Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

794. fundur 19. september 2017 kl. 09:00 - 10:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Afskriftabeiðni

Málsnúmer 1709137Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 13. september 2017 varðandi afskrift á fyrndu og óinnheimtanlegu útsvari að höfuðstólsupphæð 109.344 kr., samtals með vöxtum 191.355 krónur. Byggðarráð samþykkir að afskrifa framangreinda kröfu.

2.Afskriftarbeiðni

Málsnúmer 1709145Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 14. september 2017 varðandi afskrift á fyrndu og óinnheimtanlegu útsvari að höfuðstólsupphæð 39.741 kr., samtals með vöxtum 69.813 krónur. Byggðarráð samþykkir að afskrifa framangreinda kröfu.

3.Umsagnarbeiðni um sameiginlega lögreglusamþykkt fyrir Norðurland vestra

Málsnúmer 1709149Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá framkvæmdastjóra SSNV, Birni Líndal, dagsettur 14.september 2017, þar sem segir að stjórn SSNV hafi falið honum að skoða möguleika á sameiginlegri lögreglusamþykkt fyrir öll sveitarfélög á Norðurlandi vestra þ.e. í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

Óskað er eftir því að sveitarfélög landshlutans taki afstöðu til þess hvort þau séu fylgjandi því að til verði sameiginleg lögreglusamþykkt fyrir öll sveitarfélögin og sé svo, veiti þau umsögn um meðfylgjandi drög að slíkri samþykkt fyrir lok október n.k.

Meðfylgjandi drög er byggð á reglugerð um lögreglusamþykktir, sjá: https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/1127-2007, meðfylgjandi drög taka einnig að auki á nokkrum atriðum s.s. þeim sem hafa fylgt fjölgun ferðamanna til landsins.

Byggðarráð óskar eftir umsögn frá félags- og tómstundanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd og atvinnu- menningar og kynningarnefnd.

4.Háholt - leigusamningur við Barnaverndarstofu.

Málsnúmer 1705013Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Guðrúnu Sigurjónsdóttr, fjármála- og mannauðsstjóra Barnaverndarstofu, dagsettur 28.ágúst 2017, þar sem Barnaverndarstofa ítrekar ósk sína um að losna undan gildandi leigusamningi fyrir Háholt sem fyrst.
Þar sem ekki ligga fyrir endanleg svör frá velferðarráðherra og velferðarnefnd um lokun Háholts telur Byggðarráð ekki hægt að taka afstöðu til erindisins.

5.Rekstrarsamningur við skíðadeild

Málsnúmer 1709176Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að koma með drög að nýjum rekstrarsamningi við Skíðadeild Tindastóls með sama gildistíma og núverandi samningur.

6.Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks á Norðurl. vestra

Málsnúmer 1610152Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað til sveitarfélaga í Húnavatnssýslum og Skagafirði vegna þjónustusamnings um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk, frá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra. Lagt er til að sveitarfélögin samþykki meðfylgjandi þjónustusamning sem er til þriggja ára 2017-2019.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar staðfestir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi samning, með gildistíma 1. janúar 2017 - 31. desember 2019, um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk. Á gildistíma samningsins tekur Sveitarfélagið Skagafjörður að sér, skv. umboði sex sveitarstjórna, að veita þá þjónustu sem samningurinn fjallar um sem og að taka þær ákvarðanir og setja þær reglur sem framkvæmd verkefnisins kallar á. Byggðarráð vísar samningnum til sveitarstjórnar til endanlegs samþykkis.

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir óskar bókað að hún taki ekki þátt í afgreiðslu þessa liðar.

7.Íþróttavöllur á Sauðárkróki - gervigras

Málsnúmer 1609323Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð frá 30.ágúst 2017 vegna opnun tilboða í útboðsverkið "Gervigrasvöllur á Sauðárkróki - Jarðvinna, lagnir og uppsteypa". Tilboðin voru opnuð á skrifstofu Stoðar ehf verkfræðistofu, Aðalgötu 21, Sauðárkróki. Eitt tilboð barst frá Friðrik Jónssyni ehf að upphæð kr. 133.814.718, kostnaðaráætlun Stoð ehf verkfræðistofu er kr.108.524.550. Tilboðsfjárhæðin er 23.3% yfir kostnaðaráætlun.
Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði Friðriks Jónssonar ehf.

8.Húsnæðisþing Íbúðalánasjóðs 8. nóv 2017

Málsnúmer 1709166Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Íbúðalánasjóði dagsettur 15.september 2017 um að miðvikudaginn 8. nóvember n.k. verði haldið fyrsta árlega Húsnæðisþingið hér á landi. Húsnæðisþing er vettvangur þar sem lagður er grunnur að húsnæðisstefnu stjórnvalda og þar verður farið yfir stöðu húsnæðismála byggt á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga. Þá verða nýjustu rannsóknir á sviði húsnæðismála kynntar sem og mögulegar lausnir í húsnæðismálum. Á Húsnæðisþingi 2017 verður einnig farið sérstaklega yfir stöðu húsnæðissáttmála ríkisstjórnarinnar og eru sveitarfélög hvött til þess að taka daginn frá. ´
Byggðarráð hvetur þá sveitarstjórnarfulltrúa sem hafa tök á að mæta.


9.Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2017

Málsnúmer 1709180Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2017 sem haldin verður fimmtudaginn 5. október og föstudaginn 6. október á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu við Suðurlandsbraut í Reykjavík.
Byggðarráð samþykkir að sveitarstjórn sæki ráðstefnuna.

10.Suðurbraut 7 - fnr: 214-3674

Málsnúmer 1709175Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að auglýsa til sölu fasteignina að Suðurbraut 7, Hofsósi.

11.Ársskýrsla Persónuverndar 2016

Málsnúmer 1709174Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársskýrsla Persónuverndar 2016. Í ársskýrslunni má meðal annars finna ýmsan fróðleik um hlutverk og starfsemi Persónuverndar, auk ávarps forstjóra. Um mitt næsta ár kemur til framkvæmda ný evrópsk reglugerð um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Um er að ræða umfangsmestu breytingar sem gerðar hafa verið á persónuverndarlöggjöfinni í tvo áratugi, en löggjöfin verður innleidd hérlendis og mun ná til allrar vinnslu persónuupplýsinga á Íslandi. Hún mun því gilda um starfsemi hins opinbera, en einnig fyrir einkageirann og sveitarfélögin.

Fundi slitið - kl. 10:45.