Fara í efni

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar

151. fundur 04. nóvember 2009 kl. 16:00 - 18:15 í Ráðhúsi, Skr.
Fundargerð ritaði: Gunnar M. Sandholt Félagsmálastjóri
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun félagsmála 2010

Málsnúmer 0911007Vakta málsnúmer

Farið gegnum tillögur félagsmálastjóra, sem byggir annars vegar á framreikningum sem miðast við óskerta þjónustu og hins vegar lækkunum á tilteknum kostnaðarliðum. Nefndin samþykkir frekari sparnað á nokkrum liðum auk hækkunar á tekjulið Dagvistar aldraðra með hækkun þjónustugjalda. Eftir standa útgjöld sem nema 115.355.000 kr sem er 5.355.000 kr umfram ramma. Nefndin telur ekki unnt að ná fram frekari sparnaði nema með skerðingu nauðsynlegrar þjónustu.

Fundi slitið - kl. 18:15.