Fara í efni

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar

414. fundur 10. september 2021 kl. 12:45 - 13:15 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson forseti
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir aðalm.
  • Axel Kárason aðalm.
  • Gísli Sigurðsson aðalm.
  • Regína Valdimarsdóttir 1. varaforseti
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir 1. varam.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson 1. varam.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir 2. varaforseti
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Helga Sigurrós Bergsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Helga Sigurrós Bergsdóttir stjórnsýsluritari
Dagskrá
Í upphafi fundar fór forseti þess á leit við fundarmenn að taka fyrir með afbriðgum fundargerð byggðarráðs frá 10. september 2021.Samþykkt samhljóða.
Ólafur Bjarni Haraldsson var fjarverandi, Sveinn Úlfarsson sat fundinn í hans stað. Bjarni Jónsson var einnig fjarverandi, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir sat fundinn í hans stað.

1.Skipulags- og byggingarnefnd - 410

Málsnúmer 2108008FVakta málsnúmer

Fundargerð 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 25. ágúst 2021 lögð fram til afgreiðslu á 414. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Anna Bragadóttir hjá Verkfræðistofunni Eflu situr þennan lið fundar gegnum fjarfundarbúnað. Anna leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir 15 íbúðalóðir við Birkimel í Varmahlíð, til suðurs, auk tillögu greinargerð dags. 07.07.2021. Tillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021. Tillagan gerir ráð fyrir blandaðri byggð einbýlishúsa, parhúsa og raðhúsa. Nýtingarhlutfall lóða á bilinu 0,30 til 0,40. Gert er ráð fyrir stækkun íbúðasvæðisins til vesturs og suðurs í endurskoðuðu aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035. Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræðu fundarins. Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • 1.2 2105295 Sveinstún
    Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að hafin verði deiliskipulagsvinna íbúðabyggðar á svæði sem liggur suður og austur af Túnahverfi, vestan Sauðárkróksbrautar, norðan Áshildarholts (Sveinstún). Tillaga íbúðabyggðar á þessu svæði er í samræmi við gildandi aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 og í samræmi við tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem er í auglýsingarferli. Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Ingvar Gýgjar Sigurðarson sækir fh. Veitu-og framkvæmdasviðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar um leyfi fyrir reisingu leiktækja á opnu afmörkuðu svæði austan Gilstúns. Framlögð gögn unnin af Stoð ehf. Verkfræðistofu sýnir útmörk svæðis. Fyrirhuguð framkvæmd verður áfangaskipt og nær umsókn einungis til resingu leiktækja. Fram kemur í umsókn að leiktækin verði vottuð og af viðurkenndri gerð. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Guðmundur Ragnarsson kt.231053-6899 og Erla Valgarðsdóttir kt.060564-7799 f.h. þinglýsts lóðarhafa sumarbústaðarlandsins Steinsstaðir lóð nr. 2, landnr. 197913, og Jóhanna Lára Pálsdóttir kt.100868-5129 og Arjan Willem Van der Weck kt.140667-3159, þinglýstir lóðarhafar sumarbústaðarlandsins Steinsstaðir lóð nr. 3, landnr. 222090, óska eftir leiðréttingu á afmörkun lóðanna eins og sýnt er á meðfylgjandi vinnuskrá í verki 56095001 dags. 23.07.2021 sem unnin var á Stoð ehf. verkfræðistofu. Óskað er eftir því að afmörkun lóða fylgi girðingu eins og hún stendur.
    Núverandi stærð Steinsstaða lóðar nr. 2 er 4.737 m² en verður 4.466 m² eftir breytingu.
    Núverandi stærð Steinsstaða lóðar nr. 3 er 4.687 m² en verður 4.729 m² eftir breytingu.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt
    Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Gylfi Ingimarsson sækir fh. G Ingimarssonar ehf. kt 6904162980, um stækkun lóðarinnar nr. 1 við Sauðármýri, (L143678) þ.a.e.s. sérnotaflöt lóðar tilheyrandi fyrirtækinu. Meðfylgjandi gögn gera grein fyrir umbeðinni lóðarstækkun. Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu málsins . Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Guðlaug Jóhannsdóttir kt. 290436-3039, Steinn Leó Rögnvaldsson, kt. 081057-2309 og Merete Kristiansen Rabølle, kt. 160567-2529 þinglýstir eigendur jarðarinnar Hrauns á Skaga, L145889, sækja um leyfi fyrir byggingarreit fyrir veiðihús við Hraunsvatn í landi jarðarinnar. Staðsetning byggingarreits og aðkomuvegar er sýnd á framlögðum afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni. Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 713105, dags. 26. júlí 2021. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar. Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Sigmundur Jón Jóhannesson kt. 210865-4899 þinglýstur eigandi jarðarinnar Miðhúsa (landnr. L146567) í Óslandshlíð Skagafirði, óskar eftir leyfi til þess að stofna landspildu, Miðhús 1, úr landi jarðarinnar, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni.
    Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 716101, dags. 23. júlí 2021.
    Landið sem um ræðir verður tekið úr landbúnaðarnotkun.
    Öll hlunnindi munu áfram tilheyra jörðinni Miðhús, landnr. 146567.
    Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja landnúmerinu 146567.
    Landskipti þessi samrýmast gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021.
    Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Linda Björk Valbjörnsdóttir kt. 200192-3709 og Hákon Ingi Stefánsson 151097-2519 eigendur Geirmundarstaða 1, L228505, óska eftir leyfi til að breyta heiti lands og húss og óska eftir að nýtt bæjarheiti verði Lindarbrekka. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Dalatún 1, umsókn um breikkun innkeyrslu. Halldór Hlíðar Kjartansson kt. 251072-5319 sækir fh. eigenda einbýlishúss sem stendur á lóðinni númer 1 við Dalatún á Sauðárkróki um heimild Skipulags-og byggingarnefndar til að fá að breikka innkeyrslu að lóðinni. Sótt er um 6,0 metra breikkun til suðurs, yfir lagnasvæði sveitarfélagsins. Meðfylgjandi gögn gera grein fyrir umbeðinni framkvæmd. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Jens Kristinn Gíslason verkefnastjóri, sækir f.h. Landsnet um að gera minniháttar breytingar á Sauðárkókslínu 1, loftlínunni milli Varmahlíðar og Sauðárkróks, sem felast í því að leggja jarðstreng undir þjóðveg 1 frá tengivirki sem stendur á lóðinni Reykjarhóll lóð L146062, fyrstu 200 m norður fyrir þjóðveginn. Um er að ræða nýjan 66 kV jarðstreng á þessu svæði í landi jarðanna Reykjarhóls, L146060 og Íbishóls, L146044. Framlögð gögn gera grein fyrir erindinu. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið að fengnum umsögnum hlutaðeigandi umsagnaraðila. Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Hjalti Magnússon kt.070869-5869 og Sigurlaug Soffía Reynaldsdóttir kt. 010772-3629 eigendur einbýlishúss sem stendur á lóðinni númer 4 við Drekahlíð sækja um breikkun á bílastæði um 2.5 metra í norður
    Ekki er hægt annað að sjá en að beiðni umsækjenda um breikkun á bílastæði að Drekahlíð 4 sé hin sama og hafnað var með ákvörðun sveitarstjórnar 03.09. 2014, að því viðbættu að nú er sótt um 2,5m breikkun til norðurs en áður um 2,3m breikkun. Með úrskurði Úrskurðarnefndar um umhverfis og auðlindamál hinn 16.03. 2017 var vísað frá nefndinni kröfu umsækjenda um að ógilda þá ákvörðun jafnframt því sem hafnað var kröfu um ógildingu á ákvörðun sveitarstjórnar frá 29.10. 2014 um að synja um endurupptöku þeirrar ákvörðunar. Umrædd ákvörðun sveitarstjórnar frá 03.09. 2014 hefur ekki einungis bindandi réttaráhrif fyrir umsækjendur, heldur einnig fyrir það stjórnvald sem hana tók, þ.e. sveitarstjórn sveitarfélagsins. Verður ákvörðuninni ekki breytt nema með nýrri stjórnvaldsákvörðun, t.d. að undangenginni endurupptöku máls eða með afturköllun. Miðað við að gögn sem fylgja beiðninni eru þau sömu og lágu fyrir í framangreindu máli og að ekki hefur verið bent á að umrædd ákvörðun hafi byggt á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik og ekki sýnt á nokkurn hátt fram á að ákvörðunin hafi byggst á atvikum sem breyst hafi verulega frá því að hún var tekin eru engin rök til þess að endurupptaka málið, sbr. ákvæði 24. gr. stjórnsýslulaga. Slík endurupptaka væri auk þess einungis heimil að veigamiklar ástæður mæli með því. Umrædd ákvörðun frá 03.09. 2014 var m.a. tekin með almannahagsmuni að leiðarljósi, enda myndi fækkun á almenningsstæðum í götunni verða íbúum þar til tjóns. Um þetta var fjallað m.a. fyrir framangreindri úrskurðarnefnd í máli nr. 110/2015. Með vísan til þessa og til þess að ekki hefur verið sýnt fram á að fyrri ákvörðun sé ógildanleg eru engar forsendur til þess að afturkalla fyrri ákvörðun sveitarstjórnar á grundvelli 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1997. Með vísan til alls framanritaðs er erindinu hafnað. Að fenginni staðfestingu sveitarstjórnar á þessari niðurstöðu er starfsmanni skipulagsfulltrúa falið að tilkynna umsækjendum um þessa niðurstöðu og upplýsa um kæruleið og kærufrest.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsin til liðarins, "Drekahlíð 4 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu" Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Sauðárkrókshafnar.
    Framlögð gögn eru þrír skipulagsuppdrættir og greinargerð með umhverfisskýrslu.
    Tillagan, útgáfa 1.0 unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu og dagsett 21. júní 2021, var samþykkt á 181. fundi Umhverfis- og samgöngunefndar 21.06.2021.
    Deiliskipulagssvæðið er um 32 ha að stærð og samræmist afmörkun hafnarsvæðis H-401 í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem nú er í auglýsingu.
    Tillagan tekur á þeirri þróun sem orðið hefur á hafnarsvæðinu á þeim 25 árum frá því að gildandi deiliskipulag var staðfest. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst samhliða breytingu á Aðalskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, "Sauðárkrókshöfn - skipulagsmál" Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Steinn Leó Sveinsson f.h. veitu- og framkvæmdsviðs Sveitarfélagsins Skagafjörður leggur fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðarastrengi um Skaga, Hjaltadal, Deildardal og Vatnskarð á árinu 2021. Einnig sótt um leyfi fyrir hitaveitulögn með ljósleiðarastrengnum á tveim stuttum köflum í Hjaltadal. Meðfylgjandi gögn eru teikningar af ljósleiðara og hitaveitulögnum dagsettar 9. júlí 2021 unnar af Stoð ehf. Verkfræðistofu auk fornleifaskráningar sem unnin er 2020 og 2021 af Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga. Skipulags- og byggingarnefnd felur starfsmanni skipulags- og byggingarnefndar að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, að fengnum jákvæðum umsögn hlutaðeigandi umsagnaraðila. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsin til liðarins, "Skagafjarðarveitur - hitaveita. - Umsókn um framkvæmdaleyfi, ljósleiðaralögn. Skagi, Hjalta-og Deildard, Vatnsskarð" Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Steinn Leó Sveinsson f.h. veitu- og framkvæmdsviðs Sveitarfélagsins Skagafjörður leggur fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stofnlagnar hitaveitu (DN 250) á um 300 m kafla við Strandveg. Frá Borgargerði að Hegrabraut. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið. Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að hafin verði deiliskipulagsvinna íbúðabyggðar á svæði sem liggur norðan Nestúns, austan Sæmundarhlíðar og vestan Laugatúns. Tillaga íbúðabyggðar á þessu svæði er í samræmi tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem er í auglýsingarferli. Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 410 Fyrir liggur staðfest deiliskipulag fyrir 14 einbýlishúsalóðir við Nestún á Sauðárkróki. Nefndin samþykkir að auglýsa lóðirnar lausar til umsóknar að fenginni staðfestingu sveitarstjórnar. Dregið verður úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um lóð. Starfsmanni nefndarinnar falið auglýsa lóðirnar í samræmi við úthlutunarreglur sveitarfélagsins að fenginni staðfestingu sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 410. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.

2.Byggðarráð Skagafjarðar - 980

Málsnúmer 2109002FVakta málsnúmer

Fundargerð 980. fundar byggðarráðs frá 10. september 2021 lögð fram til afgreiðslu á 414. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefásson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 980 Lagt fram bréf dagsett 2. september 2021 frá félagsmálaráðuneyti og UNICEF á Íslandi varðandi barnvæn sveitarfélög - innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Auglýst er eftir umsóknum áhugasamra sveitarfélaga um þátttöku í verkefninu, en 15 sveitarfélög á Íslandi vinna nú að því að fá viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag. Tvö sveitarfélög hafa hlotið viðurkenninguna til þessa.
    Byggðarráð samþykkir að óska eftir kynningu á verkefninu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 980. fundar byggðarráðs staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 980 Byggðarráð samþykkir að kjörstaður í Fljótum vegna alþingiskosninga 2021 verði í Félagsheimilinu Ketilási í stað Sólgarðaskóla og vísar erindinu til sveitarstjórnar til staðfestingar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsin til liðarins, "Kjörstaðir við Alþingiskosningar sept 2021" Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 980 Lagður fram viðauki 4 við fjárhagsáætlun ársins 2021 vegna m.a. fyrirhugaðs útboðs almenningssamgangna á Sauðárkróki. Ítarupplýsingar færðar í trúnaðarbók.

    Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka 4 við fjárhagsáætlun ársins 2021 og vísar honum til sveitarstjórnar til afgreiðslu.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsin til liðarins, "Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2021" Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 980 Á fundinum er farið yfir fyrirliggjandi drög að útboðsgögnum sem unnin eru af fyrirtækinu Consensa. Byggðarráð telur mikilvægt að kostnaður af framkvæmd akstursins verði, að teknu tilliti til aðstæðna, sambærilegur og þekkt er um þéttbýlisstaði af svipaðri stærð og leggur áherslu á að við gerð kostnaðaráætlunar vegna verksins verði gætt að því hvaða kostnað þau hafi haft. Með vísan til framanritaðs samþykkir byggðarráð að fela sveitarstjóra að hrinda af stað útboðinu, þegar sveitarstjórn hefur staðfest ákvörðun byggðarráðs. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsin til liðarins, "Almenningssamgöngur á Sauðárkróki - útboð" Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 980 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. ágúst þar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 156/2021, "Drög að stefnu um notkun skýjalausna". Umsagnarfrestur er til og með 09.09.2021 Bókun fundar Afgreiðsla 980. fundar byggðarráðs staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 980 Lagt fram bréf dagsett 1. september 2021 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi breytingar á leiðbeiningum um ritun fundargerða og notkun fjarfundabúnaðar. Einnig lagður fram tölvupóstur dagsettur 2. september 2021 þar sem ráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 169/2021, "Breytingar á leiðbeiningum um ritun fundargerða nr. 22/2013 og notkun fjarfundarbúnaðar nr. 1140/2013". Umsagnarfrestur er til og með 13.09.2021.
    Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 980. fundar byggðarráðs staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 980 Lagt fram til kynningar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 30. ágúst 2021, varðandi innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Bókun fundar Afgreiðsla 980. fundar byggðarráðs staðfest á 414. fundi sveitarstjórnar 10. september 2021 með níu atkvæðum.

3.Drekahlíð 4 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2108029Vakta málsnúmer

Visað frá 410. fundi skipulags- og byggingarnefndar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Hjalti Magnússon kt.070869-5869 og Sigurlaug Soffía Reynaldsdóttir kt. 010772-3629 eigendur einbýlishúss sem stendur á lóðinni númer 4 við Drekahlíð sækja um breikkun á bílastæði um 2.5 metra í norður
Ekki er hægt annað að sjá en að beiðni umsækjenda um breikkun á bílastæði að Drekahlíð 4 sé hin sama og hafnað var með ákvörðun sveitarstjórnar 03.09. 2014, að því viðbættu að nú er sótt um 2,5m breikkun til norðurs en áður um 2,3m breikkun. Með úrskurði Úrskurðarnefndar um umhverfis og auðlindamál hinn 16.03. 2017 var vísað frá nefndinni kröfu umsækjenda um að ógilda þá ákvörðun jafnframt því sem hafnað var kröfu um ógildingu á ákvörðun sveitarstjórnar frá 29.10. 2014 um að synja um endurupptöku þeirrar ákvörðunar. Umrædd ákvörðun sveitarstjórnar frá 03.09. 2014 hefur ekki einungis bindandi réttaráhrif fyrir umsækjendur, heldur einnig fyrir það stjórnvald sem hana tók, þ.e. sveitarstjórn sveitarfélagsins. Verður ákvörðuninni ekki breytt nema með nýrri stjórnvaldsákvörðun, t.d. að undangenginni endurupptöku máls eða með afturköllun. Miðað við að gögn sem fylgja beiðninni eru þau sömu og lágu fyrir í framangreindu máli og að ekki hefur verið bent á að umrædd ákvörðun hafi byggt á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik og ekki sýnt á nokkurn hátt fram á að ákvörðunin hafi byggst á atvikum sem breyst hafi verulega frá því að hún var tekin eru engin rök til þess að endurupptaka málið, sbr. ákvæði 24. gr. stjórnsýslulaga. Slík endurupptaka væri auk þess einungis heimil að veigamiklar ástæður mæli með því. Umrædd ákvörðun frá 03.09. 2014 var m.a. tekin með almannahagsmuni að leiðarljósi, enda myndi fækkun á almenningsstæðum í götunni verða íbúum þar til tjóns. Um þetta var fjallað m.a. fyrir framangreindri úrskurðarnefnd í máli nr. 110/2015. Með vísan til þessa og til þess að ekki hefur verið sýnt fram á að fyrri ákvörðun sé ógildanleg eru engar forsendur til þess að afturkalla fyrri ákvörðun sveitarstjórnar á grundvelli 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1997. Með vísan til alls framanritaðs er erindinu hafnað. Að fenginni staðfestingu sveitarstjórnar á þessari niðurstöðu er starfsmanni skipulagsfulltrúa falið að tilkynna umsækjendum um þessa niðurstöðu og upplýsa um kæruleið og kærufrest.

Borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með átta atkvæðum, Gísli Sigurðsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í afgreiðslu málsins.

4.Sauðárkrókshöfn - skipulagsmál

Málsnúmer 1808083Vakta málsnúmer

Visað frá 410. fundi skipulags- og byggingarnefndar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Sauðárkrókshafnar.
Framlögð gögn eru þrír skipulagsuppdrættir og greinargerð með umhverfisskýrslu.
Tillagan, útgáfa 1.0 unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu og dagsett 21. júní 2021, var samþykkt á 181. fundi Umhverfis- og samgöngunefndar 21.06.2021.
Deiliskipulagssvæðið er um 32 ha að stærð og samræmist afmörkun hafnarsvæðis H-401 í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem nú er í auglýsingu.
Tillagan tekur á þeirri þróun sem orðið hefur á hafnarsvæðinu á þeim 25 árum frá því að gildandi deiliskipulag var staðfest. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst samhliða breytingu á Aðalskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar samþykkir með níu atkvæðum, að deiliskipulagstillagan verði auglýst samhliða breytingu á Aðalskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Skagafjarðarveitur - hitaveita. - Umsókn um framkvæmdaleyfi, ljósleiðaralögn. Skagi, Hjalta-og Deildard, Vatnsskarð

Málsnúmer 2108142Vakta málsnúmer

Visað frá 410. fundi skipulags- og byggingarnefndar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Steinn Leó Sveinsson f.h. veitu- og framkvæmdsviðs Sveitarfélagsins Skagafjörður leggur fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðarastrengi um Skaga, Hjaltadal, Deildardal og Vatnskarð á árinu 2021. Einnig sótt um leyfi fyrir hitaveitulögn með ljósleiðarastrengnum á tveim stuttum köflum í Hjaltadal. Meðfylgjandi gögn eru teikningar af ljósleiðara og hitaveitulögnum dagsettar 9. júlí 2021 unnar af Stoð ehf. Verkfræðistofu auk fornleifaskráningar sem unnin er 2020 og 2021 af Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar felur starfsmanni skipulags- og byggingarnefndar að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, að fengnum jákvæðum umsögn hlutaðeigandi umsagnaraðila.

Borið upp til afgreiðslu og samþykkt með níu atkvæðum.

6.Sameining sveitarfélaga

Málsnúmer 2104151Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir með níu atkvæðum að skipa 5 fulltrúa og tvo til vara í samstarfsnefnd sem kanna skal möguleika á sameiningu sveitarfélaganna í samræmi við 119. grein sveitarstjórnarlaga.
Stefnt skal að því að samstarfsnefnd skili áliti sínu til sveitarstjórna í nóvember næstkomandi með það fyrir augum að kynning tillögunnar hefjist í desember og að kjördagur verði í janúar 2022.
Samstarfsnefndinni er falið að setja verkefninu nánari verkáætlun og tímaramma.
Tillaga þessi er lögð fram í kjölfar óformlegra viðræðna fulltrúa sveitarfélaganna og samráðs við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Fyrirliggjandi er stöðugreining sem styttir verktímann verulega og samráð við íbúa er hafið.
Sveitarstjórn skipar aðalmenn: Gísla Sigurðsson, Ingibjörgu Huld Þórðardóttur, Álfhildi Leifsdóttur, Jóhönnu Ey Harðardóttur, Sigfús Inga Sigfússon.
Varamenn: Regína Valdimarsdóttir og Ólafur Bjarni Haraldsson.

Til máls tóku Sveinn Úlfarsson, Gísli Sigurðsson, Stefán Vagn Stefánsson, með leyfi forseta.




7.Kjörstaðir við Alþingiskosningar sept 2021

Málsnúmer 2106142Vakta málsnúmer

Vísað frá fundi byggðarráðs 980. fundi til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjaðar samþykkir með níu atkvæðum, að kjörstaður í Fljótum vegna alþingiskosninga 2021 verði í Félagsheimilinu Ketilási í stað Sólgarðaskóla.

8.Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2021

Málsnúmer 2106259Vakta málsnúmer

Vísað frá 980. fundi byggðarráðs til afgreðslu sveitarstjórnar þannig bókað:
Lagður fram viðauki 4 við fjárhagsáætlun ársins 2021 vegna m.a. fyrirhugaðs útboðs almenningssamgangna á Sauðárkróki. Ítarupplýsingar færðar í trúnaðarbók.
Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka 4 við fjárhagsáætlun ársins 2021 og vísar honum til sveitarstjórnar til afgreiðslu.
Sveinn Úlfarsson kvaddi sér hljóðs þá Gísli Sigurðsson.

Viðauki 4 borinn upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktur með 9 atkvæðum.

9.Almenningssamgöngur á Sauðárkróki - útboð

Málsnúmer 2107047Vakta málsnúmer

Vísað frá 980. fundi byggðarráðs til afgreðslu sveitarstjórnar þannig bókað:

"Á fundinum er farið yfir fyrirliggjandi drög að útboðsgögnum sem unnin eru af fyrirtækinu Consensa. Byggðarráð telur mikilvægt að kostnaður af framkvæmd akstursins verði, að teknu tilliti til aðstæðna, sambærilegur og þekkt er um þéttbýlisstaði af svipaðri stærð og leggur áherslu á að við gerð kostnaðaráætlunar vegna verksins verði gætt að því hvaða kostnað þau hafi haft. Með vísan til framanritaðs samþykkir byggðarráð að fela sveitarstjóra að hrinda af stað útboðinu, þegar sveitarstjórn hefur staðfest ákvörðun byggðarráðs.

Borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 13:15.