Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar

83. fundur 04. desember 2020 kl. 13:00 - 13:43 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Gunnsteinn Björnsson formaður
  • Sigríður Magnúsdóttir varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir varam.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson Verkefnastjóri
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2021 - menningarmál - málaflokkur 05

Málsnúmer 2011168Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 fyrir málaflokk 05.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar henni til byggðaráðs.

2.Fjárhagsáætlun 2021 - atvinnu og ferðamál - málaflokkur 13

Málsnúmer 2011169Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 fyrir málaflokk 13.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar henni til byggðaráðs.

3.Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga og sérreglur sveitarfélaga um úthlutun

Málsnúmer 2009121Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dagsett 30. nóvember 2020, vegna úthlutunar byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021.
Úthlutaður byggðakvóti til Sveitarfélagsins Skagafjarðar er 155 tonn sem skiptast þannig:
Hofsós 15 tonn
Sauðárkrókur 140 tonn
Ráðuneytið óskar eftir rökstuddum tillögum varðandi sérstök skilyrði um úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðalaga. Tillögum skal skilað fyrir 8. desember 2020.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmönnum nefndarinnar að ítreka beiðni um sérreglur sem samþykktar voru á fundi nefndarinnar 7. október sl.

Fundi slitið - kl. 13:43.