Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar

125. fundur 27. febrúar 2017 kl. 15:00 - 16:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Ari Jóhann Sigurðsson varaform.
  • Einar Þorvaldsson aðalm.
  • Steinar Skarphéðinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Indriði Þór Einarsson Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Samgönguáætlun

Málsnúmer 1702020Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd mun funda með fulltrúum Vegagerðarinnar miðvikudaginn 8. mars nk. Farið var yfir helstu áherslur Sveitarfélagsins er varða viðhald vega og er vísað í bókun nefndarinnar á 95. fundi nefndarinnar þann 26. febrúar 2014. Áhersla verður lögð á uppbyggingu Reykjastrandavegar og viðhaldsþörf annara tengivega í Skagafirði.



Lögð voru fram til kynningar drög að erindi til siglingasviðs Vegagerðarinnar þar sem lagðar eru fram áherslur og forgangsröðun Skagafjarðarhafna er varða viðhalds- og nýframkvæmdaverkefni.

Fulltrúar Sveitarfélagsins munu funda með siglingasviði Vegagerðarinnar fimmtudaginn 9. mars nk.

2.Flokkun á sorpi í dreifbýli

Málsnúmer 1405040Vakta málsnúmer

Við breytingar á flokkun og sorphirðu í dreifbýli þarf að endurskoða gjaldskrá þjónustunar.

Rætt var um mögulegar breytingar á gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpurðun í dreifbýli.

3.Erindi vegna sorpflokkunar í dreifbýli

Málsnúmer 1702268Vakta málsnúmer

Lagt var fyrir fundinn erindi frá Högna Elfari Gylfasyni varðandi breytingar á sorphirðu í drefibýli.

Sveitarfélagið Skagafjörður stefnir á að taka upp flokkun og sorphirðu á hverju lögheimili í Skagafirði. Málið verður kynnt íbúum frekar þegar nánari útfærsla liggur fyrir.

4.Rykmengun við malarvegi

Málsnúmer 1702270Vakta málsnúmer

Lagður var fram til kynningar tölvupóstur frá Heibrigðisfulltrúa norðurlands vestra varðandi rykmengun frá þjóðvegum sem ekki eru lagðir bundnu slitlagi. Tölvupósturinn var sendur til Umhverfisstofnunar vegna vinnu að almennri áætlun um loftgæði samkvæmt tilskipun 2008/50/EB um gæði andrúmslofts og hreinna loft í Evrópu. Nefndin mun ræða málið á fyrirhuguðum fundi með Vegagerðinni.

Fundi slitið - kl. 16:00.