Fara í efni

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar

225. fundur 03. febrúar 2022 kl. 13:30 - 15:20 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Jóhannes H Ríkharðsson aðalm.
  • Jóel Þór Árnason aðalm.
  • Valdimar Óskar Sigmarsson aðalm.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá
Jóhanna Ey Harðardóttir sat fundinn í stað Jóns Sigurjónssonar áheyrnarfulltrúa L lista.

1.Árhólarétt viðgerðir

Málsnúmer 2107081Vakta málsnúmer

Fjólmundur Karl Fjólmundsson kom á fundinn til viðræðu um viðhaldsframkvæmdir við Árhólarétt.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að óska eftir fjallskiladeildin sendi Kára Gunnarssyni umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa uppfærða áætlun um viðhald og kostnað.

2.Riðumál í Skagafirði

Málsnúmer 2110117Vakta málsnúmer

Þórður Pálsson starfsmaður MAST kom á fundinn til viðræðu um riðumál almennt.

3.Afréttargirðing í Flókadal

Málsnúmer 2104251Vakta málsnúmer

Fyrirliggjandi eru gögn málsins, m.a. bréf frá Árna Pálssyni dags. 26.04. 2021 og dags. 21.07. 2021 f.h. Þóris Jóns Ásmundssonar og Margrétar Hjaltadóttur eigenda framangreindrar jarðar. Í bréfinu frá 26.04. 2021 er þess krafist að „sveitarstjórn taki málið fyrir og hlutist til um að reist verði afréttargirðing í samræmi við óskir umbjóðenda [lögmannsins] og annarra jarðeigenda í Flókadal, sbr. lög nr. 135/2001“. Í bréfinu frá 21.07. 2021 er áðurgreint erindi fyrra bréfsins ítrekað og vísað til laga nr. 6/1986 um afréttarmálefni, fjallskil ofl., fjallskilasamþykktar og til girðingarlaga nr. 135/2001 varðandi skyldur sveitarfélagsins. Einnig er fyrirliggjandi tölvupóstur sveitarstjóra til framangreinds lögmanns dags. 25.01. 2022 þar sem honum er tilkynnt um að málið verði á dagskrá nefndarinnar nú í febrúar.
Nefndin er sammála því sem fram kemur í tölvupósti sveitarstjóra að líta svo á að umbjóðendur framangreinds lögmanns í því máli sem nú er fyrir nefndinni „séu ekki aðrir en Þórir Jón Ásmundsson og Margrét Hjaltadóttir, eigendur jarðarinnar Austari Hóls í Flókadal, þó svo að óskir annarra jarðeigenda í Flókadal beri á góma í bréfi [lögmannsins] frá 21.07. 2021“. Einnig er nefndin sammála því sem fram kemur í framangreindum tölvupósti sveitarstjóra að líta skuli svo á, m.a. í ljósi fyrri samskipta umbjóðenda framangreindra aðila við sveitarfélagið, að krafa þeirra sé „að sveitarfélagið ráðist í gerð afréttargirðingar í Flókadal í Fljótum, þar sem afréttargirðingin var áður og að ekki þurfi að taka afstöðu til annarra óska eða krafna í þessu máli“ eins og það liggur fyrir nefndinni núna.
Máli þessu svipar til máls sem var til meðferðar hjá nefndinni fyrri part ársins 2020 vegna krafna framangreindra aðila og nokkurra annarra jarðeigenda í Flókadal á árinu 2020 í tilefni af meintum ágangi búfjár á land jarða þeirra. Nefndin telur rétt að líta svo á að það mál sem nú liggur fyrir nefndinni sé ekki sama mál og þá var til meðferðar. Ekki mun hafa komið fram athugasemd frá framangreindum lögmanni við ályktun sveitarstjóra í þessa veru í framangreindum tölvupósti til lögmannsins.
Nefndin telur að framangreindir eigendur Austari Hóls eigi ekki rétt á að gera þá kröfu að reist verði umrædd afréttargirðing, sbr. framanritað. Í 6. grein girðingarlaga nr. 135/2001 kemur fram að slík krafa skuli koma frá „meiri hluti landeigenda sem eiga lönd er liggja að afrétti“ auk þess sem áskilið er að um sé að ræða girðingu milli afréttar og heimalanda þeirra sem kröfuna gera. Sama áskilnað, um að jörð þeirra er kröfu gera um girðingu vegna ágangs búfjár liggi að afrétti, er að finna í 32. gr. laga nr. 6/1986 um afréttarmálefni, fjallskil ofl. og í 36. gr. fjallskilasamþykktar Skagafjarðarsýslu nr. 717/2021. Ekki hefur verið sýnt fram á að heimaland Austari Hóls liggi að umræddum afrétti.
Er ákveðið að hafna kröfunni. Ákvörðun þessi verður send til sveitarstjórnar til staðfestingar á næsta sveitarstjórnarafundi þann 9. febrúar 2022. Ritara nefndarinnar er falið að tilkynna framangreindum lögmanni um afgreiðslu þessa.

4.Búfjárleyfi

Málsnúmer 2201216Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um leyfi til búfjárhalds í þéttbýli í Sveitarfélaginu Skagafirði, dagsett 24. janúar 2022. Sigfríður Jódís Halldórsdóttir, Skógarstíg 2, 560 Varmahlíð, sækir um að fá leyfi til þess að halda 6 hænur við heimili sitt.
Kári Gunnarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að heimila búfjárleyfi fyrir framangreindum fjölda.

5.Stóra-Holt 2 (landnr.232286), umsókn um stofnun lögbýlis

Málsnúmer 2202007Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 31. janúar 2022 frá Gunnari Steingrímssyni, kt. 260557-5139, eiganda jarðarinnar Stóra-Holt 2 í Skagafirði, L232286, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis. Áformað er að nýta jörðina fyrir skógrækt. Fyrir liggja meðmæli ráðunauts hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins með að stofnun nýs lögbýlis á jörðinni verði samþykkt. Landbúnaðarnefnd sér ekkert því til fyrirstöðu að lögbýlið verði stofnað og mælir með að það hljóti staðfestingu sveitarstjórnar.

6.Refa og minkaveiði

Málsnúmer 2202006Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn frá Elvari Erni Birgissyni, Ríp, 551 Sauðárkróki um að fá samning við sveitarfélagið um refa- og minkaveiði.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fela Kára Gunnarssyni, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að gera samning við Elvar Örn Birgisson um refa- og/eða minkaveiði.

7.Arfgerðargreiningar

Málsnúmer 2201210Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar bókun 1000. fundar byggðarráðs þann 26. janúar 2022 sem hluti landbúnaðarnefndar tók þátt í. Einnig lögð fram til kynningar frétt af heimasíðu sveitarfélagsins frá 19. janúar 2022 þar sem landbúnaðarefnd fagnar fundi á ARR í íslenska sauðfjárstofninum.

8.Fjallskilasjóður Vestur-Fljóta, ársreikningur 2020

Málsnúmer 2112216Vakta málsnúmer

Ársreikningur Fjallskilasjóðs Vestur-Fljóta fyrir árið 2020 lagður fram til kynningar.

9.Fjallskilasjóður Austur-Fljóta, ársreikningur 2020

Málsnúmer 2112217Vakta málsnúmer

Ársreikningur Fjallskilasjóðs Austur-Fljóta fyrir árið 2020 lagður fram til kynningar.

10.Stofnun veiðifélags um vötn og vatnsföll á Eyvindarstaðaheiði

Málsnúmer 1901165Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar svohljóðandi bókun 998. fundar byggðarráðs:
"Unnið er að stofnun veiðifélags með Sjálfseignarstofnuninni Eyvindarstaðaheiði um Aðalsmannsvatn (Bugavatn) (ISN93: 479.628, 525.432) , Bugalæk, (Vopnalækur, Opnilækur) Bugakvísl-eystri og vestri. Blönduvatn ( ISN93: 475.171, 517.300), Þúfnavatn (ISN93: 477.385, 507.638) og Þúfnalæk (Þúfnavatnslækur).
Byggðarráð samþykkir stofnun veiðifélagsins og að Björn Ólafsson og Kári Gunnarsson verði aðalmenn í stjórn félagsins og Björn Grétar Friðriksson og Aron Pétursson til vara.
Byggðarráð samþykkir að vísa afgreiðslunni til staðfestingar sveitarstjórnar.
Ólafur Bjarni Haraldsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í afgreiðslunni."

Fundi slitið - kl. 15:20.