afgreiðslu á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 eins og einstök erindi bera með sér. Þórdís Friðbjörnsdóttir kynnti fundargerð. Til máls tók Bjarni Jónsson, fleiri ekki.

4.1.Skagafjarðarhafnir - ársyfirlit

Málsnúmer 0801052Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09.

4.2.Skagafjarðarhafnir - Gjaldskrárhækkun 2009

Málsnúmer 0811045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09.

4.3.Skagafjarðarhafnir - Bláfánaverkefni Landverndar

Málsnúmer 0901090Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09.

4.4.Skagafjarðarhafnir-Suðurgarður Sauðárkrókshöfn

Málsnúmer 0807034Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09.

4.5.Skagafjarðarhafnir ? óveðurstjón

Málsnúmer 0811015Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 39. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 með níu atkvæðum.

4.6.Hólar í Hjaltadal - Takmörkun umferðarhraða

Málsnúmer 0901091Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 39. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 með níu atkvæðum.

5.ö Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 2

Málsnúmer 0902006FVakta málsnúmer

Fundargerð Samstarfsnefndar með Akrahreppi 10.02.09 lögð fram til afgreiðslu á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 eins og einstök erindi bera með sér. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.

5.1.Samstarfssamningur - endurskoðun

Málsnúmer 0802069Vakta málsnúmer

Afgreiðsla Samstarfsnefndar með Akrahreppi 10.02.09 staðfest á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 með níu atkvæðum.

6.Fundargerð Skagafjarðarveitna 03.02.2009

Málsnúmer 0901085Vakta málsnúmer

Fundargerð Skagafjarðarveitna nr. 113, 03.02.09 lögð fram til kynningar á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09. Til máls tók Bjarni Jónsson, fleiri ekki.

7.Fundargerð Heilbr.nefndar Nl.v. 06.02.09.

Málsnúmer 0902018Vakta málsnúmer

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Nl.v. 06.02.09 lögð fram til kynningar á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09.

8.Stjórnarfundargerð SÍS nr. 760, 23.01.09.

Málsnúmer 0901096Vakta málsnúmer

Fundargerð SÍS nr. 760, 23.01.09 lögð fram til kynningar á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09.

9.Byggðarráð Skagafjarðar - 466

Málsnúmer 0902002FVakta málsnúmer

Fundargerð 466. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 eins og einstök erindi bera með sér. Gunnar Bragi Sveinsson kynnti fundargerð.
Til máls tóku Bjarni Jónsson, Páll Dagbjartsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Bjarni Jónsson, fleiri ekki.

9.1.Bygging leikskóla við Árkíl 2 á Sauðárkróki

Málsnúmer 0808037Vakta málsnúmer

Afgreiðslu þessa liðar var frestað á 466. fundi byggðarráðs.

Bjarni Jónsson lagði fram bókun:
?Ég vil vekja athygli á því að samkomulag við Kaupfélag Skagfirðinga um efniskaup vegna leikskólabyggingar við Árkíl var lagt fyrir byggðaráð undirritað og með vottum til afgreiðslu á fundi ráðsins þann 5. febrúar síðastliðinn. Ekki hafði verið áður um málið rætt í byggðaráði. Vinnubrögð sem þessi bera því ekki vott um góða stjórnsýsluhætti. Því er hinsvegar fagnað að orðið varð við ósk fulltrúa minnihlutans um að fresta afgreiðslu málsins og að jafnframt verði gerðar lagfæringar á texta til að bæta orðfæri er ætlað er að gæta hagsmuna sveitarfélagsins. Það er jákvætt að beina viðskiptum eins og kostur er til fyrirtækja í heimabyggð enda séu kjör sem í boði eru engu lakari en annarsstaðar og þess gætt í hvívetna. Ekki er samt ljóst hvað hastar svo á í þessu máli þar sem að ekki liggur enn fyrir hvernig fjármögnun framkvæmda verður háttað og hvort hagstæð lán fáist fyrir framkvæmdinni.?

Gunnar Bragi Sveinsson lagði fram bókun:
?Undirritaður mótmælir rangfærslu fulltrúa VG þar sem um drög að samkomulagi var að ræða.?

Bjarni Jónsson lagði fram bókun:
?Ekkert kom fram í samkomulaginu um að um drög væri að ræða, en það var jafnframt undirritað.?

9.2.Gagnaveita Skagafjarðar - Hlutafjáraukning

Málsnúmer 0806060Vakta málsnúmer

Hluthafasamkomulag dagsett 3. febrúar 2009 á milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Skagafjarðarveitna ehf og Kaupfélags Skagfirðinga annars vegar og Gagnaveitu Skagafjarðar hins vegar, um hlutafjáraukningu á árinu 2009 að upphæð 55 milljónir króna, borið upp sérstaklega á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 og afgreiðsla 466. fundar byggðarráðs samþykkt með níu atkvæðum.

9.3.Fundarboð frá undirbúningshópi um sameiginlega starfsendurhæfingu á Nl.v.

Málsnúmer 0812064Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 466. fundar byggðarráðs staðfest á 242. fundi sveitarstjórnar 17.02.09 með níu atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 16:00.