Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

764. fundur 17. nóvember 2016 kl. 09:00 - 11:52 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Sigurjón Þórðarson varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Ásta Björg Pálmadótttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Sigurjón Þórðarson sat fundinn í stað Grétu Sjafnar Guðmundsdóttur.

Í upphafi fundar var samþykkt að taka mál nr. 1611114 af dagskrá.

1.Aðalgata 15,Ólafshús - Umsagnarbeiðni vegna breytingar á rekstrarleyfi

Málsnúmer 1611101Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 9. nóvember 2016 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra þar sem óskað er umsagnar um umsókn dagsetta 09.11. 2016, frá Tómasi Árdal kt. 210959-5489, Lerkihlíð 6, 550 Sauðárkróki f.h. Stá ehf., kt. 520997-2029. Óskað er eftir breytingu á rekstrarleyfi Ólafshúss, veitingastaður flokkur III með heimilaðan veitingatíma til kl.01:00 alla daga; þó til kl.03:00 aðfaranótt laugardags, sunnudags eða almenns frídags, einnig annan dag jóla frá 23:00 til 03:00 aðfaranótt nýársdags, föstudagsins langa og páskadag frá kl.00:00 til 04:00. Núverandi leyfi veitingastaður flokkur II með heimilaðan veitingatíma til kl.23:00 alla daga; þó til kl.01:00 aðfaranótt laugardags, sunnudags eða almenns frídags.

Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

2.Gjaldskrá 2017 - hunda- og kattahald

Málsnúmer 1611097Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 122. fundi umhverfis- og samgöngunefndar tillögu um breytingu á gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Sveitarfélaginu Skagafirði frá og með 1. janúar 2017. Lagt er til að gjaldskráin verði hækkuð um 5,5% frá núgildandi gjaldskrá.

Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Gjaldskrá 2017 - Fráveita og rotþrær

Málsnúmer 1611096Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 122. fundi umhverfis- og samgöngunefndar tillögu um breytingu á gjaldskrá fyrir fráveitugjald og tæmingu rotþróa í Sveitarfélaginu Skagafirði frá og með 1. janúar 2017. Lagt er til að gjaldskráin verði hækkuð um 5,5% frá núgildandi gjaldskrá.

Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Gjaldskrá 2017 - Sorpurðun og sorphirða

Málsnúmer 1611095Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 122. fundi umhverfis- og samgöngunefndar tillögu um breytingu á gjaldskrá fyrir sorpurðun og sorphirðu í Sveitarfélaginu Skagafirðifrá og með 1. janúar 2017. Lagt er til að gjaldskráin verði hækkuð um 5,5% frá núgildandi gjaldskrá.

Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2017

Málsnúmer 1611092Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 39. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar tillögu um að aðgangur að Byggðasafni Skagfirðinga í Glaumbæ verði á árinu 2017 1.600 kr. fyrir einstaklinga, 1.200 kr. fyrir hópa og námsmenn og gjaldfrjáls fyrir 17 ára og yngri. Nefndin samþykkti jafnframt að á árinu 2018 verði aðgangur að Byggðasafni Skagfirðinga í Glaumbæ 1.700 kr. fyrir einstaklinga, 1.300 kr. fyrir hópa og námsmenn og gjaldfrjáls fyrir 17 ára og yngri.



Bjarni Jónsson gerir tillögu um að aðgangseyrir fyrir hópa verði 1.500 kr. pr. mann á árinu 2018.

Byggðarráð samþykkir að vísa tillögu Bjarna Jónssonar til afgreiðslu atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar.

6.Gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga 2017

Málsnúmer 1611089Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 39. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar tillögu um að gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga verði óbreytt á árinu 2017 frá því sem nú er.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

7.Gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga 2017

Málsnúmer 1611090Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 39. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar tillögu um að gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga verði óbreytt á árinu 2017 frá því sem nú er.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

8.Gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga 2017

Málsnúmer 1611091Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 39. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar tillögu um að gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga breytist þannig að almennt lánþegagjald á Héraðsbókasafni Skagfirðinga verði hækkað í 2.500 kr. og að árgjald stofnana og skóla verðið hækkað í 5.000 kr. frá og með 1. janúar 2017. Aðrir liðir í gildandi gjaldskrá taki ekki breytingum.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

9.Gjaldskrá leikskóla

Málsnúmer 1611164Vakta málsnúmer

Með tilvísun í mál 1611120 frá 117. fundi fræðslunefndar þá samþykkti nefndin að gjaldskrá leikskóla vegna fæðis- og dvalargjalda hækki um 5,5% frá og með 1. janúar 2017.

Byggðarráð samþykkir tillöguna með tveimur atkvæðum og vísar hennni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bjarni Jónsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðsluna.

10.Gjaldskrá gunnskóla

Málsnúmer 1611163Vakta málsnúmer

Með tilvísun í mál 1611120 frá 117. fundi fræðslunefndar þá samþykkti nefndin að gjaldskrá grunnskóla vegna fæðis- og dvalargjalda hækki um 5,5% frá og með 1. janúar 2017.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

11.Gjaldskrá tónlistarskóla

Málsnúmer 1611165Vakta málsnúmer

Með tilvísun í mál 1611120 frá 117. fundi fræðslunefndar þá samþykkti nefndin að gjaldskrá tónlistarskóla hækki um 5,5% frá og með 1. janúar 2017.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

12.Reglur 2017 um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa

Málsnúmer 1611112Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 237. fundi félags- og tómstundanefndar tillögu um að greiðsluviðmið verði óbreytt frá því sem nú er, í reglum Sveitarfélagsins Skagafjarðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa skv. 27. grein laga um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 með síðari breytingum.

Byggðarráð samþykkir tillöguna með tveimur atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bjarni Jónsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðsluna.

13.Greiðslur 2017 vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn

Málsnúmer 1611111Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 237. fundi félags- og tómstundanefndar tillögu um greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn á árinu 2017, í samræmi við 21. og 55. grein laga nr. 59/1992.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

14.Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar 2017

Málsnúmer 1611107Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 237. fundi félags- og tómstundanefndar tillögu að grunnupphæð fjárhagsaðstoðar árið 2017 verði 82% af lágmarksatvinnuleysisbótum eins og verið hefur og miðast við bætur eins og þær eru í nóvembermánuði 2016, þ.e. 202.054 kr. Grunnupphæð hækki því í 161.643 kr. frá og með 1. janúar 2017.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

15.Heimaþjónusta Gjaldskrá 2017

Málsnúmer 1611041Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 237. fundi félags- og tómstundanefndar tillögu um að gjaldskrá heimaþjónustu verði óbreytt árið 2017 frá því sem nú er.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

16.Niðurgreiðsla dagvist barna á einkaheimilum 2017

Málsnúmer 1611108Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 237. fundi félags- og tómstundanefndar tillögu um niðurgreiðslur vegna dagvistar barna í heimahúsum á árinu 2017.

Byggðarráð samþykkir tillöguna með tveimur atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bjarni Jónsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðsluna.

17.Gjaldskrá 2017 Dagdvöl aldraðra

Málsnúmer 1611106Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 237. fundi félags- og tómstundanefndar tillögu um gjaldskrá fyrir dagdvöl aldraðra á árinu 2017.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

18.Vinnuskólalaun 2017

Málsnúmer 1611113Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 237. fundi félags- og tómstundanefndar tillögu um laun barna í vinnuskóla og ungmenna í V.I.T. verkefni á árinu 2017.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

19.Gjaldskrár 2017 - íþróttamannvirki

Málsnúmer 1610355Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 237. fundi félags- og tómstundanefndar tillögu að gjaldskrá fyrir íþróttamannvirki í Skagafirði frá 1. janúar 2017.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

20.Gjaldskrá 2017 - Hús frítímans

Málsnúmer 1610356Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 237. fundi félags- og tómstundanefndar tillögu að gjaldskrá fyrir fyrir Hús frítímans frá 1. janúar 2017.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

21.Dagdvöl aldraðra sept 2016

Málsnúmer 1609235Vakta málsnúmer

Vísað til byggðarráðs frá 236. fundi félags- og tómstundanefndar reglum um dagdvöl aldraðra.

Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar. Jafnframt tekur byggðarráð undir bókun félags- og tómstundanefndar varðandi fjölgun dvalarrýma.

22.Reglur um stofnframlög

Málsnúmer 1611119Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að reglum um veitingu stofnframlaga skv. lögum nr. 52/2016 um almennar íbúðir.

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að útbúa reglur fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð og leggja fyrir fund ráðsins.

23.Drög að reglugerð um heimagistingu o.fl.

Málsnúmer 1611044Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 763. fundar byggðarráðs og varðar umsögn um um drög að reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um að drögin verði ekki samþykkt sem reglugerð óbreytt.



Byggðarráð vill jafnframt leggja fram eftirfarandi athugasemdir:

Almennt: Í umræðu um breytingar á regluverki sem snúa að leyfisveitingum til veitinga- og gististaða var lagt upp með einföldun á kerfinu. Vandséð er að þau drög sem gerð eru hér athugasemdir við leiði til einföldunar. Leiðin sem boðuð er, er um margt flóknari og óskýrari en núgildandi reglur og á það sérstaklega við um minnstu gististaðina, heimagistingu. Fyrirhugað er að auka kröfur á sveitarstjórnir í umsýslu með umsagnir þ.e. taka saman gögn frá heilbrigðisnefnd og byggingafulltrúa og sameina umsögn frá framangreindum aðilum sem síðan verði skilað til sýslumanns. Samhliða aukinni vinnu sveitarfélaga, þá boðar reglugerðin minnkaðar tekjur til sveitarfélaganna. Ótímabundin rekstrarleyfi geta mögulega hamlað því að skipulagsyfirvöld geti gripið inn í starfsemi skemmti- og gististaða sem hafa neikvæð áhrif á næsta nágrenni.



Til raunverulegrar einföldunar, þá er lagt til að sú útfærsla verði skoðuð að sveitarfélögin eða stofnun á vegum sveitarfélaga gefi út eitt tímabundið starfsleyfi þar sem inni verði umsögn/leyfi þeirra stofnana sem reknar eru á vegum sveitarfélaga þ.e. bruna-, heilbrigðiseftirlit og skipulags og byggingarfulltrúa. Sýslumenn geta þá í framhaldinu gefið út sitt leyfi og kallað eftir sjálfkrafa í gagnagrunna ríkisins hvort að leyfisumsækjandi uppfylli þau skilyrði sem sett eru 25 gr. í liðum b,c,d,e,f,g,j, eftir því sem við á.



Umfjöllun um einstaka greinar:



Í fyrstu málsgrein 12 gr. má ráða að heimagisting eins og hún er skilgreind í reglugerðinni teljist ekki atvinnuhúsnæði og mun sú breyting leiða til lækkaðra fasteignagjalda fyrir sveitarfélagið af viðkomandi fasteignum.



Í 26. gr. koma fram auknar kröfur á sveitarstjórn um umsýslu með umsagnir þ.e. að afla umsagna frá heilbrigðisnefnd og byggingafulltrúa innan síns sveitarfélags og skila sameinaðri umsöng frá þeim.



Í greinum 13 gr., 38 gr., og 39 gr. er fjallað um skilgreiningu, skráningu og eftirlit með heimagistingu, sem miðast við skemmri útleigu á fasteign, en samanlagt í 90 daga. Fyrirsjáanlegt er að það verður mjög erfitt fyrir yfirvöld að færa sönnur á ef upp kemur grunur um að aðili sé kominn langt út fyrir þau mörk sem getið er um í 13 gr. Þess ber að geta að viðkomandi heimagisting þarf eftir sem áður starfsleyfi frá viðkomandi Heilbrigðisnefnd sbr. reglugerð 941/2002. Vandséð er að það sé árangursríkt eða hvað þá hagkvæmt að hafa einn eftirlitsaðila Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu með allri heimagistingu vítt og breitt um landið.



Í fjölmörgum greinum í II kafla reglugerðarinnar er ýmis upptalning á búnaði gististaða m.a. stærð rúma , lampa, sápu og vatnsglas ofl. Varla er það skynsamleg verkaskipting að vera með lögreglu og sýslumenn í að fylgja eftir framangreindum þáttum. Nær væri að koma umræddum kröfum fyrir í hollustháttareglugerð þar sem heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hafa nú þegar reglulegt eftirlit með viðkomandi starfsemi.



Það er ósk að sveitarfélagsins að áður en farið verði í útgáfu reglugerðarinnar verði leitast við að svara eftirfarandi þáttum:



a) Lagt verði mat á hve tekjur sveitarfélaga skerðast mikið vegna minnkaðra fasteignagjalda sbr. 12 gr.



b) Fá mat á kostnað við gerð og reksturs miðlægs gagnagrunns og eftirlit Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, með heimagistingu vítt og breitt um landið sbr. 39. gr.



24.Jólatré frá Kongsberg 2016

Málsnúmer 1610187Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 26. október 2016 frá vinabæ sveitarfélagsins í Noregi, þar sem fram kemur að Kongsberg mun ekki senda jólatré til sveitarafélagsins frá og með árinu 2017.



Byggðarráð þakkar Kongsberg fyrir þann hlýhug sem sýndur hefur verið í áratugi með því að senda jólatré að gjöf til íbúa sveitarfélagsins.

25.Fjárhagsáætlun 2017-2020

Málsnúmer 1608164Vakta málsnúmer

Farið yfir vinnugögn vegna fjárhagsáætlunar 2017-2020.

26.Sumarlokanir leikskóla 2017

Málsnúmer 1610291Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar bókun 117. fundar fræðslunefndar vegna sama máls undir málsnúmerinu 1611122.

27.Frístundakerfi og Nóri - hugbúnaður

Málsnúmer 1611043Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar um Nóra ? skráningar- og greiðslukerfi.

28.Fundagerðir 2016 - SSNV

Málsnúmer 1601003Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnarfundar SSNV frá 20. október 2016.

Fundi slitið - kl. 11:52.