Málefni Hofsafréttar - lausaganga hrossa
Málsnúmer 0808040
Vakta málsnúmerLandbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar - 138. fundur - 19.08.2008
Málefni Hofsafréttar.
Rætt var um framgang mála vegna lausagöngu hrossa á Hofsafrétt.
Sveitarstjórn samþykkti bann við lausagöngu hrossa á Hofsafrétt, sem farið var fram á af Fjallskilanefnd Hofsafréttar og Landbúnaðarnefndar Skagafjarðar þ. 30. jan. 2007 og samþykkt áður í báðum nefndum.
Bannið var auglýst eftir ákvörðun sveitarstjórnar í 42. tbl. Lögbirtingablaðsins 2007.
Þessi samþykkt hefur nú verið brotin.
Einar gerði grein fyrir stöðu mála og ákveðið að fá fulltrúa Landgræðslunnar á næsta fund.