Fara í efni

Skipulagsnefnd

27. fundur 15. júní 2023 kl. 10:00 - 12:00 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Eyþór Fannar Sveinsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Anna Kristín Guðmundsdóttir ráðgjafi í skipulagsmálum sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað

1.Deiliskipulag frístundabyggðar við Reykjarhól - Varmahlíð

Málsnúmer 2105119Vakta málsnúmer

Drög að deiliskipulagi fyrir frístundabyggðina við Reykjarhól í Varmahlíð lögð fram. Skipulagsuppdráttur og greinargerð unnin af Eflu verkfræðistofu.
Skipulagssvæðið er 27,8 ha og liggur milli Víðimýrarár og Reykjarhóls.
Nú þegar er hluti frístundasvæðisins byggður. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir 26 nýjum frístundalóðum. Á uppdrætti er sýnd aðkoma að lóðunum og byggingarreitir. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem frístundabyggð. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.

Skipulagsnefnd leggur til við Sveitarstjórn að setja tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar við Varmahlíð í auglýsingu í samræmi við 41. gr skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á skipulagstillögunni.

2.Ljónsstaðir L230903 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2306058Vakta málsnúmer

Drög að deiliskipulagi fyrir landspilduna L230903 Ljónsstaðir úr landi Dúks í Skagafirði lögð fram.

Skipulagsnefnd fellst á að fallið sé frá skipulagslýsingu þar sem meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi og leggur til við Sveitarstjórn að setja tillögu að deiliskipulagi fyrir Ljónsstaði í Sæmundarhlíð í auglýsingu í samræmi við 41. gr skipulagslaga 123/2010 með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á skipulagstillögunni.

3.Lambeyri (201897) - Deiliskipulag

Málsnúmer 2210243Vakta málsnúmer

Auglýsingatíma deiliskipulagsins Lambeyri í Tungusveit lokið. Fjórar jákvæðar umsagnir bárust og engar athugasemdir. Þar sem engar athugasemdir eru gerðar við tillöguna er því ekki skylt að taka hana aftur til umræðu í sveitarstjórn sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga, felur nefndin skipulagsfulltrúa að senda tillöguna til Skipulagsstofnunar skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Flugumýrarhvammur 1 L232692 - Umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 2305022Vakta málsnúmer

Rögnvaldur Ólafsson, Flugumýrahvammi 1, óskar eftir leyfi til að stofna byggingarreit undir gróðurskýli í landi Flugamýrarhvamms 1, landnúmer 232692 líkt og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu. Númer uppdrátta eru S-101 og A-101 í verki nr. 70410203, dags. 17. apríl 2023.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að afgreiða umsókn um byggingarreit að fenginni umsögn Minjavarðar.

5.Eyrarvegur 20 - Fyrirspurn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2305191Vakta málsnúmer

Kaupfélag Skagfirðinga sækir um heimild til að stækka byggingarreit fyrir gæruskýli úr stálgrind sem er í skoti á vesturhlið Eyravegs 20 (Kjötafurðarstöð).
Mannvirkið mun falla utan við byggingarreit að hluta, eða alls um 71,2 m².
Með umsókninni fylgir afstöðumynd unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu, dags. 12.06.2023, verknr. 30270301.

Skipulagsnefnd telur að um óverulega breytingu á deiliskipulagi Sauðárkrókshafnar sé að ræða og leggur til við sveitarstjórn að fari fram grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Eyraveg 16 og 18, Eyrarveg 21 - Vörumiðlun/Verslunin Eyrin og Skarðseyri 5 - Steinull.

6.Hólmagrund 7 - Umsagnarbeni vegna byggingarleyfisumsóknar.

Málsnúmer 2306107Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 30. maí síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 um leyfi til að byggja bílageymslu og sólstofu sem yrðu viðbyggingar við einbýlishús sem stendur á lóðinni númer 7 við Hólmagrund.
Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu, uppdrættir í verki 7846 númer A-101, A-102, A-103 og A-104, dagsettir 17. maí 2023.

Þar sem ekki liggur fyrir gildandi deiliskipulag fyrir svæðið leggur skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að umbeðin framkvæmd verði grenndarkynnt í samræmi við 1. mgr. 44. gr skipulagslaga. Tillagan skal grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Hólmagrund 5, 9, 14, 16 og 18 ásamt við Fornós 4 og 6.

7.Glaumbær III - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2305230Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 31. maí síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 um leyfi til að byggja bílageymslu á lóðinni Glaumbær III, L224804.
Meðfylgjandi aðaluppdráttur gerður af Guðmundi Þór Guðmundssyni. Uppdráttur í verki 0423, númer 01, dagsettur 12.05.2023.

Þar sem ekki liggur fyrir gildandi deiliskipulag fyrir svæðið leggur skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að umbeðin framkvæmd verði grenndarkynnt í samræmi við 1. mgr. 44. gr skipulagslaga. Tillagan skal grenndarkynnt fyrir landeigendum Halldórsstaða og Glaumbæjar II.

8.Raftahlíð 79 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2306008Vakta málsnúmer

Guðmundur Magnússon eigandi raðhúsaíbúðar nr. 79 við Raftahlíð á Sauðárkróki óskar eftir heimild til að fá að breikka innkeyrslu að lóðinni.
Sótt er um leyfi til að gera innkeyrslu með sama hætti og gert hefur verið við lóðirnar nr. 77 og 81 við Raftahlíð, þ.e.a.s. með austurmörkum lóðarinnar.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið.

9.Dalatún 11 - Umsókn um stækkun lóðar

Málsnúmer 2306099Vakta málsnúmer

Helgi Freyr Margeirsson og Margrét Helga Hallsdóttir sækja um stækkun á lóð Dalatúns 11 til suðurs, sjá meðfylgjandi gögn.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að uppfæra lóðarblað og gera nýjan lóðarleigusamning.

10.Syðra-Skörðugil 1 (L234441) - Umsókn um landskipti.

Málsnúmer 2306095Vakta málsnúmer

S. Fjóla Viktorsdóttir og Elvar Einarsson þinglýstir eigendur íbúðarhúsalóðarinnar Syðra-Skörðugils 1 , landnúmer 234441, óska eftir heimild til að skipta 2,42 ha spildu/íbúðarhúsalóð úr landi lóðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S-101 í verki nr. 7153-6002, útg. 8. júní 2023. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Hallgrími Inga Jónssyni. Óskað er eftir því að lóðin fái heitið Syðra-Skörðugil 2. Þetta landheiti er ekki skráð á annað landnúmer í sveitarfélaginu. Landskipti þessi samræmast aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og styðja við markmið aðalskipulags um búsetu í dreifbýli. Landskipti þessi hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu. Engin fasteign er á umræddri spildu.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið.

11.Míla - Framkvæmdaleyfisumsókn - Ljósleiðaraframkvæmdir í Skagafirði

Málsnúmer 2305132Vakta málsnúmer

Míla óskar eftir leyfi fyrir ljósleiðaraframkvæmdum í Skagafirði frá Silfrastöðum til Steinsstaða. Lögn við Fremra-kot og frá Valagerði að sýslumörkum við Vatnshlíð á Vatnsskarði. Meðfylgjandi eru umsagnir hluteigandi stofnana og skriflegt samþykki landeigenda auk annarra gagna varðandi fyrirhugaða lagnaleið og framkvæmd verksins.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði umbeðið framkvæmdaleyfi.

12.Steinsstaðir lóð nr. 6 (LL222093) - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2208156Vakta málsnúmer

Hólmfríður Lilja Böðvarsdóttir lóðarhafi Steinsstaða lóð nr. 6 óskar eftir í tölvupósti dags. 14.06.2023 að hún vilji skila lóðinni aftur til sveitarfélagsins.
Skipulagsnefnd samþykkir skil á lóðinni og mun lóðin vera auglýst til úthlutunar í samræmi við gildandi úthlutunarreglur sveitarfélagsins.

13.Steinsstaðir 8 - Umsókn um frístundalóð

Málsnúmer 2304091Vakta málsnúmer

Óli Björn Pétursson lóðarhafi Steinsstaða lóð nr. 8 óskar eftir í tölvupósti dags. 13.06.2023 að hann vilji skila lóðinni aftur til sveitarfélagsins.
Skipulagsnefnd samþykkir skil á lóðinni og mun lóðin vera auglýst til úthlutunar í samræmi við gildandi úthlutunarreglur sveitarfélagsins.

Fundi slitið - kl. 12:00.