Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar

166. fundur 17. febrúar 2020 kl. 10:00 - 12:20 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir formaður
  • Steinar Skarphéðinsson ritari
  • Svana Ósk Rúnarsdóttir áheyrnarftr.
  • Ari Jóhann Sigurðsson varam.
Starfsmenn
  • Indriði Þór Einarsson Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Ingvar Páll Ingvarsson verkefnastjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Regína Valdimarsdóttir
  • Álfhildur Leifsdóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Fundargerð ritaði: Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Sorphirða í dreifbýli

Málsnúmer 1808218Vakta málsnúmer

Undir þessum lið fundar sátu eftirtaldir fulltrúar frá búnaðarsambandi Skagafjarðar;
Guðrún Kristín Eiríksdóttir
Guðrún Lárusdóttir
Haraldur Þór Jóhannsson
Ástþór Örn Arnason
Davíð Logi Jónsson

Rætt var almennt um framtíðarskipulag á sorpmálum í dreifbýli og nauðsyn þess að kynna flokkun sorps með betri hætti.
Sviðstjóra er falið að taka saman upplýsingar um tilraunaverkefni í Hegranesi en ekki hefur verið tekið ákvörðun um breytingar á sorphirðu í Hegranesi.

2.Lokun gámastöðva í dreifbýli

Málsnúmer 1912128Vakta málsnúmer

Formaður umhverfis- og samgöngunefndar ásamt sviðsstjóra áttu fund með Önnu Maríu Hafsteinsdóttur á Veðramóti og Ásdísi Eddu Ásgeirsdóttur á Tungu vegna sorpmála. Anna og Ásdís eru ósáttar með það að gámur við Skarðsrétt hafi verið fjarlægður og eins að íbúum hafi ekki verið formlega tilkynnt um að gámurinn yrði fjarlægður. Sviðsstjóri ásamt nefndinni harmar að ekki hafi verið staðið rétt að kynningu þess að ákveðið hafi verið að fjarlægja gáma við Skarðsrétt, Ljósheima og Varmalæk.

3.Sorpmál í Fljótum

Málsnúmer 2002052Vakta málsnúmer

Lagt var fyrir erindi frá íbúa- og átthagafélagi Fljóta vegna stöðu sorpmála í Fljótum.
Búið er að óska eftir gámi undir pappa og pappír á gámasvæðið og er sviðstjóra falið að fylgja því eftir.

4.Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2040

Málsnúmer 1906041Vakta málsnúmer

Lögð var fyrir fundinn tillaga frá Umhverfisráðgjöf Íslands um verklag og kostnað við gerð umhverfisáætlunar fyrir sveitarfélagið fyrir tímabilið 2020 til 2040.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar til byggðaráðs.

5.Endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs

Málsnúmer 2001177Vakta málsnúmer

Lagt var fyrir fundinn erindi frá Umhverfisstofnun þar sem farið er yfir endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Ljóst er að auka þarf endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs og að auka þarf upplýsingagjöf til almennings varðandi flokkun.
Nefndin leggur til að Sveitarfélagið leiti leiða til að efla fræðslu um flokkun sorps með það að leiðarljósi að ná til allra íbúa sveitarfélagins í samstarfi við Flokku ehf. Nefndin boðar verkefnastjóra atvinnu- og menningarmála á næsta fund nefndarinnar.

6.Sauðárkrókshöfn - líkanareikningar 2020

Málsnúmer 2002104Vakta málsnúmer

Lögð voru fyrir fundinn til kynningar drög að frumniðurstöðum líkanareikninga fyrir Sauðárkrókshöfn, unna af siglingasviði Vegagerðarinnar. Í reikningunum er verið að skoða þrjú tilfelli, bæði saman og í sitthvoru lagi. Í fyrsta lagi eru skoðuð áhrif þess að fjarlægja totu sem liggur í suðvestur úr norðurgarði í innsiglingu Sauðárkrókshafnar ásamt því að framlengja norðurgarð un 20 til 30m. Í öðru lagi eru skoðuð áhrif nýs viðlegukants sunnan við suðurbryggju og í þriðja lagi er skoðuð útfærsla á nýrri ytri höfn.
Nefndin leggur til að fulltrúar frá siglingasviði Vegagerðarinnar verði boðaðir á fund nefndarinnar þegar vinnu við líkanareikninga er lokið.

7.Golfvöllurinn á Hlíðarenda

Málsnúmer 2001118Vakta málsnúmer

Lagt var fyrir nefndina erindi frá Golfklúbbi Skagafjarðar varðandi golfvöllinn á Hlíðarenda en golfklúbburinn fagnar 50 ára afmæli á árinu 2020.
Í erindinu segir m.a. að "Golfvallarsvæðið þarf að vera hluti af útivistarsvæði bæjarins þar sem golf, útivist og ferðamannaiðnaður næðu að sameinast á einu svæði."
Í niðurlagi erindis er óskað eftir því að umhverfis- og samgöngunefnd taki til athugunar að efla golfvallarsvæðið sem útivistarsvæði.
Nefndin óskar eftir fundi með fulltrúum frá Golfklúbbi Skagafjarðar til frekari umræðu.

8.Kórónasmit og sóttvarnaáætlun

Málsnúmer 2001250Vakta málsnúmer

Lagt var fyrir fundinn til kynningar erindi frá Hafnasambandi Íslands varðandi kórónasmit og sóttvarnaráætlun.

Fundi slitið - kl. 12:20.