Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

881. fundur 17. september 2019 kl. 08:30 - 09:23 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna fyrir heimsmarkmiðin og loftslagsmál

Málsnúmer 1905140Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá byggðarráðs þann 22. maí og 3. júlí 2019.
Byggðarráð leggur til eftirfarandi verði bókað á sveitarstjórnarfundi: "Sveitarstjórn fagnar því frumkvæði sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tekið með stofnun samráðsvettvangs, sem ætlaður er sveitarfélögum landsins til samstarfs og samráðs um loftslagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Sveitarstjórn telur brýnt að ríki og sveitarfélög grípi nú þegar til markvissra og samstilltra aðgerða til að mæta áskorunum samtímans á sviði loftslagsmála og aðlaga íslenskt samfélag að þeim breytingum sem þegar hafa átt sér stað og fyrirséðar eru vegna loftslagsbreytinga. Einn mikilvægasti liðurinn í því aðkallandi starfi er að íslenskt samfélag verði lagað að kröfum sjálfbærrar þróunar. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt gagnlegan grunn að slíku starfi með heimsmarkmiðum um sjálfbæra þróun.
Sveitarstjórn lýsir sig tilbúna til þátttöku í samráðsvettvanginum með þátttöku í fundum og viðburðum um loftslagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Á sínum vettvangi mun sveitarstjórn beita sér fyrir markvissum aðgerðum og stefnumótun í átt til aukinnar sjálfbærni og kolefnishlutleysis. Fulltrúar sveitarfélagsins munu einni, eftir því sem tilefni er til og aðstæður leyfa, taka þátt í miðlun þekkingar, þróun mælinga á árangri og öðru samstarfi sem tengist samráðsvettvanginum."

2.Fyrirspurn um framkvæmdir við Sundlaug Sauðárkróks

Málsnúmer 1909133Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. september 2019 frá Álfhildi Leifsdóttur þar sem óskað er eftir svörum við fyrirspurnum hennar vegna framkvæmda við Sundlaug Sauðárkróks.
Einnig lögð fram svör við framangreindum fyrirspurnum.
Byggðarráð samþykkir að spurningar og svör verði birt á heimasíðu sveitarfélagsins.

3.Erindi varðandi blint horn á Aðalgötu

Málsnúmer 1909141Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 12. september 2019 frá Rúnari Gíslasyni, lögreglumanni hjá embætti lögreglustjórans á Norðurlandi vestra. Óskar hann eftir því að settur verði upp spegill á ljósastaur gegnt lögreglustöðinni til að bæta sjónarhorn þeirra til norðurs, sem keyra frá bílaplani við Landsbankann og lögreglustöðina.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu veitu- og framkvæmdasviðs.

4.Samráðsgátt; Drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda (seinna samráð)

Málsnúmer 1909130Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. september 2019 þar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 221/2019, "Drög að frumvarpi til laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda - Seinna samráð". Umsagnarfrestur er til og með 19.09.2019.

5.Samráðsgátt; Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um þjóðlendur og afmörkun eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 581998

Málsnúmer 1909135Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 12. september 2019 þar sem forsætisráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 222/2019, "Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um þjóðlendur og afmörkun eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998". Umsagnarfrestur er til og með 26.09.2019.

6.Samráðsgátt; Drög að frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 341991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri

Málsnúmer 1909096Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 9. september 2019 þar sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 219/2019, "Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 34/1991 um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri". Umsagnarfrestur er til og með 20.09.2019.

7.Ársskýrsla Persónuverndar 2018

Málsnúmer 1909131Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 11. september 2019 frá Persónuvernd þar sem tilkynnt er um að ársskýrsla stofnunarinnar fyrir árið 2018 hafi verið gefin út á rafrænu formi sem hægt er að nálgast heimasíðu Persónuverndar.

8.Fjármálaráðstefna 2019

Málsnúmer 1909108Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 11. september 2019 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi fjármálaráðstefnu sveitarfélaga dagana 3. og 4. október n.k.

Fundi slitið - kl. 09:23.